Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 16
Maður um fertugt var í
gær ákærður fyrir að hafa
handleggsbrotið fyrrverandi
eiginkonu sína í janúar 2006.
Það gerðist með þeim hætti að
hann sneri upp á hægri hand-
legg hennar með þeim afleiðing-
um að framhandleggurinn
brotnaði.
Ákæruvaldið krefst þess að
maðurinn verði dæmdur til
refsingar. Af hálfu konunnar er
þess krafist að hann verði
dæmdur til greiðslu skaðabóta
að fjárhæð rúmlega 700 þúsund
króna auk vaxta og verðbóta.
Ákærður fyrir
handleggsbrot
Fjárhagsleg
afkoma Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri er mun verri en áætl-
anir í upphafi árs gerðu ráð fyrir.
Gjöld umfram tekjur og fjárveit-
ingar voru 81,7 milljónir króna í
lok september.
Rekstraráætlun fyrir árið 2006
var endurskoðuð í október og er
gert ráð fyrir því að gjöld umfram
tekjur í árslok verði liðlega 100
milljónir króna.
Í skýrslu Vignis Sveinsson-
ar, framkvæmdastjóra fjármála
og reksturs FSA, kemur fram
að rekstur sjúkrahússins hefur
þyngst eftir því sem hefur liðið á
árið og þróun verðlags og launa,
auk erfiðleika í mönnun, leitt til
þessa kostnaðarauka.
Launakostnaður í lok tímabils-
ins nam 1.976 milljónum og hafði
farið um 2,9 prósent fram úr áætl-
un að teknu tilliti til breytinga á
kjarasamningum eða um 56 millj-
ónir. Helstu ástæður þess eru
hækkun á yfirvinnu, einkum auka-
vakta, sem rekja má til aukinnar
starfsemi og vaxandi vinnuálags
vegna manneklu.
Almenn rekstrargjöld sjúkra-
hússins nema samtals 685 millj-
ónum króna eftir fyrstu níu mán-
uði ársins og hafa hækkað um
13 prósent á milli ára. Miðað við
upphaflega áætlun hafa rekstrar-
gjöld aukist um 15 milljónir eða
2,3 prósent.
Í frumvarpi til fjáraukalaga
2006 er lagt til að FSA fái 100 millj-
óna framlag til almenns reksturs
og 20 milljóna viðbótarframlag til
tækjakaupa.
Hallinn verður 100 milljónir
1700 Íslendingar
hafa skrifað undir undirskrifta-
söfnun sem tölvufyrirtækið
Snerpa á Ísafirði hefur staðið fyrir
frá því í lok september á þessu ári
þar sem breytingum á internet-
þjónustu Símans er mótmælt.
Síminn hefur uppfært ADSL-
kerfi sitt á suðvesturhorninu,
Akureyri og Húsavík og er mesti
mögulegi hraðinn þar 12Mb/S að
sögn Evu Magnúsdóttur, upplýs-
ingafulltrúa Símans. Þeir sem
skrifuðu nafn sitt á undirskrifta-
listann vilja hins vegar að íbúar
annars staðar á landinu hafi líka
aðgang að slíkri tengingu því verð-
ið sem þeir greiða fyrir 6 Mb/S
tengingu er það sama og internet-
notendur sem tengdir eru hinu
uppfærða kerfi greiða fyrir teng-
ingu sem er 12Mb/S.
Matthildur Helgadóttir, fram-
kvæmdastjóri Snerpu, segir að
verið sé að mismuna fólki eftir
búsetu. Að sögn Matthildar verð-
ur undirskriftunum skilað til Sím-
ans á næstunni. „Fyrir nokkru
fengum við svör frá fyrirtækinu
um að þeir ætluðu að gera eitt-
hvað í þessu en þeir sögðu ekki
hvenær,“ segir Matthildur, en upp-
færa þarf tæknibúnað á þessum
svæðum til að hægt sé að veita
íbúum þar sömu þjónustu og þar
sem búnaðurinn er fyrir hendi.
Matthildur segir að Síminn telji
uppfærsluna á búnaðinum of dýra.
„Við óttumst að þetta sé fyrsta
skrefið í þá átt að ákveðnir lands-
hlutar verði skildir eftir, að íbúar
á þessum svæðum verði látnir
borga sama verð og annars staðar
en að þróun og uppfærsla á tækni-
búnaði verði látin sitja á hakan-
um,“ segir Matthildur. Hún segir
að það þurfi að uppfæra tækni-
búnaðinn og á undirskriftalistinn
að ýta undir að það verði gert.
Guðjón A. Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, sagði
í utandagskrárumræðu á Alþingi á
þriðjudaginn að einkavæðing Sím-
ans hafi orðið neytendum til skaða
á sambærilegan hátt og Matthild-
ur minnist á, því að á landsbyggð-
inni sé annað verðlag, slakari
þjónusta og að starfsstöðvar hafi
verið lagðar niður.
Eva Magnúsdóttir segir að ekki
hafi verið tekin ákvörðun um hve-
nær tæknibúnaðurinn á einstök-
um svæðum á landsbyggðinni
verði uppfærður, en að annar
áfangi í uppfærslu kerfisins á
landsbyggðinni muni hefjast á
næsta ári.
Segja landsbyggðarfólki mismunað
Anna Kristín Gunnars-
dóttir, þing-
maður Sam-
fylkingarinnar
í Norðvestur-
kjördæmi,
ætlar að taka
þriðja sæti á
lista flokksins í
kosningunum í
vor. Anna
Kristín sóttist
eftir 1.-2. sæti í
prófkjöri en hafnaði í þriðja
sætinu.
Tillaga kjörnefndar að
framboðslista verður borin upp á
kjördæmisþingi á Reykjum í
Hrútafirði um helgina. Á þinginu
verða stefnumál kosningabarátt-
unnar einnig til umræðu.
Guðbjartur Hannesson varð
fyrstur í prófkjörinu og Karl V.
Matthíasson annar.
Anna sest í
þriðja sætið