Fréttablaðið - 23.11.2006, Page 24

Fréttablaðið - 23.11.2006, Page 24
fréttir og fróðleikur Skiptar skoðanir um áhrif Sýrlands Ástríða og gróði Hart var tekist á um það í héraðsdómi í gær hvort olíufélögin hafi haft fjár- hagslegan ávinning af sam- ráði vegna útboðs Reykja- víkurborgar og fyrirtækja hennar eigu árið 1996. „Er einhver í alvöru að halda því fram að samráð olíufélaganna hafi ekki valdið tjóni?“ spurði Vil- hjálmur H. Vilhjálmsson hæsta- réttalögmaður í málflutningi sínum í máli Reykjavíkurborgar og Strætó bs. gegn olíufélögunum í Héraðsdómi Reykjavíkur en Vil- hjálmur flutti málið fyrir hönd stefnanda. Lögmenn olíufélaganna sögðu algjörlega ósannað að fjárhags- legur ávinningur hefði verið af samráðinu og gagnrýndu stefn- anda fyrir að bera saman aðstæð- ur frá 1996 annars vegar, við aðstæður árið 2001 hins vegar. En þá fór fram annað útboð þar sem olíufélögin höfðu ekki samráð. Hörður F. Harðarson, lögmað- ur Skeljungs, sagðist í málflutn- ingi sínum „ekki skilja hvernig væri hægt að sýna fram á meint brot árið 1996 með samanburði við útboð 2001“ og áréttaði að þá hefðu allt aðrar markaðsaðstæður verið fyrir hendi. Reykjavíkurborg og Strætó bs. fara fram á tæplega 160 milljónir króna vegna fjárhagstjóns sem þau telja sig hafa orðið fyrir vegna verðsamráðs í tengslum við útboð á vegum Reykjavíkurborgar, og fyrirtækja borgarinnar, sem óskað var eftir 3. júní 1996. Vilhjálmur vitnaði í málflutningi sínum til skýrslu Samkeppnisyfir- valda vegna samráðsins en þar er nokkuð ítarlega fjallað um útboðið 1996. Á blaðsíðu 146 í skýrslunni segir: „Bæði forstjóri Olíufélags- ins og framkvæmdastjóri mark- aðssviðs hafa lýst því yfir að náðst hafi samkomulag milli olíufélag- anna þriggja um samvinnu vegna útboðs Reykjavíkurborgar og Landhelgisgæslunnar og fram- legðarskiptingu eftir það. Hið sama hefur forstjóri Olís gert.“ Vilhjálmur sagði samráðið vegna útboðsins 1996 hafa orðið til þess verðið hefði verið umtalsvert hærra en „eðilegt gæti talist“. „Munurinn á lægsta verði árið 1996, þegar samráð átti sér stað, og svo útboðsins í október 2001, þegar ekkert samráð átti sér stað, var heilar fjórtán krónur,“ sagði Vilhjálmur og vitnaði þar til grunnverðs á díselolíu. Lægsta boð árið 1996 var 44,69 krónur á lítra en 30,04 krónur á lítra árið 2001. „Þetta er munur sem verður ekki skýrður með neinu öðru en samkeppni í stað samráðs,“ sagði Vilhjálmur. Lögmenn Olíufélagsins sögðu samanburð eins og þennan ómark- tækan. Lagði Hörður, sem flutti fyrstur mál sitt fyrir hönd verjenda, á það áherslu að efnahagsaðstæður hefðu verið allt aðrar árið 2001 held- ur en 1996 og því væri ekki hægt að „bera saman framlegð af viðskipt- unum“ þar sem þær byggðu á mis- jöfnum forsendum. „Niðurstaðan úr slíkum samanburði verður því alltaf ímyndun ein, sem vitanlega ómark- tæk,“ sagði Hörður. Gagnrýndu lögmenn stefndu það einnig að ekki hefðu verið kvaddir fyrir dóminn „matsmenn til þess að fjalla um hvort ávinn- ingur af samráðinu hefði einhver verið“. „Staðreyndin er sú að það er ekkert í hendi, sem sannað getur fjárhagslegan ávinning olíu- félaganna af því að hafa haft sam- ráð,“ sagði Hörður í kjarnyrtum flutningi sínum fyrir dómi. Gísli Baldur Garðarsson, lögmað- ur og stjórnarformaður Olís, upp- lýsti það fyrir dómi að samkvæmt matsskýrslu sem Jón Þór Sturlu- son hagfræðingur vann, hefði mögulegur ávinningur af samráð- inu verið 37 milljónir króna árið 1996, sem jafngildir 52 milljónum að núvirði. Lögmenn olíufélaganna voru ósammála um hvort leggja ætti matið fram sem hluta af gögnum málsins en Skúli Magnússon hér- aðsdómari spurði Gísla Baldur út í efnisatriði matsins þegar hann gerði það óvænt að umtalsefni. „Hvers vegna eru lögmenn að gera matskýrslu að umtalsefni sem ekki er hluti af gögnum máls- ins og liggur eflaust í skúffu út í bæ?“ Gísli Baldur ætlaði sér þá að svara en Skúli hélt áfram. „Vertu ekki að grípa fram í fyrir dómara þegar hann er að spyrja þig spurn- inga,“ sagði Skúli ákveðinn og bar aðra spurningu fram fyrir Gísla Baldur. „Telur þú þá þessa tölu sem nefnd er í matinu og þú gerðir að umtalsefni, það er 37 milljónir króna vegna útboðsins árið 1996, gefa vísbendingu um hugsanlegan ávinning af samráðinu?“. Gísli Baldur sagði svo ekki vera en sagðist vera tilbúinn til þess að leggja matið fram sem hluta af gögnum málsins. Því mótmæltu lögmenn Kers og Skeljungs ein- dregið. Lögmaður Kers, Oddgeir Einars- son, var líkt og Hörður, ósam- mála Gísla Baldri í því að leggja matið fram sem hluta af gögnum málsins. Hörður sagði, að mál- flutningi loknum, matið aðeins hafa verið unnið til þessa kanna mögulegan sáttagrundvöll í mál- inu. „Skýrslan var unnin til þess að kanna sáttagrundvöll og það kom í raun aldrei til greina að nota hana í málinu. Við vinnu skýrslunnar fór fram mat á því hvort einhver önnur sambærileg viðskipti hefðu gefið aðra niður- stöðu en þá sem kom fram í útboðinu 1996. Tölur sem fram koma í skýrslunni gefa enga vís- bendingu um ávinning af sam- ráði, því ég tel engar sannanir hafa komið fram um að ávinning- ur hafi verið fyrir hendi.“ Vilhjálmur sagði sönnunabyrði um margt erfiða. „Það er erfitt að benda á ótvíræð sönnunargögn í samkeppnismálum. Dómstólar hafa þá það úrræði að leggja sönnunarbyrðina yfir á þá sem hafa staðið fyrir ólöglegu sam- ráði og gera þannig vægari kröf- ur til þess sem sækir bætur vegna ólögmætrar háttsemi að hann sanni mál sitt alveg upp á minnsta smáatriði. Varðandi matskýrsl- una þá fékk ég hana afhenta sem trúnaðargagna frá lögmanni Skeljungs og réð því engu um það hvort hún yrði hluti af gögnum málsins. Hún var unnin af frum- kvæði Skeljungs og Olís en með mínu samþykki. Ég tel hana ekki skipta sköpum í málinu en yfir- lýsingar lögmanns Olís fyrir dómi gætu skipt einhverju máli þegar upp er staðið.“ Samráð staðreynd - deilt um ágóða

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.