Fréttablaðið - 23.11.2006, Síða 37
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Fatahönnuðurinn Ásgrímur Már Frið-
riksson tók nýlega við stöðu skemmt-
anastjóra á Rex.
Það má segja að Ásgrímur fatahönnuður,
betur þekktur sem Ási, hafi fyrst komist
almennilega í sviðsljósið fyrir búninga-
hönnun Silvíu Nætur, sem hann sá um
ásamt söngdívunni knáu. Í kjölfarið hefur
Ási tekið þátt í mörgum verkefnum, m.a. að
hanna búninga fyrir Stuðmenn og starfa
fyrir Eskimo Models á Indlandi, en um jólin
er von á fatalínu frá Ásgrími og Eskimo
sem seld verður í Top Shop.
Þar sem Ási er ákaflega duglegur að
kaupa sér föt segist hann ekki eiga neina
uppáhalds flík, en sumt er honum þó kær-
ara en annað. „Til dæmis þykir mér mjög
vænt um jakkafötin mín sem voru sérsaum-
uð á mig á Indlandi. Ég teiknaði þau bara
upp, gekk inn á saumastofu og svo voru þau
tilbúin svona þremur dögum síðar. Það er
náttúrlega æðislegt að eiga jakkaföt sem
eru þau einu sinnar tegundar í heiminum og
klæðskerasaumuð að auki,“ segir Ási og
bætir því við að sægræna skyrtan komi sér-
staklega vel út við jakkafötin en hana keypti
Ási í Kron Kron og hönnuður hennar er
Bernhard Wilhelm. „Veskið fékk ég svo
þegar ég var lærlingur hjá Three as Four í
New York. Það er kallað Nýrnataskan, eða
„The Kidney Bag“ og ég tek það fram yfir
öll önnur veski sem ég á, nema kannski
tölvutöskuna.“
Nýlega tók Ási við starfi skemmtana-
stjóra á Rex og má því eiga von á ferskum
straumum þar á næstunni, enda er hann
ávallt með púlsinn á því sem þykir hipp og
kúl.
Einstök jakkaföt