Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 45
Helga Óskarsdóttir dreifir
myndlist til almennings.
Í gallerí Kling og Bang við Lauga-
veg heldur myndlistarmaðurinn
Helga Óskarsdóttir skemmtilega
sýningu. Sýningin ber yfirskrift-
ina „myndlistardreifing“ og
stendur undir sér sem slík, því
allir gestir sem þangað koma
fara ekki tómhentir til baka held-
ur fá hluta úr sýningunni að gjöf.
Um er að ræða gula „baun“
eða eins konar fræ í yfirstærð.
Baunin er falleg að lögun og fer
vel í hendi. Litur hennar er heið-
gulur og það er sannarlega litur
sem er ekki á hverju strái,
sérstaklega ekki í skammdeg-
inu. Inni á heimilinu gagnast
baunin góða á margvíslegan
hátt, hvort sem er til þess að
leggja ofan á blaðabunka, stilla
upp í hillu sem fínu skrauti en
svo hafa börn líka gaman af því
að leika sér með baunina.
„Ég hef alltaf haft rosalega
gaman af því að finna hluti í
umhverfinu sem koma á óvart og
í raun er ég að gefa það til baka
með því að gefa sýningargestum
þennan hlut,“ segir Helga um
verk sitt. „Þessi hlutur er ekki
beint eitthvað sem fólk veit hvað
er – bara eitthvað sem verður á
vegi þínum án þess að hafa neinn
sérstakan tilgang. Svo getur fólk
sjálft tekið ákvörðun um hvað
þetta er eða til hvers á að nota
það,“ segir hún að lokum og bætir
því við að stundum sé talað um að
myndlist nái ekki nógu vel til
almennings þar sem fólk kemur
almennt ekki mikið á söfn og gall-
erí. „En með því að gefa mynd-
listina er ég að færa hana út úr
galleríinu og koma henni í umferð
meðal almennings.“
Litur sem er ekki
á hverju strái
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
25
26
/
TA
K
TÍ
K
3
.1
1.
’0
6
KAUPAUKI
32’’ DiBOSS LCD sjónvarp
fylgir öllum ALNO eldhús-
innréttingum sem staðfestar
eru í nóvember 2006
Bæjarlind 6, Kóp.
s. 534 7470 • www.feim.is
Opið virka daga 10-18
og laugardaga 10-16
Framleiðsla túbusjónvarpa
dregst verulega saman og verð-
ur líklega hætt að mestu innan
skamms.
Með tilkomu flatskjártækni hefur
framleiðsla á túbusjónvörpum
minnkað umtalsvert. Flestir af
stóru raftækjaframleiðendunum
hafa tilkynnt að þeir muni innan
skamms hætta framleiðslu þeirra,
ef þeir séu ekki hættir nú þegar.
Fæstir gráta þessa þróun enda
túbusjónvörp stór og mikil tæki.
Þar að auki standast fæst þeirra
kröfur um High-Definition tækni,
tækni sem innan skamms verður
allsráðandi.
Þó er óþarfi að henda gamla
hlunknum enda gæti það orðið
smart eftir nokkur ár að draga
antíksjónvarpið úr geymslunni.
Túbusjón-
vörp hverfa