Fréttablaðið - 23.11.2006, Síða 49

Fréttablaðið - 23.11.2006, Síða 49
Ofnæmi af völdum rykmaura lýsir sér oft eins og frjókorna- ofnæmi. Einkennin koma fram á veturna þar sem við erum meira inni við og erum ekki jafn dugleg við að viðra út. Flestir þvo sængurföt reglulega en margir láta aldrei hreinsa dýnur, sængur og kodda sem halda góðu lífi í rykmaurum. Samkvæmt rannsóknum sem bleiuframleiðendurnir Pampers gerðu á Norðurlöndunum kemur það fram að ein af hverjum fimm fjölskyldum hreinsa aldrei dýnur, sængur og kodda á meðan flestir sem tóku þátt í könnuninni fara í það einu sinni á ári. Rykmaurum líður best í raka og þess vegna eru rúm góður staður fyrir þá, sérstaklega á veturna. Rykmaurar lifa í um mánuð en síðan skilja þeir eftir afkvæmi sem halda áfram að valda ofnæmi. Best er að þvo sængurföt á 14 daga fresti á 60 gráðum eða suðu. Síðan þarf að hreinsa dýnuna að minnsta kosti einu sinni á ári og sængur, sængurteppi og kodda ekki sjaldnar en tvisvar á ári. Dýnurnar má láta út í frostgadd í sólarhring og síðan berja úr þeim rykið. Rykmaurinn drepst í frost- inu, svo kodda, sængur, sængur- teppi og bangsa má troða í frysti- kistu í sólarhring eða svo og síðan setja í hreinsun eða þvottavél. Ef lús kemur á heimilið eru sængurfötin líka sett í frost. Einnig má ryksuga dýnuna eftir frostmeðferðina en það verður að vera miðstöðvarryksuga eða ryksuga með góðum filter, ann- ars fer rykið beint út í andrúms- loftið aftur. Fram kom í könnun- inni að ungabörn ættu ekki að nota gamlar notaðar dýnur, en hins vegar má kaupa nýjar dýnur í notuð rúm. Sængum, koddum og böngsum ungbarna þarf líka að henda í þvottavél eða frysta reglulega. Sjálfir rykmaurarnir eru ekki hættulegir að því leyti að þeir hvorki bíta né eru smitberar. Það er úrgangur mauranna sem fer út í andrúmsloftið og veldur ofnæminu. Ofnæmi af óhreinu rúmi Margir nota veturinn til að ditta að heimilinu. Vilji fólk hressa upp á baðherbergið eru nokkrir hlutir sem má fram- kvæma án mikillar fyrirhafnar. Auðvelt er að festa upp eina hillu á vegg sem getur tónað við innrétt- ingu eða lit á vegg. Á hilluna má svo raða myndum í fallegum römmum, vösum, ilmvatnsglös- um, körfum með ýmsu dóti eða hvað sem ykkur dettur í hug. Pass- ið bara að velja ekki á hilluna hluti sem geta skemmst í raka. Með fallegum antíkskálum má hressa upp á litlaust umhverfi. Setjið fallegar sápur, baðsölt eða aðra smáhluti í skálarnar. Svo má velja ilmsápur í skálarnar eftir árstíð, blómailm á sumrin og kanililm um jólin. Sé mikið gólfpláss á baðinu má setja þar inn húsgagn eins og litla kommóðu, tágstól eða bastkörfur fyrir óhreina þvottinn. Gott ráð til að stækka baðherbergið er að setja upp stóra spegla. Endurhönnun á baðherbergi á fjarri því að snúast eingöngu um flísar og borðplötur. Skreyttu með blómum og plöntum sem þrífast vel í raka og fáðu hlýjar og góðar mottur sem auðvelt er að þvo til að setja á gólfið. Nýtt og betra baðherbergi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.