Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 74
Í gær kom út hjá forlaginu
JPV útgáfu stórbókin Ísland
í aldanna rás 1800–1899 en
á árunum 2000–2002 gaf
forlagið út sögu 20. aldar-
innar í sama bókaflokki og
naut hún fádæma vinsælda
meðal almennings og seldist
í þúsundum eintaka, fyrst
í þremur bindum og loks í
einu.
Nýja ritröðin var í stóru broti,
ríkulega myndskreytt en dró dám
af stórvirkinu Aldirnar en útgáfa
þeirra var að renna sitt skeið á
forlagi Iðunnar þegar nýja ritröð-
in hóf göngu sína. Það var Valdi-
mar Jóhannsson sem stóð að þeirri
útgáfu í upphafi og hafði hún gríð-
arlegt uppfræðslugildi um sögu
fyrri tíðar meðal almennings í
nokkrar kynslóðir.
Það var síðan sonur Valdimars,
Jóhann Páll, sem tók sig til og gaf
út nýju ritröðina: spurður um
stærð þessa útgáfuverks sagði
Jóhann í viðtali við Fréttablaðið í
gær: „Fyrsta prentun bókarinnar
er 5.000 eintök en þetta er stærsta
og dýrasta útgáfa sem ég hef
nokkru sinni lagt út í. Um 540
blaðsíður í stóru broti
með yfir 1.000 mynd-
um. Það dytti engum
útgefanda í hug að
ráðast í svona verk ef
hann óraði fyrir
hversu mikil vinna og
kostnaður er því sam-
fara en ég kann sem
betur fer ekki á Excel
og hef aldrei gert
kostnaðaráætlun um
nokkra bók í þau rúmu
30 ár sem ég hef fengist
við bókaútgáfu. Við
höfum ekki tekið saman
útgáfukostnaðinn við
þessa bók en hann hleyp-
ur á tugum milljóna en ég
vona að þjóðin taki bók-
inni fagnandi enda kær-
komin bók öllum sem vilja
hafa einhverja hugmynd
um hvaðan þeir koma.
Hönnun bókarinnar og efn-
istök eru með þeim hætti
að reynt er að fanga tíðar-
andann hverju sinni þannig
að upplifun lesandans verði
meiri.“
Lesendur fyrri bóka í ritröðinni
sem kunnugir eru Öldunum sem
Valdimar faðir Jóhanns gaf út
hljóta að spyrja hvort fyrirhugað
sé að halda áfram útgáfu af þessu
tagi? „Það hefur lengi verið
draumur minn að feta í fótspor
föður míns sem gaf á sínum tíma
út Aldirnar. Mig langar að gefa út
vandaðri og fyllri bækur um sögu
þjóðarinnar frá upphafi til okkar
daga. Aldirnar hafa opnað tugþús-
undum Íslendinga horfinn heim
en þær voru auðvitað barn síns
tíma og kröfurnar á öllum sviðum
miklu meiri en áður og bókargerð
hefur tekið stórstígum framförum
frá þeim tíma sem faðir minn
réðst í útgáfu fyrstu Aldarinnar.
Hann lagði allt undir og ég ákvað
að gera það líka núna löngu seinna.
Vonandi hef ég kjark til að ráðast
íE18. öldina áður en langt um líður
en hver bók á sér mjög langan
aðdraganda í vinnslu þó hann sé
ótrúlega skammur miðað við
umfang verksins. Kannski auðn-
ast mér að gefa út
í söguna alla áður en ég set upp
tærnar.“
Í bókinni er saga íslensku þjóð-
arinnar rakin ár frá ári. Fjöldi sér-
fræðinga ritar yfirlitsgreinar um
margvísleg efni og er víða drepið
niður í umfjöllun um daglegt líf og
sögulega atburði. Um eitt þúsund
myndir opna lesendum horfinn
heim, þar sem lífsbaráttan var
gríðarlega hörð en nútíminn samt
innan seilingar.
Aðalhöfundur þessa bindis er
Bjarki Bjarnason sem hefur á
undanförnum árum viðað að sér
miklu efni í verkið. Aðalritstjóri
Íslands í aldanna rás 1800–1899 er
Sigríður Harðardóttir og mynda-
ritstjóri Margrét Tryggvadóttir.
Um hönnun bókarinnar, útlit og
umbrot sá Jón Ásgeir Hreinsson
en Guðmundur Þorsteinsson gekk
frá umbrotinu til prentunar.
Í bókinni er greint frá stórvið-
burðum og merkistíðindum, nátt-
úruhamförum, skipssköðum og
sakamálum. sjálfstæðisbaráttu og
þjóðfrelsismálum Íslendinga og
kvenréttinda- og verkalýðsbaráttu
eru gerð góð skil, sagt er frá menn-
ingu, listum og þróun íslenskunn-
ar, baráttunni við fátækt
og hungur, sérkennileg-
um skoðunum og deil-
um. Í upphafi hvers árs
er atburðaannáll auk
veðurlýsingar ársins.
Einnig er gerð grein
fyrir helstu fréttum frá
útlöndum.
Gríðarleg vinna var
lögð í að gera bókina sem
best úr garði og eftirtald-
ir sérfræðingar rituðu
yfirlitsgreinar um þróun
mála á ýmsum sviðum á
19. öld: Ragnheiður Gyða
Jónsdóttir, Jón Þ. Þór,
Lýður Björnsson, Andrés
Arnalds, Ari Trausti Guð-
mundsson, Árni Daníel
Júlíusson, Bjarki Svein-
björnsson, Fríður Ólafsdótt-
ir, Guðjón Friðriksson, Guð-
mundur Andri Thorsson,
Hrafnhildur Schram, Ingi-
mar Jónsson, Kristín Ástgeirs-
dóttir, Loftur Guttormsson, Már
Jónsson, Páll V. Bjarnason, Silja
Aðalsteinsdóttir, Sveinn Einars-
son og Trausti Jónsson. Í bókinni
eru fleiri myndir frá 19. öld en
áður hafa birst á einum stað, bæði
ljósmyndir eftir að sú tækni
kemur fram um miðja öldina,
stungumyndir, teikningar og mál-
verk, auk nýrri mynda af gripum
og stöðum. Öflun þeirra var mikið
verk og leitaði Margrét víða fanga,
bæði í einkasöfnum og opinberum
söfnum. Ýtarlegar mynda-, nafna-
og atriðisorðaskrár eru í bókinni
og gera hana þar með mjög
aðgengilega fyrir fróðleiksfúst
fólk á öllum aldri.
Ísland í aldanna rás 1800–1899
er prentuð og bundin í Prent-
smiðjunni Odda. Hún er seld á sér-
stöku kynningarverði til áramóta.
Lesið upp úr jólabókunumStend ég oft einn hjá Stjörnu,
Stjarna mín vill það gjarna.
Stjörnu ann ég nú einni,
indælt barn er hún Stjarna.
Það stirnir á hana Stjörnu,
Stjarna er vökur á hjarni.
Stjörnu strákarnir girnast,
þó Stjarna mín sé með barni.