Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.11.2006, Qupperneq 74

Fréttablaðið - 23.11.2006, Qupperneq 74
Í gær kom út hjá forlaginu JPV útgáfu stórbókin Ísland í aldanna rás 1800–1899 en á árunum 2000–2002 gaf forlagið út sögu 20. aldar- innar í sama bókaflokki og naut hún fádæma vinsælda meðal almennings og seldist í þúsundum eintaka, fyrst í þremur bindum og loks í einu. Nýja ritröðin var í stóru broti, ríkulega myndskreytt en dró dám af stórvirkinu Aldirnar en útgáfa þeirra var að renna sitt skeið á forlagi Iðunnar þegar nýja ritröð- in hóf göngu sína. Það var Valdi- mar Jóhannsson sem stóð að þeirri útgáfu í upphafi og hafði hún gríð- arlegt uppfræðslugildi um sögu fyrri tíðar meðal almennings í nokkrar kynslóðir. Það var síðan sonur Valdimars, Jóhann Páll, sem tók sig til og gaf út nýju ritröðina: spurður um stærð þessa útgáfuverks sagði Jóhann í viðtali við Fréttablaðið í gær: „Fyrsta prentun bókarinnar er 5.000 eintök en þetta er stærsta og dýrasta útgáfa sem ég hef nokkru sinni lagt út í. Um 540 blaðsíður í stóru broti með yfir 1.000 mynd- um. Það dytti engum útgefanda í hug að ráðast í svona verk ef hann óraði fyrir hversu mikil vinna og kostnaður er því sam- fara en ég kann sem betur fer ekki á Excel og hef aldrei gert kostnaðaráætlun um nokkra bók í þau rúmu 30 ár sem ég hef fengist við bókaútgáfu. Við höfum ekki tekið saman útgáfukostnaðinn við þessa bók en hann hleyp- ur á tugum milljóna en ég vona að þjóðin taki bók- inni fagnandi enda kær- komin bók öllum sem vilja hafa einhverja hugmynd um hvaðan þeir koma. Hönnun bókarinnar og efn- istök eru með þeim hætti að reynt er að fanga tíðar- andann hverju sinni þannig að upplifun lesandans verði meiri.“ Lesendur fyrri bóka í ritröðinni sem kunnugir eru Öldunum sem Valdimar faðir Jóhanns gaf út hljóta að spyrja hvort fyrirhugað sé að halda áfram útgáfu af þessu tagi? „Það hefur lengi verið draumur minn að feta í fótspor föður míns sem gaf á sínum tíma út Aldirnar. Mig langar að gefa út vandaðri og fyllri bækur um sögu þjóðarinnar frá upphafi til okkar daga. Aldirnar hafa opnað tugþús- undum Íslendinga horfinn heim en þær voru auðvitað barn síns tíma og kröfurnar á öllum sviðum miklu meiri en áður og bókargerð hefur tekið stórstígum framförum frá þeim tíma sem faðir minn réðst í útgáfu fyrstu Aldarinnar. Hann lagði allt undir og ég ákvað að gera það líka núna löngu seinna. Vonandi hef ég kjark til að ráðast íE18. öldina áður en langt um líður en hver bók á sér mjög langan aðdraganda í vinnslu þó hann sé ótrúlega skammur miðað við umfang verksins. Kannski auðn- ast mér að gefa út í söguna alla áður en ég set upp tærnar.“ Í bókinni er saga íslensku þjóð- arinnar rakin ár frá ári. Fjöldi sér- fræðinga ritar yfirlitsgreinar um margvísleg efni og er víða drepið niður í umfjöllun um daglegt líf og sögulega atburði. Um eitt þúsund myndir opna lesendum horfinn heim, þar sem lífsbaráttan var gríðarlega hörð en nútíminn samt innan seilingar. Aðalhöfundur þessa bindis er Bjarki Bjarnason sem hefur á undanförnum árum viðað að sér miklu efni í verkið. Aðalritstjóri Íslands í aldanna rás 1800–1899 er Sigríður Harðardóttir og mynda- ritstjóri Margrét Tryggvadóttir. Um hönnun bókarinnar, útlit og umbrot sá Jón Ásgeir Hreinsson en Guðmundur Þorsteinsson gekk frá umbrotinu til prentunar. Í bókinni er greint frá stórvið- burðum og merkistíðindum, nátt- úruhamförum, skipssköðum og sakamálum. sjálfstæðisbaráttu og þjóðfrelsismálum Íslendinga og kvenréttinda- og verkalýðsbaráttu eru gerð góð skil, sagt er frá menn- ingu, listum og þróun íslenskunn- ar, baráttunni við fátækt og hungur, sérkennileg- um skoðunum og deil- um. Í upphafi hvers árs er atburðaannáll auk veðurlýsingar ársins. Einnig er gerð grein fyrir helstu fréttum frá útlöndum. Gríðarleg vinna var lögð í að gera bókina sem best úr garði og eftirtald- ir sérfræðingar rituðu yfirlitsgreinar um þróun mála á ýmsum sviðum á 19. öld: Ragnheiður Gyða Jónsdóttir, Jón Þ. Þór, Lýður Björnsson, Andrés Arnalds, Ari Trausti Guð- mundsson, Árni Daníel Júlíusson, Bjarki Svein- björnsson, Fríður Ólafsdótt- ir, Guðjón Friðriksson, Guð- mundur Andri Thorsson, Hrafnhildur Schram, Ingi- mar Jónsson, Kristín Ástgeirs- dóttir, Loftur Guttormsson, Már Jónsson, Páll V. Bjarnason, Silja Aðalsteinsdóttir, Sveinn Einars- son og Trausti Jónsson. Í bókinni eru fleiri myndir frá 19. öld en áður hafa birst á einum stað, bæði ljósmyndir eftir að sú tækni kemur fram um miðja öldina, stungumyndir, teikningar og mál- verk, auk nýrri mynda af gripum og stöðum. Öflun þeirra var mikið verk og leitaði Margrét víða fanga, bæði í einkasöfnum og opinberum söfnum. Ýtarlegar mynda-, nafna- og atriðisorðaskrár eru í bókinni og gera hana þar með mjög aðgengilega fyrir fróðleiksfúst fólk á öllum aldri. Ísland í aldanna rás 1800–1899 er prentuð og bundin í Prent- smiðjunni Odda. Hún er seld á sér- stöku kynningarverði til áramóta. Lesið upp úr jólabókunumStend ég oft einn hjá Stjörnu, Stjarna mín vill það gjarna. Stjörnu ann ég nú einni, indælt barn er hún Stjarna. Það stirnir á hana Stjörnu, Stjarna er vökur á hjarni. Stjörnu strákarnir girnast, þó Stjarna mín sé með barni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.