Fréttablaðið - 23.11.2006, Qupperneq 82
Meðal þeirra gjafa sem Tom Cruise og
Katie Holmes fengu í brúðargjöf var
knattspyrnukennsla frá sjálfum David
Beckham en frá þessu er greint í
breska blaðinu The Sun. Þau Connor
og Isabella sem Cruise ættleiddi
ásamt fyrri eiginkonu sinni, Nicole
Kidman, eru miklir aðdáendur
Beckhams og greinir heimildar-
maður The Sun frá því að David
hlakki mikið til að sýna þeim nokk-
ur velvalin brögð. Sjálfur hefur
knattspyrnukappinn vísað þeim
orðrómi á bug að hann ætli
sér að verða leikari þegar
ferlinum á sparkvellinum
lýkur.
Slúðurblöðin hafa lagt
nótt við dag til þess að grafa
upp hvað fram fór bak við
luktar dyr 15. aldar kastalans í ítalska
smábænum Bracciano á laugardaginn
þegar Cruise og Holmes gengu í hjóna-
band. Slúðursíðan Contactmusic.
com greinir frá því að Cruise
hafi endurskapað atriði úr kvik-
myndinni Top Gun fyrir sína
heittelskuðu þegar plötusnúð-
urinn Mark Ronson lék sígildu
ballöðuna You‘ve lost that
Lovin‘ Feelin með Righteous
Brothers. Maverick söng þetta
fyrir ástkonu sína Charlie í mynd-
inni og sagði leikkonan Leah
Rimini að Holmes hefði
flissað eins og smástelpa
en notið hvers augnabliks.
Beckham kennir börnum Toms Cruise
Fatahönnunarkeppni grunn-
skólanna, Stíll 2006, var
haldin um síðustu helgi og
er ekki hægt að segja annað
en að hugmyndaauðgi hafi
verið þar áberandi.
Þema keppninnar var Móðir jörð
og þurftu keppendur að hanna
fatnað, förðun og hárgreiðslu.
Keppnin var haldin í íþróttahús-
inu í Smáranum og tóku þátt í
henni unglingar frá 44 félagsmið-
stöðvum.
Það var félagsmiðstöðin Friður
í Skagafirði sem bar sigur úr
býtum og fékk einnig verðlaun
fyrir bestu hárgreiðsluna. Hóllinn
í Kópavogi lenti í öðru sæti og
fékk aukaverðlaun fyrir bestu
vinnumöppuna.
Ljósmyndari Fréttablaðins var
staddur á keppninni og festi
nokkra búninganna á filmu. Það er
greinilegt að það leynast nokkrir
efnilegir hönnuðir í grunnskólun-
um.
Heidi Fleiss, hóru-
mamman þekkta,
vísar á bug fréttum
breska blaðsins Daily
Star um að Mike Tyson
gæti hugsanlega orðið
næsti vændiskarl hjá
henni. Fleiss hefur keypt
sextíu hektara land fyrir
utan Las Vegas þar sem hún
hyggst stofna Heidi Stud
Farm eða Folabúgarð Fleiss og
Daily Star greindi frá því að Mike
Tyson yrði hugsanlega einn af þeim sem
kostur væri á að kaupa. Talsmaður Fleiss,
Charles Lago, sagði í samtali við Las Vegas-
blaðið Rewiev að fréttir Daily Star um
Tyson væru bölvað rugl.
Járnmaðurinn ekki hórkarl hjá Fleiss
Söngkonan Védís Hervör og
Bandaríkjamaðurinn Seth Sharp
koma fram á tónleikum undir
yfirskriftinni Silver á Græna
hattinum á Akureyri á laugar-
dag.
Silver, sem er í anda „Aint Mis-
behavin“ og „Smokey Joe´s Cafe“,
er dagskrá með bæði íslenskum
og amerískum dægur- og þjóð-
lagaperlum sem tvinnast saman
og segja sögu af von, ást, skemmt-
an og fleiru. Þar er m.a. að finna
fallega blöndu af Sofðu unga ástin
mín og Summertime ásamt fönkí
útgáfu af lagi Fats Waller Viper´s
Drag/Reefer Song í bland við
lagið Í bláum skugga sem Stuð-
menn eiga heiðurinn að.
Miðaverð á tónleikana er 1.500
kr. og byrjar miðasala klukku-
tíma fyrir tónleika, eða klukkan
20.00. Lokatónleikar þeirra Véd-
ísar og Seths verða svo með hátíð-
legum blæ í Salnum í Kópavogi
16. desember kl.20.30. Frekari
upplýsingar er að finna á www.
salurinn.is en þar er einnig hægt
að kaupa miða.
Silver á Akureyri
Justin Hawkins, fyrrverandi
söngvari bresku hljómsveitarinn-
ar The Darkness, ætlar að hefja
vinnu við sína fyrstu sólóplötu á
næstunni.
„Ég ætla að taka mér gott frí og
gera hluti sem ég hef gaman af
eins og að fara á skauta. Síðan
ætla ég að byrja á sólóplötu,“ sagði
hann.
Hawkins er nýkominn úr með-
ferð vegna áfengis- og eiturlyfja-
notkunar og ætlar að láta að sér
kveða í tónlistarbransanum á
nýjan leik.
Vill gera
sólóplötu
Hljómsveitin Mannakorn heldur
tónleika í Seltjarnarneskirkju á
fimmtudagskvöld til að kynna plöt-
una Jól með Mannakornum.
Mannakorn, sem er skipuð
Magnúsi Eiríkssyni og Pálma Gunn-
arssyni ásamt góðum gestum, mun
halda tónleika í nokkrum kirkjum
víða um land og verður Seltjarnar-
nes fyrsti viðkomustaðurinn.
Á plötunni eru sígildar jólaperl-
ur í útgáfu Mannakorna, þar á
meðal lagið Gleði- og friðarjól sem
vann huga og hjörtu landsmanna
þegar það kom út fyrir tuttugu
árum. Hugljúf jólastemning svífur
því yfir vötnum á þessari fallegu
plötu.
Tónleikarnir í Seltjarnarnes-
kirkju hefjast klukkan 20.00 og er
miðaverð 2.500 krónur.
Mannakorn
spila í kirkju