Fréttablaðið - 23.11.2006, Page 88
Meistaradeild Evrópu:
DHL-deild karla:
Evrópuk. karla í körfub.:
Evrópuk. kvenna í körfub.:
Þýska úrvalsdeildin
Danska úrvalsdeildin
Njarðvík tapaði í gær
sínum þriðja leik í jafnmörgum
leikjum í sínum riðli í Áskorenda-
keppni Evrópu. Í þetta sinn gegn
Tartu Rock frá Eistlandi og höfðu
gestirnir sigur, 82-78.
Njarðvík var yfir stærstan
hluta úr leiknum en leikmenn
Tartu Rock höfðu betur á
lokasprettinum. Friðrik Stefáns-
son var stigahæstur Njarðvíkinga
með 22 stig og tók hann 17
fráköst. Jeb Ivey skoraði
sömuleiðis 22 stig.
Aðeins sex leikmenn skoruðu
fyrir Njarðvík í gær og munaði
um minna að Brenton Birming-
ham átti ekki sinn besta leik fyrir
liðið. Hann skoraði fimm stig í
leiknum.
Þriðja tap
Njarðvíkinga
Haukar töpuðu í gær
fyrir Parma í Evrópukeppni
kvenna í körfubolta á Ítalíu, 102-
86. Þrátt fyrir tapið stóðu Hauka-
stúlkur sig gífurlega vel og eru
þetta langbestu úrslit þeirra í Evr-
ópukeppninni frá upphafi, hvað þá
á útivelli. Hefur liðið aldrei skor-
að jafn mörg stig í sama leiknum.
Haukastúlkur komu mjög
ákveðnar til leiks og voru yfir í
stöðunni 10-8 en þá hafði Unnur
Tara Jónsdóttir skorað öll stig liðs-
ins. Parma er taplaust enn sem
komið er á Ítalíu og því um gríðar-
lega sterkt lið að ræða.
Staðan var 56-43 í hálfleik en
aftur komu Haukarnir grimmir til
leiks og skoruðu fyrstu sjö stig
fjórðungsins. Í fjórða leikhluta
náðu þær svo aftur góðum leik-
kafla þegar þær skoruðu tólf stig í
röð.
Ifeoma Okonwo var stigahæst
Haukanna með 25 stig en þar af
komu 16 þeirra í síðasta fjórð-
ungnum. Tveir ungir leikmenn,
Unnur Tara og Sigrún Ámunda-
dóttir áttu einnig góðan leik en
Haukar voru án tveggja byrjunar-
liðsmanna sem gátu ekki ferðast
með liðinu.
„Þetta var hörkuleikur og við
spiluðum vel,“ sagði Ágúst Björg-
vinsson þjálfari Hauka eftir leik.
„Við vorum í rútu í tíu klukku-
tíma í gær en samt léku þær af
miklum krafti. Þetta er klárlega
einn af betri leikjum sem við
höfum spilað. Dómarinn var til að
mynda ekki að hjálpa okkur í
kvöld, þeir voru ef til vill ekki til-
búnir í svona leik.“
Haukar eiga nú tvo heimaleiki
eftir og einn útileik. Ágúst segir
að það verði þó erfitt að ná í stig í
riðlinum.
„Markmiðið er að bæta sig með
hverjum leik og ef heppnin er með
okkur getum við stolið sigri.“
Frábær leikur Hauka á Ítalíu
„Síðustu fimmtán mín-
úturnar í fyrri hálfleik voru ömur-
legar og maður fer að setja spurn-
ingarmerki við okkar leik þessar
fimmtán mínútur. Ekki er það þrek-
ið. Menn fara bara að spila eins og
einstaklingar og ef menn fara ekki
að gera sér það ljóst núna að menn
geta ekkert sem einstaklingar held-
ur bara sem lið, þá töpum við bara
einu sinni í viðbót,“ sagði Rúnar
Sigtryggsson þjálfari Akureyrar
eftir leikinn gegn Fram í gær en
Fram gerði út um leikinn á síðustu
mínútum fyrri hálfleiks.
Leikurinn endaði 32-29, fyrir
Fram og Rúnar var ekki í vafa um
að þessi kafli hafi gert útslagið.
„Þetta er þriðji leikurinn í röð sem
svona gerist. Ég veit ekki hvort
menn fá svona mikið álit á sjálfum
sér. Menn halda að þeir geti þetta
einir og það fer bara allt í rugl. Við
höfum því miður ekki það sterka
leikmenn sem geta borið þetta lið
uppi en við gerum þetta helvíti vel
þegar við vinnum saman.“
Leikurinn fór fjörlega af stað í
Safamýrinni í gær og það var jafnt
á öllum tölum í upphafi. Um miðjan
fyrri hálfleik komst Akureyri yfir í
leiknum, 8-9, en þá breyttu Framar-
ar um varnarleik og tóku við það
góðan kipp. Fram skoraði fimm
mörk í röð og breyttu stöðunni í 13-
9. Eftir það varð ekki aftur snúið og
Fram náði mest átta marka forskoti
í leiknum, 19-11.
Akureyringar skoruðu síðasta
mark hálfleiksins og staðan í hálf-
leik var 19-12, Fram í vil.
Akureyri byrjaði síðari hálfleik-
inn betur og náði að saxa á forskot
heimamanna. Það gekk þó erfið-
lega hjá gestunum að minnka mun-
inn um meira en fjögur mörk.
Framarar slökuðu hins vegar mikið
á þegar á leið síðari hálfleikinn og
leikur þeirra virkaði á köflum hálf
kæruleysislegur. Leikurinn endaði
þó 32-29 fyrir Fram og sigur liðsins
var í raun nokkuð öruggur.
„Þetta var alltof tæpt miðað við
hvað við vorum með góða stöðu.
Við slökuðum of fljótt á og það var
kæruleysi í okkar leik. Við breytt-
um vörninni í fyrri hálfleik og ég
held að það hafi skilað okkur sigri
hér í kvöld. Sóknarleikurinn var
líka mjög góður í fyrri hálfleik og
fyrstu tíu mínúturnar í síðari hálf-
leik. Við vorum að spila gegn einni
bestu vörn í deildinni, við skulum
ekki gleyma því.“
Fram gerði út um leikinn í fyrri hálfleik
Chelsea tryggði sig áfram
í næstu umferð Meistaradeildar-
innar í gær þrátt fyrir tap í Þýska-
landi fyrir Werder Bremen. Liver-
pool tryggði sér sigur í sínum riðli,
sigraði PSV 2-0. Hið sama gerði
Valencia í sínum riðli.
Leikurinn byrjaði ágætlega í
Þýskalandi þar sem Michael Essi-
en og John Obi Mikel áttu ágætar
tilraunir að marki. Það kom reynd-
ar á óvart að sá síðarnefndi var í
byrjunarliðinu en Jose Mourinho
ákvað að hvíla Andryi Shev-
shenko.
En leikmenn Werder Bremen
gerðu sig líklega til að skora fyrsta
mark leiksins og það kom svo á 27.
mínútu. Per Mertsacker var þar
að verki með skalla eftir horn-
spyrnu Torstens Fring sem átti
reyndar afmæli í gær.
Þegar um stundarfjórðungi var
lokið af síðari hálfleik liðanna
leiddist Mourinho þófið og skipti
inn Shevchenko og Arjen Robben
fyrir Drogba og John Obi Mikel.
Það bar þó engan árangur og fögn-
uðu Þjóðverjarnir dýrmætum
sigri. Chelsea er engu að síður
komið áfram í 16-liða úrslit en það
verður mikið undir í leik Barcelona
og Werder Bremen í byrjun næsta
mánaðar.
Eiður Smári Guðjohnsen var í
byrjunarliði Barcelona eins og
búist var við og byrjuðu Evrópu-
meistararnir á besta mögulega
máta er Ludovic Giuly kom
Börsungum yfir strax á fimmtu
mínútu. Eiður Smári átti svo nokk-
ur ágæt færi í upphafi síðari hálf-
leiks en tókst ekki að skora. Það
kom þó ekki að sök þar sem Andr-
es Iniesta skoraði annað mark
Börsunga á 65. mínútu. Fylgdi
hann eftir góðu skoti Deco sem
markvörður Levski varði. Eiður
fékk fleiri góð tækifæri til að
skora en heppnin var ekki með
honum í þetta skiptið.
Ekkert mark var skorað í fyrri
hálfleik Liverpool og PSV Eind-
hoven í leik toppliðanna í C-riðils.
Þar var helst að frétta að tveir
leikmenn Liverpool fóru meiddir
af velli, þeir Mark Gonzales og
Xabi Alonso. Sá síðarnefndi
meiddist á mjöðm en Gonzales
reif vöðva aftan í læri.
PSV hafði ekki fengið á sig
mark í næstum tólf klukkustundir
í öllum keppnum þegar Steven
Gerrard kom Liverpool yfir í síð-
ari hálfleik. Peter Crouch bætti
svo um betur og tryggði Liverpool
sigurinn og þar með toppsætið í
riðlinum.
Bordeaux fór létt með Galat-
asaray í hinum leik riðilsins og
vann 3-1 sigur en fyrir leikinn
höfðu Frakkarnir ekki skorað
mark í riðlinum. Þeir fara því í
UEFA-keppnina.
Valencia tryggði sér sigur í D-
riðli með 2-0 sigri á Olympiakos.
Roma er í ágætri stöðu í öðru sæti
en eiga reyndar Valencia í síðustu
umferðinni.
Fyrsti leikur kvöldsins var í
Moskvu þar sem heimamenn í
Spartak gerðu 2-2 jafntefli við
þýska stórveldið Bayern München.
Radoslav Kovac jafnaði metin
fyrir heimamenn eftir að Claudio
Pizzaro kom Þjóðverjunum yfir.
Þetta var annað stig Spartak í riðl-
inum sem á veika von um að ná í
þriðja sæti riðilsins.
Í hinum leik B-riðils vann Inter
lið Sporting frá Lissabon og eru
þar með Bayern og Inter komin
áfram í 16-liða úrslit en liðin mæt-
ast í Þýskalandi í lokaumferð
riðlakeppninnar.
Fimmtu umferð Meistaradeildarinnar lauk í gær með átta leikjum. Werder Bremen sigraði slakt lið Chelsea
1-0 og Barcelona vann sinn leik auðveldlega. Liverpool vann PSV Eindhoven, 2-0.