Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 90
Þegar spjallsíður breskra
fjölmiðla eru skoðaðar má sjá að
stuðningsmenn West Ham eru
flestir hverjir ánægðir með að
Eggert Magnússon og Björgólfur
Guðmundsson hafi keypt meiri-
hluta í félaginu. Flestir virðast
þeir gera sér grein fyrir að Eggert
hefur góðan bakgrunn í knatt-
spyrnuheiminum. Margir hverjir
virðast einfaldlega vera ánægðari
með að Eggert að hafi keypt félag-
ið en ekki íranski kaupsýslumað-
urinn Kia Joorabchian sem flestir
eru sammála um að hafi verið ansi
skuggalegur náungi.
Á heimasíðu BBC, bbc.co.uk, er
hægt sjá viðbrögð margra stuðn-
ingsmanna West Ham og annarra
félaga við þessum kaupum og þar
segir einn West Ham-maður m.a.:
„Við vorum aldrei líklegir til að
vinna neitt með gömlu stjórnina
við lýði, þrátt fyrir að hafa
tryggustu stuðningsmenn í land-
inu. En nú getum við risið úr eldin-
um eins og Fönix,“ og vitnar stuðn-
ingsmaðurinn þar í fuglinn forna.
Annar stuðningsmaður bætti
við: „Eftir viku af angist fannst
loksins skynsamleg lausn á mál-
inu. Ég óttaðist að Joorabchian
myndi kaupa félagið en sem betur
fer tók Brown skynsamari kost-
inn. Ég get ekki beðið eftir leikn-
um á laugardaginn, við skulum
þakið rifna af vellinum í söng.“
Ásjóna Eggerts er mörgum
stuðningsmönnum hugleikin og
einn stuðningsmaður West Ham
komst að orði: „Ég er ekki frá því
að nýi eigandi liðsins líti út eins og
geimvera, en ef hann kemur með
pening inn í félagið og nær árangri
þá má hann vera frá Betelgeuse
mín vegna,“ og bætti við: „Mér
finnst að hann ætti að skaffa fríu
kexi fyrir stuðningsmenn í hálf-
leik.“ The Guardian gekk einnig
svo langt í að líkja Eggerti við
bresku teiknimyndapersónuna
Mekon.
Blaðamaður rakst ekki á neinn
stuðningsmann West Ham sem
var óánægður með nýju eigendur
félagsins og af þeim tveimur kost-
um sem voru í boði, Eggert og
Joorabchian, virðast flestir ef ekki
allir vera sammála um að Eggert
hafi verið betri kostur. Einn tók
það þó fram að hann hefði viljað
að Tony Cottee, gamla West Ham
kempan, hefði keypt félagið en
það var lengi vel orðrómur um að
hann ætlaði sér það.
Við þetta má svo bæta að Egg-
ert var upphaflega í samvinnu við
Tony Cottee en snemma slitnaði
upp úr því samstarfi í viðskipta-
ferlinu.
Eggert var skynsamari lausnin á málinu
Varnarmaður West Ham,
Anton Ferdinand, var í gær ákærð-
ur af lögreglu vegna slagsmála en
fyrr um daginn höfðu borist fregn-
ir af því að Roy Carroll, markvörð-
ur liðsins, væri farinn í meðferð
vegna áfengis- og spilafíknar.
Gærdagurinn var fyrsti dagur-
inn eftir að tilkynnt var að WH
Holding, eignarhaldsfélag í eigu
Björgólfs Guðmundssonar og Egg-
erts Magnússonar, hefði keypt 83
prósent hlutabréfa í félaginu. Egg-
ert verður næsti stjórnarformað-
ur félagsins en hann er sjálfur
mikill reglu- og bindindismaður.
Hann er varla hrifinn af slíku hátt-
erni hjá sínum leikmönnum.
Ferdinand var í síðasta mánuði
handtekinn eftir að hann lenti í
slagsmálum fyrir utan skemmti-
staðinn Faces í Ilford-hverfinu í
austurhluta Lundúna, þar sem
West Ham er staðsett. Honum var
svo birt ákæra um líkamsárás og
ofbeldisfulla hegðan í gær og mun
fara fyrir dómara á föstudaginn
kemur.
Hann er sem kunnugt er yngri
bróðir Rio Ferdinand, landsliðs-
manns og liðsmann Manchester
United. Sjálfur leikur Anton með
landsliði Englands skipuðu leik-
mönnum 21 árs og yngri.
Roy Carroll er landsliðsmark-
vörður Norður-Írlands og hefur
undanfarið glímt við samskonar
vandamál og einn frægasti landi
hans, George Best. Báðir léku þeir
með Manchester United í drjúgan
tíma en Carroll kom frítt frá Unit-
ed í fyrra.
Carroll mun vera vafinn veð-
málaskuldum og er sagður meira
að segja skulda liðsfélaga sínum
hjá West Ham dágóða upphæð. Þá
hafa einnig borist fregnir af því að
hann hafi drukkið stanslaust í tvo
sólarhringa. Hann hefur undan-
farið verið til meðferðar á stofnun
sem sérhæfir sig í slíkum vanda-
málum en hann er væntanlegur
aftur til æfinga hjá félaginu á
morgun.
„Við erum meðvitaðir um
vandamál Roy og styðjum hann á
hvern þann hátt sem við getum,“
sagði Alan Pardew, knattspyrnu-
stjóri West Ham.
Annars var það að frétta af
West Ham að Hayden Mullins
hefur skrifað undir nýjan fjögurra
ára samning við félagið. Þá halda
nokkrir fjölmiðlar því fram að
Pardew hyggist leggja fram tilboð
í Shaun Wright-Phillips, leikmann
Chelsea, nú þegar nýtt fjármagn
er komið inn í félagið. Hann reyndi
að fá Wright-Phillips lánaðan frá
Chelsea í haust en þeirri bón var
hafnað. Chelsea mun þó vera til-
búið að taka á móti tilboðum í leik-
manninn.
Fyrsti dagur Eggerts Magnússonar eftir að kaupin á West Ham voru tilkynnt var skrautlegur. Í gær var sagt
frá því að Roy Carroll glímdi við áfengis- og spilafíkn og Anton Ferdinand hefði verið ákærður af lögreglu.
Þrír íslenskir viðskipta-
menn verða í stjórn enska úrvals-
deildarfélagsins West Ham sem
Björgólfur Guðmundsson og Egg-
ert Magnússon hafa fest kaup á.
Þeir eru Guðmundur Oddsson
hæstaréttarlögmaður, Sighvatur
Bjarnason forstjóri og Þór Kristj-
ánsson hjá Samson.
Sighvatur er ötull stuðningsmað-
ur West Ham og fær nú veigamikið
hlutverk innan félagsins. Hann var
þó ekki með Björgólfi og Eggerti í
WH Holding, eignarhaldsfélaginu
sem var komið á fót til að gera til-
boð í félagið. Guðmundur og Þór
eru hins vegar hluthafar í félaginu.
„Jú, þetta mun vera rétt,“ sagði
Guðmundur sem hefur sjálfur
verið þekktur fyrir knattspyrnu-
iðkun en hann býr nú í Lundúnum
þar sem hann er útibússtjóri lög-
mannaskrifstofunnar Logos. Hann
lék með Keflavík til loka tímabils-
ins 1999 þegar hann hætti, 24 ára
gamall. Hann hefur þó leikið
nokkra leiki með Deiglunni í 3.
deildinni síðan þá.
„Þetta verður afar skemmtilegt
verkefni enda er algjörlega bann-
að að gera eitthvað í þessa veruna
í London án þess að ég fái að vera
með,“ sagði hann og hló. Hann er
eðli málsins samkvæmt mikill
knattspyrnuáhugamaður.
„Ég er West Ham-maður í dag.
Var reyndar hér áður fyrr stuðn-
ingsmaður Liverpool en hef ákveð-
ið að leggja „púllarann“ í dvala.
Nú mun fjölskylda mín sjálfsagt
afneita mér.“
Hann segist þegar búinn að
skreyta skrifstofu sína með West
Ham-varningi. „Ég fór upp á
Upton Park fyrr í dag þar sem ég
hitti Eggert og fór aftur heim
klyfjaður varningi.“
Það verða því fjórir Íslendingar
í stjórn félagsins auk tveggja
Breta sem gegna trúnaðarstörfum
hjá félaginu.
„Á endanum er þetta eins og að
stýra hverju öðru fyrirtæki. Það
eru þó ýmis sérsjónarmið sem eiga
við knattspyrnufélög en ef maður
nær árangri í íþróttinni gerir maður
það líka á fjármálasviðinu. Menn
hafa miklar væntingar og metnað
til að gera vel enda er ekki verið að
tjalda til einnar nætur.“
Þrír Íslendingar í stjórn með Eggerti
Dario Silva, fyrrum
landsliðsmaður Uruguay sem
missti hægri fótinn í umferðar-
slysi fyrir tveimur mánuðum,
hefur látið hafa eftir sér að hann
hafi mikinn áhuga á að taka þátt á
ólympíuleikunum.
Silva, sem er 33 ára gamall,
var mikill markaskorari og segist
ekki alveg til í að kveðja íþrótta-
heiminn og stefnir á að snúa sér
að róðri. „Ég hef mikinn tíma
núna til að einbeita mér að róðri.
Ég veit svo sem ekkert hvort ég
get unnið en ég ætla að keppa.
Það væri mjög erfitt fyrir mig
keppa á ólympíuleikunum árið
2008 en ég stefni á leikana í
London árið 2012,“ sagði Silva.
Stefnir á Ólymp-
íuleikana
Louis Saha bað samherja
sína hjá Manchester United
afsökunar fyrir að hafa klúðrað
vítaspyrnunni gegn Celtic á
miðvikudaginn. Frakkinn knái
klúðraði einnig dauðafæri í
leiknum þegar hann hélt að hann
væri rangstæður en svo var ekki.
„Ég bað félaga mína afsökun-
ar, en þetta tilheyrir allt fortíð-
inni núna og því verður ekki
breytt hér eftir. Þúsund afsökun-
arbeiðnir breyta því ekki. Ég er
líka mjög leiður yfir frammistöðu
minni. Við vorum hins vegar
mjög hissa á að dómarinn hafi
dæmt aukaspyrnuna sem réð
úrslitum,“ sagði Saha.
Saha hefur beð-
ist afsökunar
Bretar urðu margir
hverjir hvumsa yfir þeim
fregnum sem bárust af því að
kostnaður vegna Ólympíuleik-
anna í London árið 2012 sé nú
þegar langt yfir áætlun. Ken
Livingstone borgarstjóri segir þó
að ekkert sé að óttast, leikarnir
munu skila hagnaði.
„Þetta er allt samkvæmt
áætlun,“ sagði hann en bygging
Ólympíuleikvangsins er nú talin
kosta 10 milljarða punda eða 1330
milljarður króna.
ÓL 2012 mun
skila hagnaði