Fréttablaðið - 23.11.2006, Blaðsíða 95
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Jón Þór Birgisson, betur þekktur
sem Jónsi í Sigur Rós, og Alex
Somers, kærasti hans, gefa út
myndabókina Riceboy Sleeps á
morgun. Samhliða útgáfunni verða
þeir með sýningu í Galleríi Turp-
entine, þar sem gefur að líta mynd-
ir úr bókinni ásamt vídeóverkum.
Sýningin stendur yfir um helgina
og ýtir bókinni þannig úr vör.
„Við erum búnir að vinna að
þessu verkefni í svona eitt og hálft
ár og okkur þykir frekar vænt um
bókina,“ sagði Jónsi í samtali við
Fréttablaðið. „Við söfnuðum göml-
um bókum og myndum sem við
fundum á flóamörkuðum og á net-
inu. Og svo teiknuðum við alls
konar myndir sjálfir,“ sagði Jónsi,
sem kveðst hafa teiknað frá því að
hann var smábarn. Jónsi og Alex
hafa ásamt öðrum meðlimum
Sigur Rósar einnig teiknað og
hannað ýmislegt tengt hljómsveit-
inni.
Jónsi segir ekkert sérstakt
þema einkenna bókina. „Þetta kom
bara svona, afar eðlilega. Við erum
örugglega með einhvern ákveðinn
stíl sem við vinnum út frá, en það
gerðist bara án þess að við rædd-
um það neitt sérstaklega,“ sagði
Jónsi, sem sagði þá Alex ákveðna í
að halda áfram á þessari braut.
Myndir úr bókinni má einnig sjá á
síðunni www.riceboysleeps.com.
Gefur út myndabók með kærastanum
Í kvöld verður Gullkindin, skamm-
arverðlaunahátíð skemmtanaiðn-
aðarins, haldin á Klassík Rokk.
Mikil spenna er í tengslum við
hver hreppir hvaða verðlaun, ekki
síst heiðursverðlaunin. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
eru nokkrir sem koma til greina
og má þar nefna þá Árna Johnsen,
Runólf Ágústsson, fyrrv. rektor,
Einar Ágúst söngvara og Harald
Johannessen ríkislögreglustjóra.
Andri Freyr Viðarsson, sem
hefur með framkvæmd Gullkind-
arinnar að gera, harðneitar eðli-
lega að gefa upp hver hlýtur þau.
„Þetta eru einu verðlaunin sem
má túlka sem jákvæð. Af þeim
öllum. Heiðursverðlaunin. Í fyrra
fékk Eiríkur Jónsson blaðamaður
þau og þá var hann búinn að fá alla
þjóðina upp á móti sér.“
Og það verður einmitt Eiríkur
sem afhendir heiðursverðlaunin,
alveg ófeiminn við að mæta.
„Hann sagði að það væri í góðu
lagi svo framarlega sem við
dræpum hann ekki.“
Líkt og Frétta-
blaðið greindi frá í
gær verður kynnir
Stjáni 3000, betur
þekktur sem
Stjáni
Stuð,
ásamt
alheimsfegurðardrottningunni
Unni Birnu. Kvöldið leggst vel í
kappann. „Ég hef nú kynnt hlust-
endaverðlaun X-ins. Nei, nei, ekk-
ert stressaður. Ég verð ánægður
ef ég fæ dagskrána klukkan hálf
sex. Þá læri ég þetta. Ef ég fæ
dagskrána ekki fyrr en átta, þá
verð ég stressaður.“
Stjáni er ánægður með sam-
kynni sinn og segir að þau
muni stilla saman strengi sína.
Hann harðneitar því að
Soffía eiginkona sín
hafi af sér áhyggjur í
svo heillandi félags-
skap.
„Nei, nei, hún er komin með smá
vinnu í tengslum við hátíðina. Hún
verður baksviðs og skammtar
bjóra fyrir hina gestina. Þetta verð-
ur söguleg stund. Og ég verð með
grín inn á milli kynninga.“
Eiríkur afhendir heiðursverðlaun Gullkindar
…fær Yesmine Olsson, sem
setti það ekki fyrir sig að
skrifa bók og sinna nýfæddu
barni samtímis, og gefur nú
út matreiðslubókina Fram-
andi og freistandi.
„Þetta eru aðkeyptir búningar frá
stórborginni London, sérsniðin
jakkaföt með glæsilegum silfur-
þræði sem er ofinn inn í fötinn. Ég
held að svona búningar hafi aldrei
áður sést á Íslandi,“ segir Guð-
mundur Pálsson, einn söngvara
stórhljómsveitarinnar Baggalúts.
Hljómsveitin hertók Austurbæ við
Snorrabraut í allan gærdag fyrir
tökur á myndbandi við lagið Gaml-
árspartí og er víst að aðdáendur
sveitarinnar sjá hljómsveitar-
meðlimina ekki í sama ljósi
þegar það verður frumsýnt.
„Myndbandið er stórglæsilegt
með eldglæringum og spreng-
ingum,“ segir Guðmundur, aug-
ljóslega móður eftir allan hama-
ganginn. Fyrstu tökur eru
búnar en nóg er eftir.
Baggalútsmenn
fengu systurnar Birnu
og Guðfinnu Björns-
dætur til að semja dans
við lagið og segir Guð-
mundur að þeir félagar
hafi átt auðvelt með að
tileinka sér tignarlegar
hreyfingar enda allir
þaulvanir hvers kyns dansi. „Þetta
eru svona erótískar hreyfingar að
hætti Kevins Federline sem hefur
haft mikil áhrif á okkur og við
berum mikla virðingu fyrir sem
fagmanni í bæði tónlist og dansi,“
segir Guðmundur. „Þetta lagðist
mjög vel í okkur, við hituðum vel
upp og létum síðan slag standa,“
bætir Guðmundur við. Hins vegar
verður lítið um fáklæddar stúlkur
eins og svo oft þekkist í tónlistar-
myndböndum enda segir söngvar-
inn að þeir hefðu ekki viljað að
þær drægju athyglina frá smekk-
legum danssporum sveitarinnar.
Gamlárspartí er upprunalega
þýskt lag sem ber þann skemmti-
lega titil Molotov Kokteil Party og
er hálfgerður óður til hryðjuverka.
Varla tilviljun að það skuli vera
valið fyrir lag um daginn þar sem
Íslendingar skjóta upp rakettum
fyrir hundruð milljóna.
86.487 kr.
Glænýtt og stórglæsilegt golfhótel með öllum
þægindum: Rúmgóð herbergi með háhraða-
nettengingu, útsýni yfir hafið eða golfvöllinn, þrír
veitingastaðir og tveir barir. Áhugaverð svæði
allt um kring. Tveir frábærir golfvellir, annar er
par 72 og hinn par 62. Breiðar brautir, krefjandi
flatir og glæsilegt útsýni yfir Miðjarðarhafið.
Einstök lífsreynsla fyrir alla golfara, reynda sem
byrjendur.
GOLF SHERATON
REAL DE FAULA
Verð á mann í tvíbýli í viku:
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
Nóvember–mars
49.900 kr.
Nú mæta stórstjörnurnar í Manchester United á
Craven Cottage og ætla sér að sjálfsögðu
ekkert annað en sigur. Augljóslega ætla heima-
menn í Fulham sér öll stigin þrjú en gestirnir hafa
verið illviðráðanlegir á þessu tímabili. En það er
eins og alltaf í boltanum: Allt getur gerst!
Miðarnir sem við bjóðum eru í hlutlausri stúku og
þess vegna hægt að halda með hvoru liðinu
sem er!
FULHAM–
MAN. UTD.
12.–15. janúar
Verð á mann í tvíbýli:
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI