Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.11.2006, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 28.11.2006, Qupperneq 12
 Íslensk stjórnvöld hafa grundvallarmat á varnar- þörfum Íslands á hreinu. Þau hafa þar með forsendurnar fyrir því að fara út í viðræður við Norðmenn og aðra bandamenn í NATO um hugsanlega aukna aðkomu þeirra að því að tryggja þessar þarfir eftir brottför bandaríska varnar- liðsins héðan. Þetta segir Jón Egill Egilsson, yfirmaður varnarmála- skrifstofu utanríkisráðuneytisins. „Við höfum grundvallarfor- sendurnar fyrir þörf á vörnum Íslands. Við teljum hins vegar að þetta sé ekki aðgreinanlegt frá vörnum Atlantshafsbandalagsins í heild sinni og bandamanna okkar. Þetta komi fleirum við en okkur einum,“ sagði Jón Egill er Frétta- blaðið bar undir hann ummæli sem norski varnarmálaráðherr- ann Anne-Grete Strøm-Erichsen lætur falla í viðtali við blaðið í dag, þess efnis að eigið mat Íslend- inga á þörfinni á varnarviðbúnaði hérlendis sé forsenda fyrir við- ræðum um eflt varnarsamstarf. „Þessi mál þurfum við að reka í góðu samstarfi bæði við bandalag- ið sem slíkt, og einnig við þá bandamenn sem hlut eiga að máli, ekki bara Norðmenn, og þá fyrst og fremst Bandaríkin þar sem fyrir liggur að vinna skuli úr þeirri niðurstöðu sem náðist í viðræðun- um um framhald varnarsam- starfsins,“ áréttar Jón Egill. Hann segir þessi ummæli norska ráðherrans mjög í sam- ræmi við það sem áður hefur komið fram, að Norðmenn séu reiðubúnir til viðræðna við Íslend- inga um þessi mál, en frumkvæðið verði að koma frá Íslendingum. „Þeir hafa lengi sagt að þeir séu til reiðu ef við viljum tala við þá. Það sem þeir vilja forðast er að það líti út fyrir að þeir séu að þrönga sér upp á okkur,“ útskýrir Jón Egill. Norðmenn séu hvorki að þröngva sér upp á Íslendinga, né láti þeir í það skína að „þeir þurfi að kenna okkur stafrófið,“ það er Íslending- ar séu fullfærir um það sjálfir að skilgreina sínar varnarþarfir. Eins og kunnugt er var það lengi mat íslenskra stjórnvalda að föst við- vera fjögurra orrustuþotna á Keflavíkurflugvelli væri lág- marksviðbúnaður til að tryggja varnir landsins. Spurður hvort horfið hafi verið frá því mati eftir að Bandaríkjamenn ákváðu að kalla allt sitt lið héðan, segir Jón Egill að svo sé í raun ekki. „Það hefur aldrei verið sagt að við höfum horfið frá því mati. Við höfum ítrekað sagt að við hljótum að falla innan þess heildarmats sem NATO og allir okkar banda- menn byggja á. Þar er í gildi grundvallarstefna og við hljótum að hafa hana sem einn útgangs- punktinn þegar við metum okkar varnarþarfir,“ segir Jón Egill. Ekki horfið frá fyrra mati á varnarþörf Jón Egill Egilsson, yfirmaður varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir íslensk stjórnvöld hafa grundvallarmat á varnarþörf Íslands á hreinu og þar með grundvallarforsendurnar fyrir viðræðum við Norðmenn og aðra bandamenn. Efnahagsbrotadeild Rík- islögreglustjóra fékk í gær frest til þriðjudagsins 5. desember til þess að skila skriflegri greinargerð vegna kæru fimm einstaklinga er tengjast Baugsmálinu. Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs Group, Jóhannes Jóns- son, Kristín Jóhannesdóttir, Tryggvi Jónsson og Stefán Hilm- arsson kærðu meint vanhæfi starfsmanna efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra til héraðsdóms fyrir liðna helgi. Þau ætla ekki að svara spurn- ingum er tengjast rannsókn efna- hagsbrotadeildar á ætluðum skatta- lagabrotum þar til niðurstaða fæst í kærumálinu. Kærendur krefjast þess að rannsóknin verði dæmd ólögmæt og til vara að starfsmenn efnahags- brotadeildar verði dæmdir van- hæfir til þess að fara með rann- sókn málsins. Í kröfunni er meðal annars vitnað til orða sem yfir- menn hjá embætti Ríkislögreglu- stjóra hafa látið falla í fjölmiðlum síðan rannsókn Baugsmálsins hófst. Jón H.B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar Ríkislög- reglustjóra, var ekki tilbúinn til þess að veita vilyrði fyrir því að ekki yrðu gefnar út ákærur í skattamálinu áður en niðurstaða fengist í kærumálinu. Eftir stuttan fund lögmanna kærenda og Jóns H.B. náðist samkomulag um frest. Munnlegur málflutningur vegna kærunnar fer fram 6. desember en dómari í málinu er Eggert Óskars- son. Efnahagsbrotadeildin skilar greinargerð fyrir 5. desember Starfsmannaleigum hefur fækkað um þrjár hér á landi það sem af er nóvembermán- uði, samkvæmt nýjum upplýsingum frá Vinnumála- stofnun. Alls voru 28 starfsmannaleigur skráðar á Íslandi í síðustu viku, en 22 þeirra voru með virka starfsemi og 798 erlenda starfsmenn. Nokkurn tíma mun hafa tekið að fá sumar starfsmannaleignanna til að skrá sig hjá Vinnumála- stofnun eftir gildistöku nýrra laga um áramót og starfsmenn stofnunarinnar voru önnum kafnir fyrstu mánuði ársins við að reka á eftir starfs- mannaleigunum að skrá sig í kerfið. Alls hafa 0,5 til 0,6 prósent vinnuafls á Íslandi unnið á vegum starfsmannaleigna á árinu og er það mun lægra hlutfall en þekkist víðast hvar í Evrópu. Einna hæst mun hlutfall starfsmanna hjá leigum vera í Þýskalandi og Frakklandi og sérstaklega í Hollandi, en þar er hlutfallið um fjögur prósent, að sögn Jóns Sigurðar Karlssonar, verkefnisstjóra Vinnumálastofnunar. Nýjustu tölur um starfsmannaleigur má nálgast á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Heppnir fá þá eitthvað fallegt... A RG U S / 06 -0 55 2 DMK Reglulegur sparnaður* – verðlaunaður með sérstöku mótframlagi! Kynntu þér DMK Reglulegan sparnað og aðra þjónustuþætti DMK á spron.is * skv. útlánareglum SPRON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.