Fréttablaðið - 28.11.2006, Side 22

Fréttablaðið - 28.11.2006, Side 22
greinar@frettabladid.is „Umferðaröryggi er meira á Íslandi en í flestum öðrum Evrópulöndum“. Þetta þótti mér áhugaverð frétt, ekki síst í ljósi þess hvernig aðrar fregnir af umferðarmálum þjóðarinnar hafa hljóðað þetta árið. Fyrir nokkrum dögum var maður dæmdur til að greiða nokkrar krónur eftir að hafa ekið á um 140 kílómetra hraða í þéttbýli þar sem búast má við gangandi vegfarendum á öllum aldri og umferð ökutækja er mikil alla daga. Þetta er því miður ekki einsdæmi nema síður sé. Það fylgdi fréttinni af umferðarör- ygginu að gæði umferðarmann- virkja skipti sköpum í öryggis- málum. Ekki ætla ég að draga það í efa en ég veit hins vegar ekki hvers lags mannvirki þarf til að tryggja öryggi þar sem ökumenn hegða sér eins og berserkir og við höfum haft mýmörg dæmi um á síðustu vikum og mánuðum. Ökumenn sem stíga bensínið í botn og þeytast um á öðru hundraðinu ógna umferðaröryggi og þar með öllum í kringum sig, hvernig svo sem mannvirkin eru hönnuð. Það hefur verið áhugavert að fylgjast með árangri lögreglunn- ar á Blönduósi á undanförnum árum. Þar var einfaldlega skorin upp herör gegn alvarlegum umferðarslysum í umdæminu með því að stórauka eftirlit á þjóðvegunum. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa, almenn- ingur hægir á sér í Húnavatns- sýslum og veiting Umferðar- ljóssins á dögunum var verðskulduð. Alvarlegum slysum hefur fækkað og dregið úr hraðakstri. Er ekki hægt að fara að dæmi Blönduósslögreglunnar víðar? Það er enginn vafi á því að tvöföldun Reykjanesbrautarinn- ar er þarft verkefni og árangurs- ríkt og sama mun gilda um tvöföldun Suðurlandsvegar. En á meðan ökumenn leyfa sér að aka eins og þeir séu í kappakstri erum við hin í stórhættu, hvort sem vegir eru einbreiðir, tvíbreiðir eða fjórbreiðir. Mér finnst óásættanlegt að menn skuli komast upp með að aka á 140–170 kílómetra hraða, refsingarlítið, og ógna þar með lífi og limum allra í kringum sig. Árangurinn í Húnavatnssýslum segir okkur að vegaeftirlit virkar og þar hefur verið gefið fordæmi sem ber að fylgja. Það þarf að fjölga lögreglumönnum og bílum í eftirliti um allt land, jafnt í þéttbýli sem á þjóðvegum. Það þarf að stórhækka sektir, jafnvel tvöfalda þær, því pyngjan er góður kennari. Það á að hækka bílprófsaldur því það er eðlilegt að ábyrgð ökumanns fylgi sjálfræðisaldri. Þeir sem hafa alið upp og starfað með ungling- um vita hversu mikinn þroska þeir taka út á hverju ári milli tektar og tvítugs. Auknum þroska fylgir aukin ábyrgð og þess vegna er eðlilegt að álykta að 18 ára ökumenn séu ábyrgari en 17 ára ökumenn, þótt sjálfsagt sé það ekki einhlítt. Það þarf líka að koma upp æfingasvæði þar sem öllum verðandi ökumönnum verði skylt að finna það á eigin skinni hvað gerist ef eitthvað ber út af, innan allra öryggismarka að sjálfsögðu. Þetta kostar auðvitað allt peninga en ég er viss um að þetta allt saman, samtals, er þó ódýrara en sá fórnarkostnaður sem við færum í umferðarslysum á hverju ári. Og umferðarslys eru ekki óhjákvæmileg eins og hverjar aðrar náttúruhamfarir. Umferðin hefur verið skelfilega mannskæð á þessu ári og enn eru ökumenn að gera sig seka um glæfralegan akstur. Það er ljóst að í alltof mörgum tilvikum eru vítin ekki til að varast þau og ef fólk getur ekki haft vit fyrir sér sjálft þarf að hafa vit fyrir því. Í þessu samhengi þarf enginn að efast um tilgang eða réttmæti þess að hafa vit fyrir fólki. Öryggi alls almennings er í húfi. Lögreglu- menn í Húnavatnssýslum hafa sýnt okkur hvað þarf til. Aukið vegaeftirlit dregur úr ofsaakstri og að auki þarf að þyngja refsingar við afbrotum í umferð- inni umtalsvert. Sennilega þarf reyndar að þyngja viðurlög almennt en það er önnur saga. En það er ástæða til að óska húnvetnskum lögreglumönnum til hamingju með verðskulduð verðlaun. Kannski þeir fáist til að halda námskeið í öðrum umdæmum. Umferðarljósið Fréttablaðið tók í gær viðtal við ungan mann, sem á dóttur sem bíður enn eftir plássi á frístundaheimili í borginni. Ræðir ungi maðurinn, Dofri Hermanns- son, þessa stöðu og gagnrýnir mig m.a. sem formann ÍTR fyrir að vera athafna- stjórnmálamann en sinna þó ekki þess- um skyldum mínum. Nú er það svo, að enn eru ríflega sjö- tíu börn á biðlista eftir plássi á frístunda- heimilum ÍTR. Það er of mikið. En samt er það um helmingi minna en t.d. á sama tíma og í fyrra og raunar hefur gengið betur að fá fólk til starfa síðustu daga, sem vonandi skilar sér í fækkun barna á biðlista á næstu dögum. Við höfum líka tekið ákvörðun um að veita yngstu börnunum forgang, sem og þeim sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda. Sömu- leiðis hefur aldrei verið auglýst jafnmikið eftir starfsfólki og þetta árið og þá höfum við lagt spurn- ingar fyrir foreldra barna á biðlista og leitað eftir þeim sem aðeins þurfa hlutavistun, svo fleiri kom- ist að. Allt gerum við þetta vegna þeirrar miklu spurn- ar sem er eftir vinnuafli. Þetta þekkjum við einnig frá skólum, leikskólum, verslunargeiranum og heilbrigðisþjónustunni. Atvinnuleysi er innan við eitt prósent, atvinnuþátttaka með því mesta í heiminum og ástandið einfaldlega mjög erfitt að þessu leytinu til. Það er erf- itt að fá fólk. En þetta veit Dofri Hermannsson auð- vitað. Þótt Fréttablaðið greini ekki frá því, hefur hann einmitt skrifað áður um þessi mál í vetur og ávallt með þeim hætti að reyna að gagnrýna mig persónulega. Það er hans siður, og hann um það. Dofri er nefnilega varaborgarfulltrúi Samfylk- ingarinnar og starfsmaður flokksins og þess vegna pólitískur andstæðingur, svo ég læt mér slíkt í léttu rúmi liggja. Það sem mér finnst alvarlegra er að Fréttablaðið skuli birta viðtal við Dofra um þessi mál án þess að geta þess að Dofri sé stjórnmálamaður og varaborgar- fulltrúi. Spurningin er: Sagði Dofri Fréttablaðinu ekki frá því, eða taldi Fréttablaðið ekki að lesendur ættu að vita af því? Ég tel skynsamlegast í þessari umræðu að koma hreint fram, þegar rætt er um viðkvæm pólitísk deilumál. Ef Dofri Hermannsson telur rétt að blanda börnum sem þurfa þjónustu frístundaheim- ilis inn í pólitískan slag, þá hann um það. En hann á þá að tala um það sem pólitík, en ekki sleppa því þegar honum hentar. Það er ekki sérlega smekk- legt. Höfundur er formaður borgarráðs. Ekki öll sagan sögð Það hefur verið áhugavert að fylgjast með árangri lögregl- unnar á Blönduósi á undan- förnum árum. K ynbundið ofbeldi tekur á sig margar myndir. Nauðgun er ein þeirra. Í núgildandi hegningarlögum er kynferðisleg mis- neyting ekki skilgreind sem nauðgun nema misneytingin hafi átt sér stað með ofbeldi eða hótun um ofbeldi. Aðrar greinar hegningarlaganna taka til þess að þröngva manni til sam- ræðis eða kynferðismaka og sömuleiðis þess að notfæra sér veik- indi eða andlega annmarka til kynferðismaka. Tvennt hið síðar- nefnda telst ekki vera nauðgun vegna þess að ekkert ofbeldi er þar talið vera í spilinu og hámarksrefsing er 6 ára fangelsisvistun en 16 ár þegar um nauðgun er að ræða. Á þetta benti Þorbjörg S. Gunn- laugsdóttir lögfræðingur í erindi sem hún hélt á vegum Mannrétt- indaskrifstofu Íslands í gær. Nú liggur fyrir þinginu frumvarp þar sem þessi skilnaður er upprættur og það skilgreint nauðgun að hafa samræði eða kynferð- isleg mök við einstakling sem ekki hefur gefið samþykki sitt til þess. Þetta er afar mikilvæg breyting og raunar nauðsynleg vegna þess að áherslan flyst frá aðferðinni sem beitt er við nauðgunina yfir á atburðinn sjálfan, nauðgunina sem felst í því að hafa sam- ræði við manneskju sem ekki hefur gefið samþykki sitt fyrir því. Þegar fjallað er um nauðganir er verið að fást við margar fyr- irframgefnar hugmyndir. Býsna algengt er að varpa ábyrgðinni, að minnsta kosti að hluta, yfir á fórnarlamb nauðgunarinnar. Þá er velt upp hugmyndum eins og að konan sem fyrir nauðguninni varð hefði ekki átt að vera ein á ferð eða að hún hefði átt að gæta sín betur á áfenginu. Um leið og farið er að velta upp slíkum hug- myndum er skollaeyrum skellt við þeirri staðreynd að nauðgun er ofbeldisglæpur sem, eins og aðrir glæpir, er alfarið á ábyrgð ger- andans. Glæpur hans er jafnmikill hvort sem nauðgunin á sér stað í heimahúsi eða úti á götu, hvort sem hún á sér stað milli vina eða fólks sem ekkert þekkist. Glæpurinn er jafnstór hvort sem fórnar- lamb eða gerandi eru ofurölvi eða hafa aldrei á ævi sinni bragðað áfengi, hann er jafnstór hvort sem fórnarlambið er í fleginni blússu og stuttu pilsi eða í Kraftgalla. Réttur konu, því það er undantekningalítið konum sem er nauðg- að, til að samþykkja ekki kynlíf er skýlaus og kona sem ekki er í ástandi til að samþykkja kynlíf, til dæmis vegna þess að hún sefur áfengissvefni, hafnar kynlífi. Sá sem færir sér slíkt ástand í nyt, eins og sá sem notfærir sér andlega annmarka einstaklings til sam- ræðis, nauðgar, rétt eins og sá sem kemur fram vilja sínum með ofbeldi. Nú stendur yfir 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Þetta er í þriðja sinn sem ýmis mannréttindasamtök í landinu standa að slíku átaki. Hvern dag frá 24. nóvember fram til 10. desember eru við- burðir sem vekja athygli á ýmsum birtingarmyndum kynbundins ofbeldis. Þetta er átak sem ber að gefa gaum því kynbundið ofbeldi verður að uppræta. Misneyting er líka nauðgun „Glæpur hans er jafnmikill hvort sem nauðgunin á sér stað í heimahúsi eða úti á götu, hvort sem hún á sér stað milli vina eða fólks sem ekkert þekkist.“ GADDAVÍR SIGURJÓN MAGNÚSSON „Frábærlega skrifuð og áleitin saga …“ Fréttablaðið „Gaddavír er látlaus, hefðbundin, vel skrifuð skáldsaga sem gefur tilefni til þess að velta fyrir sér mannlegu eðli… Í stærra samhengi og táknsögulega fjallar Gaddavír um erfðasyndina, þjáningu, jafnvel píslarvætti.“ - Geir Svansson, Morgunblaðið, 3. nóv. 2006 ÁHRIFAMIKIL SKÁLDSAGA SEM HELDUR LESANDANUM Í HELJARGREIPUM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.