Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.11.2006, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 28.11.2006, Qupperneq 31
Formleg opnun fór fram síðast- liðinn laugardag. SÁÁ hefur átt byggingarrétt á lóð við Efstaleiti 7 í nokkur ár en ekki haft tækifæri eða fjárráð til að ráðast í byggingaframkvæmdir þar fyrr en nú. Að undanförnu hefur SÁÁ selt húseignina í Síðu- múla auk smærri eigna til að standa straum af kostnaði við nýja húsið. Þar er byggingarfram- kvæmdum nú lokið og fór formleg opnun fram sl. laugardag. Starf- semin í nýja húsinu er:Göngu- deildarþjónusta fyrir unglinga í áfengis- og vímuefnavanda sem ekki þurfa að fara á Sjúkrahúsið Vog og foreldra þeirra. Göngudeildarþjónusta fyrir unglinga sem eru á leið á Vog eða eru að koma þaðan. Viðtala- og greiningaþjónusta fyrir fólk sem hefur áhyggjur af neyslu sinni. Fjölskyldumeðferð og ráð- gjafaþjónusta fyrir aðstandendur áfengis og vímuefnasjúklinga. Viðamikill og fjölbreyttur stuðningur við fólk sem er að koma úr áfengis- og vímuefna- meðferð. Endurhæfingarmeðferð fyrir fíkla sem geta nýtt sér göngu- deildarmeðferð og þurfa ekki að fara á Staðarfell eða Vík. Viðamikið rannsóknarstarf sem unnið er í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu. Forvarnardeild og skrifstofa SÁÁ. Streita og álagstengd vanlíðan fer vaxandi en sú vanlíðan getur haft áhrif á heilsu okkar og valdið truflun á rekstri fyrirtækja. Einkenni álags- tengdrar vanlíðunar eru oft óljós og margir taka ómeðvitað streitu og stress með sér heim úr vinnunni. Ólafur þór Ævarsson geðlæknir er í forsvari fyrir Streituskólann þar sem ráðgjafar veita markvissa fræðslu og sérhæfða ráðgjöf gegn neikvæðum áhrifum streitu. „Námskeið Streituskólans eru skipulögð fyrir fyrirtæki og snið- in að þörfum þeirra. Veitt er sér- hæfð streitufræðsla sem fer þannig fram að fyrst fá stjórnend- ur ráðgjöf og síðan er öllum starfs- mönnum fyrirtækisins veitt fræðsla. Frætt er um álag og áhrif neikvæðrar streitu á líðan, sam- skipti og hegðun og einnig er fjall- að um álagstengd heilsufars- vandamál, bæði andlega og líkamlega vanlíðan,“ segir Ólafur Þór og bætir við að meginhlutverk skólans sé að miðla upplýsingum um vísindalega þekkingu og reynslu til þeirra sem fást við streituvarnir og heilsuvernd. „Í Streituskólanum er unnið að forvörnum og hinum sálfélags- legu þáttum vinnuverndar. Við blöndum saman mjög sérhæfðri ráðgjöf bæði í hópum, fyrir stjórn- endur fyrirtækja og einnig fyrir einstaklinga allt eftir þörfum og sérstöðu hvers fyrirtækis. Því eru verkefnin sem við erum að sinna mjög ólík. Þau geta verið allt frá einum fyrirlestri yfir í að vera þrautskipulögð verkefni þar sem fyrirtækjum er fylgt eftir í eitt til tvö ár.“ Ólafur Þór segir öllum mikil- vægt að vinna í jákvæðu umhverfi þar sem litið er á streituvarnir og álagsstjórnun sem hluta af dag- legum rekstri fyrirtækja. Mikil- vægt sé að hindra álagstengda vanlíðan sem geti orsakað fleiri veikindadaga og almenna vanlíð- an í leik og starfi og jafnvel stuðl- að að sjúklegu ástandi. „Það er skýrt tekið fram í lögum að stjórn- ir fyrirtækja bera ábyrgð á vinnu- vernd og heilsu starfsmanna sinna, ekki bara líkamlegri heilsu, heldur einnig andlegri heilsu,“ segir Ólafur Þór. „Starfsmenn Streituskólans hjálpa fyrirtækj- um að finna hverjir álagsþættirn- ir eru innan starfseminnar og hvað má betur fara. Mikilvægt viðhorf er að beita fræðslu og ráð- gjöf sem forvörn og til að vekja starfsmenn til umhugsunar. Í tengslum við fræðsluna eru veitt einstaklingsviðtöl til frekari og einstaklingsbundnari fræðslu og ráðgjafar. Þá finnur hver og einn betur við hvaða álagsþætti hann er að glíma, verður meira meðvit- aður um hvernig hann bregst við og getur eflt sig í streituvörn- um.“ Nánari upplýsingar um Streitu- skólann má finna á www.stress.is. Sálfélagslegir þætt- ir vinnuverndar Starfsemi SÁÁ flutt í Efstaleiti
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.