Fréttablaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 2
2 4. desember 2006 MÁNUDAGUR
Spurning dagSinS
75.000 KR.
GJAFABRÉF
FRÁ SMÁRALIND FYLGIR NÚNA
ÖLLUM NOTUÐUM BÍLUM FRÁ
INGVARI HELGASYNI
LöGReGLUMÁL Eyra var bitið af
manni á þrítugsaldri í miðbæ
Reykjavíkur um fjögur leytið í
fyrrinótt. Hann sagði lögreglu að
hann hefði stöðvað annan mann í
Pósthússtræti til að spyrja til
vegar. Í kjölfarið sló í brýnu milli
mannanna og kom til átaka sem
lyktaði með því að sá aðspurði
hefði bitið stærðar hluta úr eyra
hins.
Fórnarlambið fann eyrað
sjálfur og hafði það meðferðis til
lögreglunnar sem ók honum á
slysadeild. Þar var kallaður til
sérfræðingur sem festi eyrað á.
Árásarmaðurinn er ófundinn að
sögn lögreglu. - sh
Fólskulegar aðfarir í átökum:
Eyrnabítur laus
í höfuðborginni
Fjórir á slysadeild
Fjórir voru fluttir á slysadeild með
minniháttar meiðsl eftir árekstur
tveggja bíla á gatnamótum Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar um
klukkan sjö í gærmorgun. Talið er að
annar hafi ekið gegn rauðu ljósi. Báðir
bílar eru óökuhæfir.
lögregluFréttir
WAshiNGtoN, AP Skömmu áður en
George W. Bush Bandaríkjaforseti
skýrði frá því að Donald Rumsfeld
varnarmálaráðherra myndi láta af
störfum hafði Rumsfeld sagt nauð-
synlegt að breyta algerlega um
stefnu í Írak.
„Að mínu mati er þörf á mikl-
um breytingum,“ sagði Rumsfeld í
minnisblaði frá 6. nóvember, dag-
inn fyrir þingkosningarnar í
Bandaríkjunum og tveimur dögum
áður en Bush tilkynnti að Rums-
feld myndi hætta.
„Það er greinilegt að það sem
bandarískir hermenn eru að gera
núna í Írak virkar hvorki nógu vel
né nógu hratt,“ sagði ennfremur í
minnisblaði Rumsfelds, sem átti
að fara leynt en bandaríska dag-
blaðið New York Times gerði það
opinbert á heimasíðu sinni seint á
laugardagskvöld og á prenti í gær-
morgun.
Í minnisblaðinu kemst Rums-
feld ekki að neinni niðurstöðu um
það til hvaða aðgerða þurfi að
grípa, en telur upp ýmsa mögu-
leika, þar á meðal að „hugsa alveg
upp á nýtt verkefni bandaríska
hersins og markmið Bandaríkj-
anna (hvernig við tölum um þau) -
fara naumhyggjuleiðina.“
Jafnframt sagði hann að Banda-
ríkjastjórn þurfi að „tilkynna að
hvaða ákvörðun um nýjar leiðir
sem Bandaríkin taka þá sé það
gert í tilraunaskyni. Þetta gefur
okkur tækifæri til að aðlagast á ný
og fara aðrar leiðir, ef þörf krefur,
og þar með að „tapa“ ekki.“ - gb
donald H. rumSFeld Á laugardaginn
brá Rumsfeld sér á völlinn í Philadelphíu
þar sem lið landhersins og sjóhersins
áttust við í ruðningi. FRéTTaBlaðið/aP
Rumsfeld vildi breyta um stefnu í Írak daginn fyrir kosningarnar:
Sagði hernaðinn ekki virka
ÍRAk, AP Lögfræðingar Saddams
Husseins áfrýjuðu í gær dauða-
dómnum, sem kveðinn var upp
yfir honum í byrjun nóvember.
Jafnframt sökuðu lögfræðingarnir
dómstólinn um að tefja fyrir
framgangi málsins, þar sem þeir
hefðu ekki fengið afrit af
dómsúrskurðinum fyrr en 23.
nóvember.
Úrskurðurinn kemur nú til
kasta áfrýjunardómstóls, sem
ekki þarf að skila niðurstöðu fyrir
ákveðinn tíma, en dauðadómi þarf
að fullnægja ekki síðar en þrjátíu
dögum eftir að áfrýjunardómstóll
skilar málinu frá sér. - gb
Saddam Hussein:
Hefur áfrýjað
dauðadómnum
Saddam HuSSein Önnur réttarhöld yfir
Saddam héldu áfram í gær.
stjóRNMÁL Ögmundur Jónasson,
Katrín Jakobsdóttir og Kolbrún
Halldórsdóttir lentu í efstu sætum í
forvali vinstri grænna á höfuðborg-
arsvæðinu á laugardag. Þau munu
því að öllum líkindum leiða sinn
listann hvert í Reykjavíkurkjör-
dæmunum tveimur og Suðvestur-
kjördæmi í komandi Alþingiskosn-
ingum. Í næstu sætum lentu
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Álf-
heiður Ingadóttir og Árni Þór Sig-
urðsson. Sjö konur höfnuðu í tólf
efstu sætunum.
Ögmundur Jónasson hlaut
afgerandi stuðning í fyrsta sætið.
„Það hefur verið sagt að hver sem
niðurstaðan yrði þá yrðu menn
ánægðir í ljósi þess mannvals sem
var hjá okkur og nú horfum við
bjartsýn fram á veginn. Það eru
margir að feta sig inn á hinn pólit-
íska vettvang Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs sem
tendrar trú í mínu hjarta um að
framtíðin sé björt í þessum
flokki.“
Katrín Jakobsdóttir, vara-
formaður flokksins, hlaut einnig
nokkuð afgerandi stuðning í fyrsta
sætið. „Ég er auðvitað mjög
ánægð. Ég stefndi á eitt af þessum
fyrstu sætum og fæ góðan stuðn-
ing í það. Ég er mjög ánægð með
þetta forval og hvernig það fór
fram. Við vorum með þrjátíu
frambjóðendur, fjölgun í flokkn-
um og góða kosningaþátttöku. Mér
líst mjög vel á þá sem náðu kjöri.
Ég átti sjálf í megnustu vandræð-
um með að takmarka mig við
þessa tólf sem ég mátti kjósa.“
Þingmaðurinn Kolbrún Hall-
dórsdóttir var einnig mjög örugg í
fyrsta sætið. „Ég sé ekki annað en
að við séum að fá þarna mjög sam-
henta sveit. Útkoma kvenna er ótrú-
lega sterk. Varaformaðurinn fær
glæsilega kosningu, Auður Lilja,
formaður Ungra vinstri grænna
líka og við þingmennirnir fáum
staðfestingu á því að við höfum
flokksmenn á bak við okkur.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður flokksins, segir niðurstöð-
una glæsilega. „Þetta er geysi-
sterk, breið og vel samsett sveit
sem þarna myndast. Við afsönnum
líka þá reglu að prófkjör séu kven-
fjandsamleg. Hún gildir greini-
lega ekki um kvenfrelsisflokkinn
vinstri græna.“
Kjörstjórn mun raða frambjóð-
endum niður á listana þrjá í sam-
ræmi við niðurstöður forvalsins
og bera tillögur undir flokksfund.
Vinstri grænir hafa nú einn þing-
mann í hvoru Reykjavíkurkjör-
dæminu en engan í Suðvesturkjör-
dæmi. 1093 greiddu atkvæði í
forvalinu, en 1796 voru á kjörskrá
og var kjörsókn því 61 prósent.
stigur@frettabladid.is
Sjö konur lentu í
tólf efstu sætunum
Ögmundur Jónasson, Katrín Jakobsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir munu leiða
lista vinstra grænna á höfuðborgarsvæðinu. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hlaut
mestan stuðning í 2. sæti. Um 1100 tóku þátt. Sjö konur eru á meðal tólf efstu.
lokatölur
próFkjörSinS
Fyrsta sæti:
Ögmundur Jónasson 832
Katrín Jakobsdóttir 665
Kolbrún Halldórsdóttir 591
annað sæti:
Guðfríður lilja Grétarsdóttir 764
Álfheiður ingadóttir 525
Árni Þór Sigurðsson 435
Þriðja sæti:
Gestur Svavarsson 491
auður lilja Erlingsdóttir 468
Paul F. Nikolov 373
Fjórða sæti:
Mireya Samper 518
Steinunn Þóra Árnadóttir 461
Guðmundur Magnússon 448
Í reglum um forval Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs á höfuð-
borgarsvæðinu er kveðið á um að
í anda kvenfrelsis skuli jafnmargir
frambjóðendur af hvoru kyni skipa
efstu sæti listanna þriggja. Þannig
skuli þrír karlar og þrjár konur vera
í efstu sætunum tveimur og fjórir
karlar og fjórar konur í efstu fjórum
sætunum.
Niðurstöður forvalsins eru hins
vegar á þá leið að fjórar konur eru
í efstu tveimur sætunum, Katrín
Jakobsdóttir og Kolbrún Halldórs-
dóttir í því fyrsta og Guðfríður lilja
Grétarsdóttir og Álfheiður ingadóttir
í öðru. Samkvæmt reglunum ætti
því Álfheiður að skipta um sæti við
Gest Svavarsson, næsta mann inn í
annað sætið.
að sögn Svanhildar Kaaber,
formanns kjörstjórnar, liggur ekki
fyrir hvað gert verður. „Kjörstjórnin
hittist á miðvikudag og við ætlum
ekkert að ræða þessi mál fyrr en við
höfum hist og tekið út stöðuna.“
Gestur Svavarsson, sem varð
efstur í þriðja sætið, hafði í aðdrag-
anda forvalsins sagst ekki vilja taka
sæti í stað konu sem lenti ofar en
hann á lista, og hvatti aðra karl-
menn til hins sama. Hann staðfesti
þessa skoðun í gær en sagðist þó
myndu lúta vilja kjörstjórnar. - sh
óvíSt Hvort ÁlFHeiður Skiptir við geSt um Sæti
Halldór, bauðstu Bush?
„Jájá, og ef vel stendur á þá mæta
þeir báðir feðgarnir.“
Halldór Baldursson, skopmyndateiknari
Blaðsins, hyggst bjóða öllum þeim sem
hann hefur skopast að í myndum sínum
udanfarið ár til veglegrar veislu í vikunni.
Hann hefur meðal annars oft teiknað
George W. Bush Bandaríkjaforseta.
tRúARbRöGð Fjórtán síðna bréf, uppfullt af óhróðri
um múslima og íslamstrú, hefur verið sent til fjölda
landsmanna undanfarna daga, meðal annars
stjórnmálamanna. Nokkrir hafa sent lögreglunni
bréfin til rannsóknar.
Á efni bréfsins má skilja að það hafi verið skrifað
21. nóvember af hóp sem kallar sig „Group 1627“.
Að öðru leyti er ekkert sem gefur til kynna hverjir
standa að sendingunum. Talið er að undirskriftin
vísi til Tyrkjaránsins sem var framið það ár.
Valgeir Helgi Bergþórsson er einn þeirra sem
fékk bréfið sent heim til sín og tengir það við pistil
sem hann skrifaði og birti á vefsíðu um að hjálpa
bæri innflytjendum að aðlagast landi og þjóð. „Ég er
hálfpartinn í sjokki yfir að fá svona póst sendan
heim til mín og sérstaklega þar sem hann er alveg
nafnlaus. Maður er svona dæmigerður Íslendingur
sem heldur að svona líðist ekki á Íslandi. Fyrir mér
er þetta hreinn og beinn níðingsháttur um Íslams-
trú.“
Vitað er að allir frambjóðendur í forvali vinstri
grænna í Reykjavík fengu bréfið, sem og flestir aðrir
sem koma að stjórnmálaumræðu í landinu. Í lögum er
kveðið á um að hver sem smánar trúarkenningar
löglegs trúfélags skuli sæta sektum eða fangelsi.
Óvíst er hvort umrætt bréf falli þar undir. - sdg / sh
Fjölda stjórnmálamanna hefur borist nafnlaust bréf með grófu múslimahatri:
Múslimahatri dreift bréfleiðis
HaturSÁróður Þessi teikning er meðal þess sem sjá má í
bréfinu. Margir sem fengu bréfið sent hafa þegar kært það til
lögreglu.
stjóRNMÁL „Mér finnst eðlilegt að
sækjast eftir
embætti
varaformanns.
Ég hafði ekki
hugsað mér að
bjóða mig fram
til formanns en
það gæti
jafnvel farið
svo,“ sagði
Margrét
Sverrisdóttir í
samtali við
Fréttablaðið í gærkvöld.
Í viðtali í Kastljósi Ríkissjón-
varpsins sagðist hún vera að
íhuga að sækjast eftir embætti
formanns á landsfundi Frjáls-
lynda flokksins sem haldinn
verður í lok janúar.
Margréti var í síðustu viku
sagt upp sem framkvæmdastjóra
þingflokks Frjálslynda flokksins
og hefur hún gefið það til kynna í
fjölmiðlum að Jón Magnússon
hæstaréttarlögmaður, sem gekk
nýverið til liðs við flokkinn, hafið
átt þar hlut að máli. Hann hefur
neitað því alfarið.
- mh
Margrét Sverrisdóttir:
Íhugar fram-
boð til forystu
margrét
SverriSdóttir
LöGReGLUMÁL Sautján ára gamall
piltur, sem stunginn var í kviðinn
fyrir utan skemmtistaðinn
Shooters í Kópavogi á föstudags-
kvöld, hefur verið útskrifaður af
gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut.
Um tíma var pilturinn í
lífshættu vegna áverka sem hann
hlaut. Rannsóknardeild lögregl-
unnar í Kópavogi vinnur að
rannsókn á málinu en þrír menn
um tvítugt, sem grunaðir eru um
aðild að hópslagsmálum sem
leiddu til þess að pilturinn var
stunginn í kviðinn, eru enn í haldi
lögreglu en þeir hafa verið
yfirheyrðir frá því þeir voru
handteknir á vetvangi. - mh
Slasaður eftir stungu:
Kominn af
gjörgæsludeildvélarvana hraðbátur
Hraðbátur varð vélarvana skammt
utan Keflavíkur í gær. Þyrla landhelg-
isgæslunnar var send á staðinn til
öryggis en áhöfn hennar þurfti ekkert
að aðstoða tvo menn sem voru um
borð. Fiskibáturinn Gunnar Hámund-
arson dró bátinn að landi.
landHelgiSgæSlan