Fréttablaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 69
MÁNUDAGUR 4. desember 2006 37
Þessa dagana stendur yfir alþjóð-
leg tískuvika í Malasíu. Vikan er
haldin í borginni Kúala Lúmpúr og
er glæsileg í alla staði. Malasía fór
að setja sitt mark á tískuheiminn
árið 2003 þegar vikan var haldin í
fyrsta sinn og kom þá mönnum í
opna skjöldu enda landið ekki
þekkt fyrir tísku. En margir ungir
hönnuðir frá Malasíu hafa skotið
upp kollinum og ef marka má
myndirnar sem hér eru sýndar
eru þeir engir eftirbátar hins vest-
ræna heims á sviði tískunnar. - áp
Framandi tíska í Malasíu
Bleikt Flottur stuttur kjóll frá hönnuðin-
um Eric Choong.
Dragt Skemmtilegar púffermar á ann-
ars hefðbundinni dragt frá Eric Choong.
Víður Þessi kjóll myndi sóma sér vel
á rauða dreglinum enda nákvæmlega
samkvæmt nýjustu tísku.
HVítt Það væri ekki amalegt að klæðast
þessum kjól frá Sonny San í miklum
hita.
gyðja Hlýri á annarri öxlinni er að koma
sterkt inn núna sem tískubóla og hönnuð-
urinn Sonny San fer ekki varhluta af því.
útVíðar ermar Þessi kvenlegi kjóll er
frá Edmund Ser.
áramótaDress Háir gulllitaðir hanskar
og fölbleikur kjóll sem margar konur
myndu gjarnan vilja klæðast um ára-
mótin frá Edmund Ser.
sér ermar Skemmtilegur fatnaður þar
sem ermarnar eru sér eins og grifflur frá
Edmund Ser.
Nýstárlegt Gegnsær toppur, hátt mitti
og lakkbelti frá Michael Wong.
Fréttablaðið/GEttyiMaGES
Leikkonan Nicole Kidman hefur
vísað á bug sögusögnum um að
hún sé ófrísk eftir eiginmann sinn,
sveitasöngvarann Keith Urban.
Kidman á tvö ættleidd börn
með Tom Cruise, þau Isabellu sem
er þrettán ára og hinn ellefu ára
Conor. Hún segist ekki hafa hug-
mynd um hvernig orðrómurinn
fór á kreik. „Ég er ekki ófrísk.
Eina stundina segir fólk að ég sé
of grönn og þá næstu er ég of feit
og þá hlýt ég að eiga von á barni.
Þetta er mjög ruglingslegt,“
sagði Kidman. „Mamma
hringdi í mig og spurði
hvort ég væri ófrísk. Ég
sagði að hún yrði sú fyrsta
sem myndi vita af því.
Síðan hlógum við bara að
þessu því það er ekkert mikið
annað hægt að gera.“
Kidman og Urban hafa átt í
erfiðleikum að undanförnu eftir
að kom í ljós að Urban væri aftur
farinn að neyta vímuefna. Fór
hann í framhaldinu í meðferð til
að ráða bót á vanda sínum.
Kidman var sjálf í fréttum
fyrir skömmu fyrir að vera orðin
tekjuhæsta leik-
konan í Holly-
wood. Fær hún
um 1,1 millj-
arð króna
fyrir hverja
mynd.
Hrifsaði
hún topp-
sætið af
Juliu
Roberts
sem hafði
setið þar
samfleytt í
fjögur ár.
Kidman ekki ófrísk
Nicole kiDmaN
Ástralska leikkonan
segist ekki vera
ófrísk.
með urBaN Kidman og Urban
hafa átt í vandræðum í hjóna-
bandinu að undanförnu.
Stofnfjárútboð SPRON
A
RG
U
S
/
06
-0
68
0
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis býður út 4.500.000.000 nýja
stofnfjárhluti. Farið er með útboðið skv. reglum um almennt útboð
verðbréfa, þótt núverandi stofnfjáreigendur eigi forgangsrétt til
áskriftar að hinum nýju stofnfjárhlutum.
Útboðstímabilið er 7. - 21. desember 2006 og fellur áskrift í eindaga
28. desember 2006. Verð hvers stofnfjárhlutar er kr. 2,04699 og er
heildarverðmæti útboðsins því kr. 9.211.455.000. Heildarnafnverð
stofnfjár fyrir hækkunina er kr. 5.000.000.000 og verður eftir
hækkunina kr. 9.500.000.000 að því gefnu að allt seljist.
Nafnverð nýrra stofnfjárbréfa er kr. 4.500.000.000.
Umsjónaraðili útboðsins er Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis
og má nálgast útboðslýsingu og önnur gögn sem útboðinu
tengjast á heimasíðu SPRON www.spron.is og í útibúum hans
frá og með 7. desember 2006.
Sparisjóðsstjórn