Fréttablaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 63
MÁNUDAGUR 4. desember 2006 31
Hjá Máli og menningu er
komin út Félags-
skapur kátra kvenna
eftir Alexander
McCall Smith í
þýðingu Helgu Soffíu
Einarsdóttur. Í þess-
ari sjöttu bók um
Kvenspæjarastofu
númer eitt er Preci-
ous Ramotswe undir miklu álagi. Brotist
er inn á heimili hennar á Zebra Drive og
dularfullt grasker á lóðinni veldur henni
áhyggjum. Á Tlokweng spíttmótorum
verður uppi fótur og fit þegar annar
lærlingurinn stingur af með konu á stór-
um Mercedes-Benz. En það sem fyrst
og fremst setur allt á annan endann hjá
Mma Ramotswe er þegar óboðinn gest-
ur grefur upp sársaukafullt leyndarmál
úr fortíðinni. Bókaflokkur Alexanders
McCall Smith hefur farið sigurför um
heiminn, enda einstakar sögur sem hafa
að geyma sjaldgæfa blöndu af spennu,
gamansemi og mannúð. Þær hafa nú
selst á íslensku í nærri 30 þúsund ein-
tökum. Áður hafa komið út á íslensku í
þessum flokki Kvenspæjarastofa númer
eitt, Tár gíraffans, Siðprýði fallegra
stúlkna, Kalaharí-vélritunarskólinn fyrir
karlmenn, og Fullur skápur af lífi.
Hjá Máli og menningu er komin út Draugurinn sem hló með sögum
eftir fimmtán norræna rithöfunda og
teikningum nafntogaðra norrænna
teiknara. Finnst þér gaman að finna
hárin rísa á höfðinu og hroll hlaupa
niður eftir bakinu? Þá er þetta bók að
þínu skapi. Draugurinn sem hló geymir
fimmtán nýjar og spennandi drauga-
sögur. Hér rekast börn
og fullorðnir á alls
konar drauga – úti í
í óbyggðum Íslands,
Grænlands og Sama-
lands, inni í finnskum
skógi, á dönskum
herragarði, úti fyrir
ströndum Svíþjóðar,
í færeyskum og norskum kirkjugörðum
og síðast en ekki síst í ósköp venjulegum
húsum í litlum og friðsælum bæjum.
Sögurnar skrifuðu fimmtán norrænir
rithöfundar sem margir hverjir eru meðal
vinsælustu höfunda í heimalandi sínu, t.d.
Lene Kaaberböl sem íslenskir lesendur
þekkja af bókunum um galdrastelpurnar.
Bókin er skreytt áhrifaríkum litmyndum
eftir nafntogaða norræna teiknara. Tveir
íslenskir höfundar og myndskreytar eiga
sögur og myndir í bókinni, Gerður Kristný,
Kristín Helga Gunnarsdóttir, Áslaug Jóns-
dóttir og Halldór Baldursson.
Nýjar bækur
Miðasala á þrjá stórviðburði
hefst í dag á www.listahatid.is
Dmitri Hvorostovsky í Háskólabíói 20. maí
Miðaverð: 5.900 / 6.400
San Francisco ballettinn undir stjórn
Helga Tómassonar í Borgarleikhúsinu
Tvennutilboð á barítónana
út desember
Miðasala á www.listahatid.is og í síma 552 8588
Á hátindi frægðar sinnar Tveir fremstu barítónar heims
Miðaverð: 4.800
Sýningarnar eru samstarfsverkefni Listahátíðar
í Reykjavík og Borgarleikhússins
Miðaverð: 11.800
Takmarkaður sætafjöldi
Nánari upplýsingar
á www.listahatid.is
Bryn Terfel í Háskólabíói 21. maí
Miðaverð: 5.900 / 6.400
San Francisco ballettinn, Hvorostovsky og Terfel á Listahátíð í vor
Glæsileg hátíðargjöf!
Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík 2007 eru KB-banki, Samskip og Radisson SAS
Fyrsta hugsunin sem skýtur upp í
kollinum þegar lestur á bókinni
hefst er sú að að maður sé að fara
að lesa um persónuna Bono en
ekki manneskjuna Bono. Ekki
verður nefnilega af því skafið að
Bono er ein alstærsta persóna 20.
aldarinnar og hljómsveit hans, U2,
ein áhrifamesta rokksveit sam-
tímans og jafnvel vel það. Að Bono
hafi á þessum langa ferli sínum
dottið inn í ákveðið hlutverk ætti
því í raun og vera að vera eðlilegt.
Eftir því sem líður á bókina áttar
maður sig hins vegar á því að
persónan Bono er í raun og veru
manneskjan Bono. Og sem mann-
eskja er Bono ein sú áhugaverð-
asta sem hægt er að lesa um.
Bókin er öll í samtalsformi, það
er að segja einungis spurningar og
svör. Það form er ótrúlega vand-
meðfarið og reynir á athygli les-
andans sem þarf að mata sjálfan
sig. Michka Assayas, franskur
blaðamaður og höfundur bókar-
innar, tekst hins vegar ákaflega
vel upp og fer vel með formið.
Hann er heldur ekki öfundsverður
af hlutverki sínu en ég get alveg
trúað því að Bono sé erfiður við-
mælandi. Assayas heldur samt
fast í stjórnartaumana nær allan
tímann og gerir vel. Hann leyfir
Bono sjaldnast að hlaupa með sig í
gönur, skiptir um umræðuefni á
réttum tímapunktum, segir sínar
skoðanir og efast jafnvel um Bono.
Eina sem mætti kannski setja út á
Assayas er að hann hefði átt að
vera mun ágengari og sleppir
hann Bono oft einum of auðveld-
lega. Spurningar hans eru samt
sem áður ótrúlega vel hugsaðar og
af þeim skín einbeitingin. Stund-
um er líkt og að eftir hvert einasta
svar Bono hlusti Assayas á svarið
aftur og aftur áður en hann spyr
næstu spurningar að vel ígrund-
uðu máli.
Allt frá móðurmissi til rifrilda
við Bush Bandaríkjaforseta, skaf-
ar Bono sjaldnast af hlutunum og
segir frá á innihaldsríkan hátt.
Lífsspeki hans virðist heilsteypt
og mann rekur oft í rogastans yfir
sannleikskornunum sem hann
lætur falla. Reyndar finnst manni
sumt sem hann lætur hafa eftir
sér tilgerðarlegt en á endanum
skynjar maður að Bono meinar
hvert einasta orð sem hann segir
sem eru oft í meira lagi hnyttin.
Bókin er langt frá að vera ein-
göngu fyrir aðdáendur U2 (skrifar
sá sem finnst sveitin vera ein sú
ofmetnasta í bransanum í dag, alla
vega frá Joshua Tree). Bono er
einfaldlega svo hrífandi mann-
eskja að það er ekki annað hægt
en að hafa áhuga á orðum hans og
sem ævisaga lýsir þessi bók mann-
eskjunni og persónunni Bono frá-
bærlega.
Steinþór Helgi arnsteinsson
Berstrípaður Bono
bækur
bono um bono
Michka Assayas, þýðing: Orri
Harðarson
Sögur
HHHH
Forvitnileg en umfram allt opinská
bók þar sem Bono afhjúpar
tilfinningar sínar og gefur sig til
lesandans beint í æð.
Framleiðandi kvikmyndanna um
Harry Potter, David Heyman,
hefur keypt kvikmyndaréttinn að
Þrettándu sögunni eftir Diane
Setterfield sem slegið hefur ræki-
lega í gegn víða um heim. Þegar
handritið barst útgefendum varð
uppi fótur og fit því að allir vildu
tryggja sér útgáfuréttinn og var
bókin gefin út samtímis á yfir
þrjátíu og fimm tungumálum.
Þegar bókin kom út í Bandaríkjun-
um rauk hún beint í fyrsta sæti
metsölulista New York Times og
hefur setið á listanum síðan, eða í
níu vikur samfleytt.
Í sögunni segir frá Margaret
Leu, ungri konu sem vinnur í forn-
bókaverslun föður síns, sem fær
bréf frá hinni torræðu Vidu
Winter, einni þekktustu skáldkonu
Bretlands. Í
sex áratugi
hefur Vida
sagt frétta-
mönnum
uppdiktaðar
sögur úr
eigin lífi en
tekur síðan
ákvörðun
um að segja
sannleikann
um tragíska
og leyndar-
dómsfulla ævi sína. Margaret
reynir að komast að hinu sanna
um fortíð Vidu en afhjúpar í leið-
inni margt sem áður var á huldu í
hennar eigin lífi. Báðar þurfa kon-
urnar því að horfast í augu við
drauga fortíðarinnar.
Metsölubók í bíó