Fréttablaðið - 04.12.2006, Blaðsíða 79
4. desember 2006 MÁNUDAGUR46
Hrósið …
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
… fær Halldór Baldursson
teiknari sem býður fórnar-
lömbum skopteikninga sinna
að ræða málin og gera upp í
útgáfuteiti vegna bókar hans.
„Þetta er aldeilis búið að vinda
upp á sig, mest allur minn frítími
fer í að brjóta saman blöð og líma
á þau strikamerki,“ segir Óttar
Martin Norðfjörð, ævisöguhöf-
undur Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar prófessors.
Fyrsta „bindi“ ævisögunn-
ar, Hannes – Nóttin er blá,
mamma hefur slegið óvænt í
gegn og er í þriðja sæti met-
sölulista Eymundsson og
hjá útgefanda voru öll
eintök uppurin. Óttar
var í óðaönn að dreifa
ritinu í bókabúðir þegar Frétta-
blaðið truflaði hann. „Fyrsta upp-
lag var þúsund eintök og ég varð
því að gjöra svo vel að
kveikja á ljósritunarvél-
inni og prenta annað til,“
segir Óttar. „Nú þegar er
ég búinn að koma 500 ein-
tökum til viðbótar í
búðir.“
Upphaflega stóð til
að bókin yrði
aðeins seld í
bókabúðum
Máls og menn-
ingar á Lauga-
vegi og
Eymunds-
son í Aust-
urstræti
en í ljósi mikillar eftirspurnar
verður einblöðungurinn til sölu
í öllum verslunum Pennans-
Eymundsson á landinu. Óttar
segir að þessar vinsældir komi
sér á óvart en er sérstaklega
glaður fyrir hönd Mæðra-
styrksnefndar sem fær
allan ágóða af bókinni,
sem kostar 99 krónur.
„Í fyrstu hélt ég að
það yrðu í mesta lagi
nokkrir þúsundkallar
en það er ljóst að það
verður talsvert meira. Ég
er auðvitað hæstánægður
með það.“
Á annað þúsund eintaka seld
óttar Martin
norðfjörð
Er í óðaönn við að
dreifa ritinu í búðir.
1
Hannes HólMsteinn
gissurarson
Í ritinu er skautað yfir
æsku hans og ungl-
ingsár.
lÁrÉtt
2 sæti 6 dreifa 8 spil 9 heyskapar-
amboð 11 tveir eins 12 gabba 14
nuddast 16 skóli 17 arinn 18 for 20
bor 21 urmull.
lóðrÉtt
1 lofttegund 3 samanburðartenging
4 seinasta 5 niður 7 frammistaða 10
titill 13 fljótfærni 15 XII 16 starfsgrein
19 óreiða.
lausn
Tilnefningar til hinna Íslensku
bókmenntaverðlauna verða kunn-
gjörðar í Kastljósi á fimmtudaginn
kemur. Sami háttur er hafður á í ár
og hingað til: tvær þriggja manna
dómnefndir í flokkum fræðirita
og fagurbókmennta koma sér
saman um hvað sé best í hvor-
um flokki og tilnefna fimm rit til
verðlaunanna, sem eru svo afhent
eftir áramót. Í flokki fræðirita spá
margir Draumalandi Andra Snæs
Magnasonar velgengni en einnig
eru talin til verk á borð við Íslenska
hella eftir Björn Hróðmarsson
og ævisögu Matthíasar
Jochumssonar eftir
Þórunni Valdimarsdótt-
ur. Þá er ekki ólíklegt
að Óvinir ríkisins eftir
Guðna Th. Jóhannesson
eigi eftir að blanda
sér í slaginn miðað
við fréttir síðustu
daga.
Í flokki fagurbókmennta þykir
spekúlöntum Tryggðarpantur Auðar
Jónsdóttur líkleg til að hreppa
hnossið en einnig telja menn til Á
eigin vegum eftir Kristínu Steins-
dóttur, Sendiherra Braga Ólafsson-
ar og Undir himninum eftir Eirík
Guðmundsson. Sjálfsagt yrði það
til þess að skemmta skrattanum ef
Eiríkur yrði tilnefndur í ljósi þess að
honum þótti það hin mesta hneisa
þegar bók Braga, Samkvæmisleikir,
var ekki tilnefnd fyrir tveimur árum,
og til marks um hvað hin
Íslensku bókmenntaverð-
laun væru handónýt
miðað við núverandi
fyrirkomulag.
Jón Óskar
myndlistarmaður
opnaði glæsilega sýningu verka
sinna í Gallerí 101 á fimmtudaginn.
Seldi hann þó nokkur verk við
opnunina en þar var margt góðra
gesta. Eins og þeir Mörður Árnason
alþingismaður, Jakob Frímann
Magnússon Stuðmaður, Mikael
Torfason aðalritstjóri, Ari Magg
tísku- ljósmyndari, Eiríkur Jónsson
stjörnublaðamaður að
ógleymdum Jónasi Frey-
dal, öðrum sakborninga
í málverkafölsunarmál-
inu mikla.
frÉttir af fólki
„Það sem greinir ketilbjöllur frá
annarri líkamsrækt er að þú lætur
líkamann vinna sem heild og ein-
angrar ekki einstaka vöðva.
Þannig setur maður kröfu á að
vöðvarnir vinni sem eitt kerfi og
gagnist manni þannig í lifandi
lífi,“ segir Vala Mörk Jóhannes-
dóttir, einkaþjálfari og sérfræð-
ingur í rússneskum ketilbjöllum,
sem verið hafa að ryðja sér til
rúms hérlendis.
Ketilbjalla lítur einna helst út
eins og fallbyssukúla sem á hefur
verið skeytt handfangi. Hægt er
að fá þær í mismunandi þyngdum
og með kúlunum eru gerðar ótal
mismunandi æfingar. „Þetta eru
hraðar æfingar sem reyna á þolið,
en um leið hægar lyftur sem
styrkja mann,“ segir Vala og bætir
því við að fitubrennslan sé gífur-
leg. „Það sem í raun og veru gerist
er að þú verður mjög sterkur án
þess að fá bólgna vöðva, þess
vegna eru konur líka svo hrifnar
af þessu.“
Ketilbjöllurnar hafa slegið í
gegn úti um allan heim á síðustu
árum, en þeirra hefur notið við í
lengri tíma í Rússlandi og hefur
verið eitt helsta leyndarmál afreks-
íþróttamanna þar í landi. Æfing-
arnar sem gerðar eru með ketil-
bjöllum eru stuttar en snarpar og
taka yfirleitt ekki lengri tíma en
hálftíma. Vala kynntist ketilbjöll-
unum á netinu ásamt eiginmanni
sínum, Guðjóni Svanssyni, og í
kjölfarið fóru þau á kynningar-
námskeið í Kaupmannahöfn. Í
sumar fór hún svo á annað nám-
skeið þar sem hún nældi sér í
kennsluréttindi á bjöllurnar. „Við
hjóninn fundum strax hvað við
græddum meira á þessu og það
hafa aðrir sem prófa þetta fundið
líka,“ segir Vala. Þeir sem eru
áhugasamir um ketilbjöllur geta
heimsótt heimasíðuna kettlebells.
is en þar er hægt að nálgast ítar-
legar upplýsingar um komandi
námskeið og fleira. - hal
Ketilbjöllur nýtt æði í líkamsrækt
Vala Mörk jóHannesdóttir Segir
ketilbjöllur vera bestu líkamsræktina.
HeiMasíðan opnuð Siv Friðleifsdóttir
heilbrigðisráðherra opnaði síðuna kett-
lebells.is og fékk að launum sína eigin
bjöllu til þess að æfa sig með.
Smáborgarinn Fjóla er aðalpers-
óna sjónvarpsþáttar sem tökur
hefjast á í dag. Fjóla er úr smiðju
Ólafíu Hrannar Jónsdóttur leik-
konu, en óvenjuhátt hlutfall
kvenna er við stjórnvölinn við
þáttagerðina.
Fjóla er flestum Íslendingum að
góðu kunn þar sem hún á sér sögu
allt frá því í áramótaskaupinu 1989,
þegar Ólafía Hrönn Jónsdóttir leik-
kona kom fyrst fram fyrir hennar
hönd. „Það er skrýtið til þess að
hugsa að við Fjóla höfum átt sam-
leið svona lengi en ég hef líka gefið
henni löng frí inn á milli, jafnvel í
einhver ár. Engu að síður virðist
fólk þekkja hana ákaflega vel og
tekur meira en vel í að fá hana sem
reglulegan gest heim í stofu, þannig
að mér fannst alveg kominn tími á
hana,“ segir Ólafía Hrönn.
„Fjóla er líka alveg rosaleg kell-
ing. Henni finnst hún tilheyra fína
fólkinu en það er engu að síður
pakk-púki í henni. Hún er líka
þannig að ef hún kemst upp með að
ota sínum tota á kostnað annarra
þá hikar hún aldrei og á sama tíma
hugsar hún aðeins allt það versta
um aðra.“
Persóna Fjólu er greinilega
skýr í kollinum á Ólafíu Hrönn
enda getur hún nánast rætt um
hana eins og gamla vinkonu. „Það
var alveg rosalega gaman að
skrifa þetta og talsverð viðbrigði
frá „sketsa“ forminu. Munurinn
felst í því að takast á við að mynda
heildstæða sögu og þá verður hver
persóna líka skýrari og sterkari
fyrir vikið. Fyrir mér er Fjóla
fyrst og fremst smáborgari og það
af skemmtilegustu gerð svo ég
vona bara að Íslendingar fái að
njóta sem flestra þátta með henni
blessaðri.“
Tökurnar sem eru að hefjast í
dag eru ekki alveg með hefð-
bundnum hætti þar sem um svo-
kallaðan „pilot“ eða prufuþátt er
að ræða. Vigdís Gunnarsdóttir
leikstjóri bendir á að þetta sé í
raun faglega leiðin að því að vinna
svona gamanþætti þar sem vinnsl-
an snýst um að taka einn prufu-
þátt til þess að sjá hvernig hlutirn-
ir gera sig. En það er einnig
óvenjulegt við verkefnið að óvenju
margar konur koma að gerð þátt-
anna. „Það er sérstaklega skemmti-
legt að vinna með öllum þessum
hæfileikaríku og kláru konum. Að
mínu mati er líka nauðsynlegt að
konur fái slík tækifæri í kvik-
myndagerð,“ segir Vigdís og er
greinilega ánægð með hvaða fólk
kemur að verkinu.
Handritið og Fjóla eru afsprengi
Ólafíu Hrannar, Hera Ólafsdóttir
er framleiðandi, Sigurbjörg Jóns-
dóttir klippir, Helga Stefánsdóttir
er með búningana og Ragnhildur
Gísladóttir verður með tónlistina.
„Þröstur Leó og Kjartan Guðjóns-
son fá svo að vera strákarnir
okkar á setti en þeir eru með lykil-
hlutverk í þáttunum.“
magnusg@frettabladid.is
ÓlAFÍA Hrönn JÓnSDÓTTIr: Konur allt í öllu í nýjum sjónvarpsþætti
Fjóla smáborgari í sjónvarp
skapari fjólu „Það er pakk-púki í Fjólu en hún er líka smáborgari af skemmtileg-
ustu gerð,“ segir leikkonan Ólafía Hrönn Jónsdóttir.
Vigdís gunnarsdóttir leikstjóri
„Það er sérstaklega skemmtilegt að
vinna með öllum þessum hæfileikaríku
og kláru konum.“
PAKKAFERÐIR
VIÐ ALLRA HÆFI
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
42.900 kr.
Hvernig væri að upplifa dýrð jólanna í litla ríkinu
Lúxemborg? Þetta er tilvalið tækifæri til að
skreppa til vina og kunningja í borginni og njóta í
leiðinni þess besta í mat, drykk, verslun, tónlist
og alls þess sem borgin hefur upp á að bjóða á
aðventunni. Gist verður á Hótel Carlton, 4* hótel
í hjarta borgarinnar. Innifalið er flug, akstur til og
frá flugvelli, gisting í 3 nætur á 4* hóteli með
morgunverði, skoðunarferð á jólamarkaðinn í
Metz og íslensk fararstjórn.
HELGAFERÐ
TIL LÚXEMBORGAR
15.–18. desember
Verð á mann í tvíbýli:
61.900 kr.
Express Ferðir og Borgarleikhúsið setja upp
sameiginlega ferð í Nýju Óperuna í
Kaupmannahöfn. Íslenski óperusöngvarinn
Magnús Gíslason mun taka á móti hópnum
og fara yfir sögu Óperunnar. Í boði er að sjá
hina frægu óperu Richards Wagners um
svanatemjarann Lohengrin og ástkonu hans
Elsu. Þetta er uppsetning sem enginn
óperuunnandi má missa af. Innifalið er flug,
gisting í 3 nætur á 4* hótelinu Hotel Imperial
Copenhagen, með morgunverði, akstur til og
frá flugvelli og miði á Lohengrin í Nýju
Óperunni.
ÓPERUFERÐ
TIL KÖBEN
Verð á mann í tvíbýli:
12.–15. janúar
lÁrÉtt: 2 sess, 6 sá, 8 níu, 9 orf, 11
ðð, 12 narra, 14 núast, 16 fg, 17 stó,
18 aur, 20 al, 21 grúi.
lóðrÉtt: 1 óson, 3 en, 4 síðasta, 5
suð, 7 árangur, 10 frú, 13 ras, 15 tólf,
16 fag, 19 rú.
1 ögmundur Jónasson, Kolbrún
Halldórsdóttir og Katrín Jakobs-
dóttir.
2 50 ár
3 Þórhallur Sigurðsson (laddi).
Veistu sVarið
Svör við spurningum á bls. 8