Fréttablaðið - 04.12.2006, Side 8
8 4. desember 2006 MÁNUDAGUR
VESTURLAND Um helgina var tekin í
notkun 2.760 fermetra reiðhöll á
Mið-Fossum 2 á Hvanneyri.
Ármann Ármannsson frá Miðhús-
um lét byggja höllina en við hana
er hringvöllur og hesthús þar sem
aðstaða verður fyrir áttatíu hross.
Þá er á svæðinu kennslustofa og
eldhús og góð aðstaða fyrir stór-
mót og sýningar.
Landbúnaðarháskóli Íslands
mun hafa höllina á leigu næstu
tólf árin og segir Ágúst Sigurðs-
son, rektor LBHI, höllina og
aðstöðuna þar í kring verða notaða
til kennslu, við barna- og unglinga-
starf, í rannsóknarstarfsemi og
hrossarækt.
„Þessi aðstaða er gríðarleg
lyftistöng fyrir hestamennsku á
svæðinu og ég held að það sé óhætt
að segja að hún sé ein sú besta á
landinu. Ármann er að gefa svæð-
inu mikið með því að koma aðstöð-
unni upp og verður hún í nýtingu
allan ársins hring.“
Ágúst giskar á að á milli 500 og
600 manns hafi verið á svæðinu á
laugardaginn þegar reiðhöllin var
vígð. Í tilefni vígslunnar var boðið
upp á hópreið, reiðkennarar Land-
búnaðarháskólans héldu skraut-
sýningu og Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra ávarpaði gesti.
Þá buðu Ármann og fjölskylda
hans gestum upp á veitingar. - hs
Veistu sVarið?
ÖRYGGISMÁL Utanríkisráðherra,
Valgerður Sverrisdóttir, hefur
ákveðið að gerð verði þarfagrein-
ing á flugvernd í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Að fengnum niður-
stöðum hennar verður tekin
ákvörðun um hvernig rekstri
öryggisgæslu í flugstöðinni verð-
ur háttað, það er hvort hún verði
boðin út eða verði til að mynda á
hendi sýslumannsembættisins á
Keflavíkurflugvelli.
Utanríkisráðherra hefur ákveð-
ið að gerður verði þjónustusamn-
ingur um svokallaða þriðju landa
leit milli flugvallarstjóra og sýslu-
mannsembættisins á Keflavíkur-
flugvelli. Hann tekur gildi á ára-
mótum og er gildistími hans eitt
ár, að sögn Jóns Egils Egilssonar,
skrifstofustjóra varnarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins.
„Það hafa verið áætlaðar 160
milljónir til verksins á gildistíma
samningsins, en sú áætlun byggði
á mati flugmálastjórnar á
Keflavíkurflugvelli,“ segir Jón
Egill. „Flugvallarstjóri og sýslu-
maður gera umræddan samning
milli sinna embætta.“
Hvað varðar þarfagreiningu
öryggisgæslunnar segir hann að
gerð verði sérfræðileg úttekt á
mögulegum rekstrarútfærslum
vegna vopnaleitar í Leifsstöð til
framtíðar litið.
„Við höfum haft af því nokkrar
áhyggjur að slík greining, sem
hlýtur að vera forsenda fyrir
framtíðarskipulagi og jafnframt
því að öryggisgæslan verði boðin
út, hefur ekki farið fram. En
þegar hún hefur nú farið fram og
niðurstöður hennar liggja fyrir
verður tekin ákvörðun um fram-
haldið. Það mun gera þriggja
manna starfshópur, sem ráðherra
hefur ákveðið að settur verði á
laggirnar. Hann verður skipaður
fulltrúum samgönguráðuneytis,
dómsmálaráðuneytis og utanríkis-
ráðuneytis.“
Formaður hópsins verður full-
trúi samgönguráðuneytis og segir
Jón Egill ástæðu þess vera þá að
með tíð og tíma muni reksturinn á
Keflavíkurflugvelli færast frá
utanríkisráðuneyti til samgöngu-
ráðuneytis. Ekki sé ákveðið hve-
nær það verði, en lögð sé áhersla á
að sá flutningur fari skipulega
fram, en ekki verði flanað að
neinu.
„Þetta er einn liður í því að
koma öllum þeim að þessu máli,
sem það varðar,“ bætir hann við.
„Þessi hópur mun gefa álit, byggt
á þarfagreiningunni, á hvernig
flugverndinni í heild sinni skuli
hagað til frambúðar. Það gildir
ekki einungis um þessa þriðju
landa leit, sem hefur verið til
umfjöllunar að undanförnu, og er
einungis brot af heildinni, heldur
alla leit, sem verður á þessu bið-
tímabili á einni hendi hjá sýslu-
manni.“
jss@frettabladid.is
LeiFsstÖð Fyrirkomulag svokallaðrar þriðju landa leitar hefur verið nokkuð til umfjöllunar, en hún er einungis brot af allri öryggis-
gæslu í flugstöðinni.
Sérfræðileg úttekt á
flugvernd í Leifsstöð
Utanríkisráðherra ætlar að láta gera þarfagreiningu á flugvernd í Leifsstöð til
að komast að raun um hvort hagkvæmast sé að bjóða rekstur öryggisgæslunnar
þar út, eða hafa hana hjá sýslumannsembættinu á Keflavíkurflugvelli.
1. Hvaða þrír einstaklingar
fengu flest atkvæði í forvali
VG á höfuðborgarsvæðinu um
helgina?
2. Um helgina var afmælis-
hátíð haldin á Kúbu, hve mörg
ár eru frá valdatöku Fídels
Kastrós í landinu?
3. Hvaða þjóðþekkti skemmti-
kraftur mun á næstunni gefa
út safndiskinn Hver er sinnar
gæfu smiður?
sVÖrin eru á síðu 46
DóMSMÁL Maður á fimmtugsaldri
var á föstudag dæmdur í fimmtán
mánaða fangelsi fyrir að hafa í
maí síðastliðnum framið rán í
lyfjaversluninni Apótekaranum.
Maðurinn gekk inn í verslun-
ina, hélt öxinni ógnandi á lofti og
æpti „contalgin, rítalín, komdu
með það eins og skot.“ Starfsmenn
létu hann hafa lyfin og að því
loknu setti hann þau í rusladall og
hafði sig á brott.
Lögregla grunaði manninn
fljótlega um verknaðinn og var
hann handtekinn þremur dögum
síðar. Við leit á heimili hans fannst
töluvert magn af töflunum og ját-
aði hann í kjölfarið verknaðinn.
Hann sagði ránið hafa verið
skyndiákvörðun sem ekki hafi
verið undirbúin á neinn hátt. Þá
kvaðst hann vera fíkniefnaneyt-
andi og að hann hafi verið í miklu
morfínfráhvarfi þegar ránið átti
sér stað. Maðurinn hefur áður
hlotið fjölmarga dóma á Íslandi og
í Svíþjóð og rauf skilorð fyrri
dóms með broti sínu.
Þetta er annar dómur sem fell-
ur í ránsmáli sem framið var í
Apótekaranum á stuttum tíma. Í
síðustu viku var karlmaður á
þrítugsaldri dæmdur til sömu
refsingar fyrir að hafa í febrúar
síðastliðnum rænt verslunina,
vopnaður búrhníf og með hulið
andlit. Hann var einnig á höttun-
um eftir sömu lyfjum. - þsj
Tveir menn hafa verið sakfelldir fyrir vopnuð rán í Apótekaranum á einni viku:
Rænd tvisvar á stuttum tíma
apótekarinn Var rændur tvisvar á
þremur mánuðum. Í seinna skiptið öskr-
aði ræninginn „contalgin, rítalín, komdu
með það eins og skot,“ að starfsmanni
verslunarinnar.
LÖGREGLUMÁL Ökumaður á
tíræðisaldri varð valdur að
umferðaróhappi í miðbæ Reykja-
víkur á miðvikudag þegar bifreið
hans rakst saman við aðra.
Tjónvaldurinn ók hins vegar
strax á brott eftir áreksturinn,
hinum ökumanninum til lítillar
gleði. Þegar lögreglan fór að
grennslast fyrir um hann kom í
ljós að sá sem stakk af er á
tíræðisaldri. Hann játaði þó sök
sína greiðlega þegar lögreglu-
menn ræddu við hann.
Að sögn lögreglu hefur
maðurinn ekki áður gerst sekur
um umferðarlagabrot. - þsj
Árekstur í miðbæ Reykjavíkur:
Aldraður öku-
maður stakk af
2.760 fermetra reiðhöll hefur verið tekin til notkunar á Hvanneyri:
Lyftistöng fyrir hestafólk
reiðhÖLLin Vígð Ágúst Sigurðsson,
rektor Landbúnaðarháskóla Íslands,
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra
og Ármann Ármannsson, eigandi reið-
hallarinnar.