Fréttablaðið - 04.12.2006, Page 25
Er þín Eign auglýst hér? MEst lEsna fastEignablað landsins
sólarupprás hádegi sólarlag
reykjavík 10.53 13.18 15.42
akureyri 11.02 13.03 15.02
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Það er handtak í að gera upp heilt
hús. Því hafa þau kynnst parið Eyþór
Guðjónsson kvikmyndaframleiðandi og
Ingibjörg Guðmundsdóttir viðskipta-
fræðingur.
Eyþór og Ingibjörg, sem kölluð er Inga, búa
á Mánabraut 7, Kópavogi. „Þetta er gamalt
hús sem við höfum tekið í gegn nánast frá
grunni og endurbótum er reyndar ekki lokið
enn,“ segir Eyþór glaðlega og býður í bæinn.
Þegar nánar er grennslast um framkvæmd-
irnar kemur í ljós að ýmsir veggir hafa verið
fjarlægðir, raf- og pípulagnir endurnýjaðar,
ný gólfefni lögð, ný eldhúsinnrétting sett
upp og baðherberginu breytt.
Opið er úr eldhúsinu inn í stofu og því er
nokkurs konar alrými í miðju húsinu. Stórt
og mikið borð setur svip sinn á það. Að sögn
húsráðenda er það sérsmíðað úr massívu
parketti og er ekki minna en 200 kíló að
þyngd. „Okkur finnst að eldhúsið eigi að vera
miðpunktur heimilisins. Því vildum við vera
með eitt stórt borð sem þjónar bæði sem eld-
húsborð og borðstofuborð,“ segir húsfreyj-
an.
Húsið er á einni hæð ef undan er skilinn
kjallari sem nú er bæði notaður sem geymsla
og nýtist líka börnunum á heimilinu ágæt-
lega sem sjónvarpsrými. Þar hafa þau meira
að segja ekta bíóstóla í láni og ekki spillir
það stemningunni.
Fjölskyldan er alsæl með húsið sem keypt
var sumarið 2004. Það er reyndar að verða of
lítið því nú er nýr erfingi á leiðinni. Eyþór
segir þau þó alls ekki vera í söluhugleiðing-
um. „Við þurfum að bæta við plássið og við-
bygging er á teikniborðinu,“ segir hann og er
greinilega ekki af baki dottinn í framkvæmd-
unum. Frh. á síðu 2. gun@frettabladid.is
Bráðum á að byggja
við á Mánabraut
Ingibjörg og Eyþór með börnin Karenu Björk, Óttar og Karenu. fréttaBlaðIð/hEIða
séríbúð í kjallara
fastEIgnasalan ÁrBorgIr Er mEð rEIsulEgt EInBýlIs-
hús Á sElfossI tIl sölu.
Víðivellir 1 er 288,7 fermetrar og skiptist í kjallara, hæð,
ris og bílskúr. Á miðhæð er er flísalögð forstofa og hol,
parketlagt herbergi,
flísalagt gestasalerni,
tvær parkettlagðar stofur
með góðum gluggum
og flísalagt eldhús með
fallegri innréttingu með
kirsuberjaviði.
Í risinu eru tvö parkett-
lögð herbergi, flísalagt
hjónaherbergi með stórum svölum, nýuppgert flísalagt
baðherbergi með hornbaðkari og þakglugga.
Í kjallara er rúmgott þvottahús með góðri vinnuaðstöðu ,
stórt baðherbergi með innréttingu, saunaklefa og pláss fyrir
líkamsræktartæki og lítil íbúð sem hentar vel til útleigu.
Íbúðin skiptist í stofu með svefnkrók og skápum, eldhús,
baðherbergi og forstofu.
Bílskúr er nýlegur og flísalagður með hita í gólfum og stóru
geymslulofti. Bílaplan er hellulagt með hitalögn og falleg
hellulögn er fyrir framan húsið. garður er gróinn og snyrti-
legur með afgirtri timburverönd.
Ásett verð er 47,9 milljónir.
góðan dag!
í dag er mánudagurinn
4. desember, 338. dagur
ársins 2006.
Munir úr ölluM
áttuM
Málverk, kristall,
trémunir og tauþrykk
af hjartans list
hús 4
fastEignasölur
Ás 10
Árborgir 8
Búseti 16
Draumahús 20
Eignastýring 24
Eignaval 2 5
fast. og fyrirtækjasalan 23
gimli 13
húsavík 7
Kjöreign 9
lundur 12
lyngvík 15
múli 22
neteign 7
nýtt heimili 19
smárinn 25
stórborg 17
Viðskiptahúsið 6