Fréttablaðið - 04.12.2006, Page 27
MÁNUDAGUR 4. desember 2006
Guðmundur Óli Scheving
skrifar um meindýr og meindýravarnir
Lesendum Fréttablaðsins er velkomið að senda fyrirspurn
á netfangið gudmunduroli@simnet.is.
Bjöllur af þessari ætt hafa ekki
hlotið íslenskt heiti og eru því með
eitt samheiti, fleskbjalla. attagenus
smirnovi er tiltölulega nýr land-
nemi á Íslandi og hefur ekki hlotið
íslenskt nafn. nokkur afbrigði hafa
fundist hér á landi.
Tegundin er upprunnin í afríku
en er nú algeng í norðan-
verðri evrópu. Hún þrífst
best við 20°C og lifir því
ekki utanhúss hér á landi.
Bjöllurnar fljúga ágætlega
og geta flogið á milli húsa á
góðviðrisdögum. Þær sækja
í birtu og finnast því oft í
gluggum.
Bjallan og lirfan
skemma skinnavöru,
náttúrugripi, ullarvöru
og alls konar matvöru.
Bjallan sækir mjög í ost
og áður fyrr settu menn
ost í glas til að veiða hana
en það brást ekki að eftir
skamma stund var bjalla
komin í ostinn. Þessar
bjöllur eru að berast til
okkar öðru hvoru. eini möguleikinn
til að losna við þær er að láta úða
fyrir þeim. Það er því afar mikilvægt
að ná sýni af bjöllum og öðrum
skordýrum og áttfættlum til að láta
greina dýrin.
Bjallan er svört eða brún að
lit með þremur blettum sem eru
brúnleitir eða gráir eftir því hvaða
afbrigði er á ferð. frambolur er
dekkri en afturbolur. Hún er 2,5-4
mm löng. Lirfurnar eru brúnar, allt
að 8 mm langar, svolítið gulrót-
arlaga með langt tagl aftur úr sér.
fullorðnu bjöllurnar nærast ekki en
lirfurnar lifa á þurrum leifum dýra
og plantna, s.s. hárum, fiðri, dauð-
um skordýrum og fræjum plantna.
Yfirleitt eru bjöllurnar skaðlausar í
heimahúsum en geta valdið skaða
á náttúrugripasöfnum þar sem
lirfurnar herja á dýrahami.
erfitt getur reynst að losna
við kvikindin því lirfurnar
eru ljósfælnar og geta
auðveldlega leynst á óað-
gengilegum stöðum, t.d. á
bak við og undir eldhúsinn-
réttingu, undir ísskáp og
eldavél, bak við gólflista
og í öðrum skúmaskot-
um þar sem erfitt er að
ryksuga og þrífa.
Varnaðarorð
Þegar fólk þarf að fá til
sín meindýraeyði eða
garðúðara, hvar á landinu
sem er, skal alltaf óska
eftir því að fá að sjá
starfsréttindaskírteini
útgefið af umhverfisstofnun og
eiturefnaleyfi gefið út af lög-
reglustjóra/sýslumanni og það
mikilvægasta er að viðkomandi hafi
starfsleyfi frá viðkomandi sveitar-
félagi.
Heimildir: Upplýsingar og fróðleikur um
meindýr og varnir 2004
Greining skordýra 2006 Náttúrufræði-
stofnun Íslands
Greining skordýra 2006 Náttúrufræðistofa
Kópavogs
Fleskbjalla
(Dermestes lardarius) (Attagenus smirnov)