Fréttablaðið - 04.12.2006, Qupperneq 29
MÁNUDAGUR 4. desember 2006
Hvítara en hvítt
Hægt er að endurvekja Hvíta litinn með ýmsu móti.
leiðinleg te- eða kaffiskán gerir hvíta og fallega bolla brúna og
móskulega að innan, eins og þeir séu skítugir.
til að losna við þessa bletti og skán er sniðugt að nota
hreinsitöflu fyrir gervitennur. Fyllið bollann með heitu
vatni og setjið eina töflu í. Þegar hún hættir að freyða
skal tæma bollann. ef hann er ennþá blettóttur skal
endurtaka aðgerðina.
til að ná aftur í hvíta litinn á munnþurrkum,
borðdúkum og meira að segja sokkum er
ráð að fylla stóran pott af vatni og setja þó
nokkrar sítrónusneiðar í. látið sjóða og
slökkvið svo undir. setjið tauið út í og látið
liggja í svona klukkutíma og þvoið svo í
þvottavélinni eins og venjulega.
allir vilja halda bollunum sínum svona
hvítum.
Stækkaðu við þig
er Heimilið Þitt lítið? ekki
örvænta, Það eru ýmis ráð
til að nýta lítil svæði og láta
Heimilið líta út Fyrir að vera
miklu stærra.
n Byrjaðu í loftinu. Hengdu
gardínurnar hátt upp til að draga
augað upp á við og hengdu
myndirnar líka aðeins ofar á
veggina en þú myndir gera í
stærra rými.
n endurspeglaðu heimilið. settu
nokkra spegla á rétta staði og
láttu þá endurvarpa einhverju
fallegu. Þá virkar heimilið stærra.
n opnaðu á milli herbergja.
Þó það sé mikilvægt að greina
á milli herbergjanna er ekki
sniðugt að taka óþarfa aukapláss
í veggi. til dæmis er kjörið að
opna milli eldhúss og stofu. ef
þú vilt greina á milli herbergja
skaltu mála veggina í mismun-
andi litum eða áferð.
n gerðu það ljóst. ljósir veggir
stækka rýmið en dökkir veggir
minnka.
n Hafðu sama gólfefnið í öllu
rýminu, þá virkar það stærra.
n Hleyptu sólinni inn. stórir
gluggar og mikið dagsljós geta
gert kraftaverk.
n Byggðu yfir svalirnar eða ver-
öndina. Birtan stækkar íbúðina
svo um munar og svo bætist í
raun við eitt herbergi í viðbót.
yfirbyggðar svalir stækka heimilið
og gera það bjartara.
Evíta
Hárgreiðsla og gjafavörur
Klipping og jólavörur
í sömu ferðHárþjónusta á frábæru verði,
gerið svo vel að panta tíma
Verið velkomin - Lára og Eva
verðdæmi:
Klipping, m. þurrkun 2.500
Lagning, stutt hár * 1.500
Blástur, stutt hár * 2.100
Strípur m. álpappír * 4.900
Permanent, stutt hár * 3.900
Hárlitun, stutt hár 3.400
* dýrara í síðara hár.
Þetta er verðskrá virka daga,
20% dýrara á laugardögum.
starmýri 2, 108 reykjavík • sími 553 1900 • www.evita.is
Fiskfars á fínu ver›i
Ævint‡ralegar fiskbú›ir
Hamraborg 14a • Skipholti 70
Höf›abakka 1 • Vegamótum (Nesvegi 100)
Sundlaugavegi 12 • Háaleitisbraut 58-60
Nú er sannkalla› sprengitilbo› á d‡rindis
fiskfarsi í Fiskisögu og flví tilvali› a›
bjó›a upp á frábærar fiskbollur í kvöld.
Fljótlegra og betra ver›ur fla› ekki.
Fiskfars 390 kr. kílói›.