Fréttablaðið - 04.12.2006, Page 58

Fréttablaðið - 04.12.2006, Page 58
 4. desember 2006 MÁNUDAGUR26 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis­ atburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér til hliðar má senda á netfangið timamot@fret- tabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Alhliða útfararþjónusta í 16 ár Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • utfarir@utfarir.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, Kristín Gestsdóttir Grænagarði, Garðaholti, Garðabæ, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ miðvikudaginn 6. desember kl. 13. Sigurður Þorkelsson Jóhann Sigurðsson Ingibjörg St. Sigurðardóttir Hólmfríður Sigurðardóttir Ágúst Þ. Gunnarsson Bjarney Sigurðardóttir Þór Sverrisson barnabörn og langömmubarn. Elskuleg kona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingibjörg Sófusdóttir áður til heimilis að Köldukinn 13, Hafnarfirði, sem lést á Sólvangi þriðjudaginn 28. nóvember, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 6. desember kl. 13.00. Gunnar Guðmundsson Guðmundur Haukur Gunnarsson Guðný Magnúsdóttir Svavar Gunnarsson Rannveig Aðalsteinsdóttir Sævar Gunnarsson Sólveig Jónsdóttir Gunnar Gunnarsson Linda Laufey Bragadóttir Kristinn Gunnarsson Lilja Steinþórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Magðalena Ólafsdóttir húsmóðir, Austurgerði 8, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni þann 27. nóvember sl. Jarðarförin fer fram í Bústaðakirkju þriðjudaginn 5. desember kl. 13.00. Hannes Vigfússon Ómar Hannesson Anna Karlsdóttir Elín Hannesdóttir Baldur Hannesson Særós Guðnadóttir Haukur Hannesson Bryndís Hannesdóttir Halldór Helgason barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur minn, vinur, bróðir okkar, mágur og frændi, Ásgeir Hilmar Jónsson Bræðraborgarstíg 32, Reykjavík, sem lést af slysförum sunnudaginn 26. nóvember, verður jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 6. desember kl. 15.00. Þorbjörg Eiríksdóttir Bára Bryndís Sigmarsdóttir Jón Guðmundsson Guðný Ragnarsdóttir Jóna Halldórsdóttir Svanur Pálsson Ragnhildur Þórólfsdóttir og systkinabörn. Merkisatburðir 1619 Fyrsta þakkargjörðarhá- tíðin fer fram í Virginíu í Bandaríkjunum. 1829 Bretland afnemur „sut- tee“, þann sið að ekkjur séu brenndar á líkbáli eiginmanna sinna á Indlandi. 1954 Kvikmyndin Salka Valka, sem gerð var eftir sögu Halldórs Laxness, er frumsýnd í Austurbæj- arbíói og Nýja bíói í Reykjavík. 1971 Veitingahúsið Glaumbær við Fríkirkjuveg brennur. Þetta var einn vinsælasti skemmtistaðurinn í heil- an áratug. 1991 Síðasta bandaríska gísl- inum er sleppt úr haldi í Líbanon. Maðurinn hafði þá verið í haldi mann- ræningja í 2.454 daga. chloé ophelia gorbulew fyrirsæta er 25 ára í dag „Að vera eða ekki vera. Það er þekkt setning, sem allir hafa hugsað um og væntan- lega sagt, en höfum við virkilega brotið heilann um hana?“ Chloé veltir lífinu fyrir sér á myspace-síðu sinni. „Það er ekki á hverjum degi sem við verðum 120 ára og vitaskuld héldum við upp á það með pomp og prakt,“ segir Guðjón Sveinsson, en hann og Ólafur tvíburabróðir hans eru sextugir í dag. Bræðurnir tóku hins vegar for- skot á sæluna og héldu veglega upp á daginn í húsnæði Golfklúbbsins Keili í Hafnarfirði á laugardag. „Þangað mættu fjölmargir af vinum okkar og vandamönnum og yljuðu okkur með hlýju hjartalagi og faðmlagi. Meira er ekki hægt að fara fram á.“ Guðjón segir að þeir bræður séu fráleitt mikil afmælisbörn og hafi í rauninni ekki haldið sérstaklega upp á afmælisdaginn hingað til. „Við höfum yfirleitt látið nægja að hringja í hvor annan og óskað til hamingju með dag- inn. Annars höfum við eiginlega ekk- ert viljað hugsa mikið út í þennan dag.“ Fyrir ári síðan brá Guðjón hins vegar út af venjunni og bauð bróður sínum og fleirum í mat í tilefni dagsins og til- kynnti þá að hann hygðist ætla að halda veglega upp á 60 ára afmælið. „Mér fannst tilvalið að gera það á þessum tímapunkti, á meðan við værum báðir með fullri rænu og viti og kannski ekki sérlega mörg stórafmæli eftir úr þessu,“ bætir hann við kankvíslega. „Í september spurði ég svo Ólaf hvort við ættum ekki að slá saman í veislu. Honum leist ekkert á tilstandið en snerist síðar hugur og við ákváðum að gera þetta í sameiningu.“ Þótt þeir bræður hafi sjaldan séð ástæðu til að gera eitthvað sérstakt saman á afmælisdaginn séu þeir mjög samrýndir. „Ólafur er minn besti vinur og það er eflaust gagnkvæmt. Við leit- um mikið hvor til annars.“ Þeir eru líka á áþekkri hillu í lífinu; Guðjón er jógakennari og starfar hjá fangahjálp- inni Vernd en Ólafur vann árum saman hjá SÁÁ. „Það má segja að við höfum helgað okkur eins konar áfallahjálp,“ segir Guðjón og hlær. Þótt þeir hafi haldið upp á daginn á laugardag segir Guðjón ekki loku fyrir það skotið að þeir geri eitthvað líka á sjálfan afmælisdaginn. „Kannski förum við út að borða, við spilum það bara eftir eyranu.“ bergsteinn@frettabladid.is GuðjóN oG óLAFuR SVeINSSyNIR: 120 ára tvíburar alltaf verið samrýndir Ólafur og guðjÓn Hafa aldrei verið mikið fyrir afmælistilstand en brugðu út af venjunni í ár. FRéttABLAðIð/VILHeLM Þessi dagur árið 1980 var sorgardagur í augum margra tónlistaraðdáenda, en þá sendu meðlimir rokksveitarinnar Led Zeppelin frá sér tilkynningu þess efnis að hljómsveitin hefði lagt upp laup- ana. Nokkur óvissa hafði ríkt um framtíð hennar eftir að trommari sveitarinnar, john Bonham, lést í svefni hinn 25. september sama ár, eftir að hafa neytt óheyrilegs magns af áfengi. Led Zeppelin, skipuð þeim jimmy Page, Robert Plant, john Paul jones og john Bonham, varð til úr rústum sveitarinnar the yardbirds árið 1968. Page, sem var bassaleikari the yardbirds, þurfti að manna sveit- ina fyrir tónleikaferðalag um Skandinavíu eftir að aðrir meðlimir hennar héldu til annarra starfa. eftir ferðalagið tóku félagarnir sér nafnið Led Zeppelin. orðatiltækið „lead zeppelin“ var stund- um notað yfir slæma tónleika, í þeim skilningi að þeir hefðu farið eins og zeppelin- loftskip úr blýi: niður á við. Led Zeppelin naut gríðarlegra vinsælda á starfstíma sínum, og hafði að sögn margra jafn mikil áhrif á tónlistarheiminn á áttunda áratugnum og Bítlarnir höfðu haft áratugi á undan þeim. Á meðal afraksturs erfiðis þeirra eru víðfræg lög eins og Stairway to Heaven og Dazed and Confused. Á seinni hluta áttunda áratugsins dró þó nokkuð úr drifkrafti þeirra, sérstak- lega eftir að Robert Plant meiddist í bílslysi og missti ungan son sinn skömmu síðar. Það var þó dauði Bonham sem gerði endanlega út af við sveitina, þar sem hljómsveitarmeðlim- um fannst ógerlegt að finna mann í hans stað. þetta gerðist: 4. DeSeMBeR 1980 Led Zeppelin leggur upp laupana Starfsfólk Air Atlanta Ice- landic hefur ákveðið að gefa jólagjöf sína frá fyrirtæk- inu til Ástu Lovísu Vil- hjálmsdóttur sem berst við krabbamein. Upphæðin er 500.000 krónur og má segja að það sé snemmbúin jóla- gjöf til Ástu og barna henn- ar svo hún geti undirbúið jólin án þess að hafa fjár- hagsáhyggjur. Hannes Hilmarsson, for- stjóri Atlanta, segir þetta í fyrsta skipti sem starfsfólk ánafni jólagjöfina til góðs málefnis en hann lítur á gjöf- ina sem samhug í verki af hálfu starfsmannanna. Um 280 fastráðnir starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu. - hs Starfsfólk Atlanta gefur Ástu Lovísu hálfa milljón ásta lovísa fær styrk Ásta ásamt tveimur barna sinna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.