Fréttablaðið - 04.12.2006, Síða 66

Fréttablaðið - 04.12.2006, Síða 66
 4. desember 2006 MÁNUDAGUR34 Fólk sem situr um fræga einstaklinga er því miður frekar algengt fyrirbæri. Er þetta fólk jafnan hald- ið þeim ranghugmyndum að það tengist fólkinu á einhvern hátt og getur sú þráhyggja endað í alls kyns vitleysu. Lítið hefur verið um svona fólk hér á landi en undanfarið hefur hver stjarnan á fætur annarri úti í heimi þurft að eiga afskipti af að minnsta kosti einni slíkri mann- eskju. Hafa oftast lögsóknir fylgt í kjölfarið þar sem „umsátursfólkið“ hefur undantekningalítið verið dæmt í nálgunarbann og jafnvel í fangelsi. Björk Björk er líklega þekktasti Íslend- ingurinn sem hefur lent í háska vegna „umsátursmanns“. Sendi hann söngkonunni sprengju í pósti og framdi síðan sjálfsvíg á meðan hann hlustaði á lag hennar. Ástæð- an var sú að hann var afbrýðisamur út í kærasta Bjarkar. Sem betur fer fann nágranni undarlega lykt koma frá íbúð mannsins og lét lög- regluna vita. Náði hún að bregðast við í tæka tíð áður en Björk komst í tæri við sprengjuna. Sandra Bullock Leikkonan Sandra Bullock fór fram á það við stjórnvöld að hún yrði látin vita þegar maður að nafni Thomas James Weldon yrði látinn laus af geðsjúkrahúsi í Tennessee. Samkvæmt dómsmáli frá 2003 má Weldon ekki koma nær henni en hundrað metra. Að sögn leikkonunnar hafði maðurinn sent henni tölvupósta og símbréf og skilið eftir skilaboð hjá henni og fjölskyldu hennar þar sem hann gaf til kynna að hann vildi eiga í ástarsambandi við hana. Hilary Duff Unglingur var nýverið handtekinn í Los Angeles grunaður um að sitja um og hóta leikkonunni Hilary Duff. Höfðu Duff, sem er nítján ára, og kærasti hennar, Joel Madden, úr hljóm- sveitinni Good Charlotte óskað eftir nálgunar- banni gagnvart hinum átján ára Makism Myaskovsky. Játaði hann fyrir rétti þráhyggju sína og að hafa reynt allt til að ná athygli Duff. Hafði hann hótað að drepa sig og leit á Madden sem ógn sem þyrfti að ryðja úr vegi. Colin Farrell Dessarae Bradford má ekki koma nær leikaranum Colin Farrel, syni hans James og móður hans Kim Bordenave en 150 metra sam- kvæmt dómsúrskurði. Ástæðan er sú að hún gekk upp að Farrell á meðan hann var gestur í þætti Jay Leno. Konan hafði verið á meðal áhorfenda. Farrell fylgdi henni baksviðs og var henni síðan vísað í burtu af öryggisvörðum. Farrell taldi konuna ógn við sig og fjöl- skyldu sína og taldi réttast að fara fram á nálgunarbann. Pamela Anderson Kynbomban Pamela Anderson fékk þriggja ára nálgunarbann á William Peter Stansfield eftir að hann fór að spjalla við sjö ára son hennar í skóla hans. Stansfield sagði í blaðaviðtali að ásakanir Anderson væru fáránlegar. Enya Söngkonan Enya hefur átt í vanda- málum vegna frægðar sinnar og ríkidæmis. Einn maður braust inn í kastala söngkonunnar, batt þjónustustúlku hennar, og eyddi síðan tveimur klukkutímum í að reyna að finna Enya, sem náði að fela sig í öryggisherbergi. Þegar hún setti viðvörunarkerfið í gang slapp maðurinn með nokkra muni úr eigu hennar. Viku áður hafði maður brotist inn í hús Enya og var hann handtek- inn skömmu síðar. Árið 1996 flutti 31 árs Ítali til Dublin til að búa nálægt söngkon- unni. Stakk hann sig fyrir utan sveitakrá sem var í eigu foreldra hennar. Catherine Zeta-Jones Kona sem hótaði að skera leikkon- una Catherina Zeta-Jones í litla bita var dæmd í þriggja ára fang- elsi á síðasta ári. Hin 35 ára Daw- nette King sat um leikkonuna og sagðist vera ástfangin af eigin- manni hennar, leikaranum Michael Douglas. „Ég mun aldrei geta gleymt hegðun þinni. Alla mína ævi þarf ég að horfa yfir öxlina á mér af ótta,“ sagði Zeta-Jones við réttarhöldin. „Þú verður aldrei fræg og aldrei alræmd. Þú ert bara glæpamaður.“ Mel Gibson Maður sem hafði verið dæmdur fyrir að hafa setið um leikarann Mel Gibson var dæmur í þriggja ára fangelsi á síðasta ári eftir að hafa brotið nálgunar- bann. Zack Sinclair braut bannið þegar hann gekk upp að Gibson í kirkju á Malibu og spurði hvort hann mætti biðja bænir með honum. Þrátt fyrir að Gibson hafi ekki litið á hann sem mikla ógn taldi hann manninn geta ógnað fjölskyldu hans. Sinclair hafði fyrst samband við Gibson eftir að hann gaf út myndina The Passion of the Christ. Sendi hann Gibson tólf bréf þar sem stóð að Guð vildi að þeir myndu fara saman með bænir. Janet Jackson Hinn 46 ára Robert Gardner má ekki koma nálægt söngkon- unni Janet Jackson næstu árin. Mætti hann með hníf og skæri í upptökuver sjónvarpsstöðvar þar sem Janet var gestur í þættinum Saturday Night Live. Vakti það að sjálfsögðu óhug söngkonunnar. „Ég vil ekki að litið sé á mig sem „umsátursmann“. Ég er einn af aðdáendum hennar,“ sagði maður- inn við réttarhöld- in. Janet sagði manninn hafa búið til sögu um meint samband þeirra og að hann hafi elt hana og reynt að hitta í níu ár. Setið um stjörnurnar Að sitja um einhvern þýðir að mann- eskja brýtur á einkalífi annarrar manneskju og veldur henni ótta. Setið hefur verið um eina af hverj- um tólf konum í Bandaríkjunum einhvern tímann á ævi þeirra. Einn af hverjum 45 körlum hafa lent í svipuðum aðstæðum. Alls er setið um yfir eina milljón kvenna og tæp- lega 380 þúsund karla á hverju ári í Bandaríkjunum. Stundum veit umsátursaðilinn ekki hvað er að eiga sér stað eða þá að hann ætlar sér ekki að meiða neinn. Jafnvel telur hann að fórnar- lambinu líki vel við hann eða að hann hafi einhvers konar þörf til að hjálpa því. Öfugt við aðra glæpi sem ger- ast oftast einu sinni, þá eru brotin síendurtekin hjá „umsátursfólki“. Oft eru þau ekki ólögleg í sjálfu sér, eins og að hringja í fórnar- lömbin, senda þeim gjafir eða tölvupóst. Flest málin fara aldrei svo langt að verða öfgafull þar sem ofbeldi kemur við sögu. Setið um eina af hverjum tólf konum FAtAl AttrACtion Kvikmyndin Fatal Attraction fjallar á eftirminnilegan hátt um konu sem situr um mann sem hafði átt í stuttu ástarsambandi við hana. Aðalleikarinn Michael Douglas hefur sjálfur þurft að glíma við vandamálið í gegnum eiginkonu sína, Catherine Zeta-Jones. Írska hljómsveitin U2 hélt sína fyrstu tónleika í Japan í átta ár á dögunum. Spilaði sveitin fyrir framan tuttugu þúsund aðdáendur í Satiama Super Arena höllinni, skammt frá Tókýó. Áður en Bono og félagar stigu á svið tóku þeir góðan tíma til að skrifa undir eiginhandaráritanir fyrir aðdáendur sem höfðu beðið í margar klukkustundir fyrir utan höllina. Sagði Bono m.a. nokkur orð á japönsku fyrir aðdáend- urna. Bono nýtti einnig tækifærið fyrir tónleikana og hitti forsætis- ráðherra Japans, Shinzo Abe, og gaf honum m.a. forláta sól- gleraugu. U2 í Japan Bono Hljómsveitin U2 hélt sína fyrstu tónleika í Japan í átta ár á dögunum. Ljóst er að Eddie Murphy mun snúa aftur sem lögreglumaðurinn Axel Foley í kvikmyndinni Beverly Hills Cop 4. Eddie hefur þegar skrifað undir samning við Paramount, framleiðanda kvikmyndarinnar en óákveðið er hver leikstýrir kvikyndinni eða skrifar handritið. Tólf ár eru liðin síðan Eddie lék Axel Foley síðast og nú eru fram- leiðendur harðákveðnir í því að leggja í aðra stórmynd. Beverly Hills Cop 3 náði ekki að standa undir væntingum og skilaði ekki nógu miklum aur í kassann. Í þetta skipti eru menn alveg vissir að um skjótan gróða sé að ræða, þar sem fólk sakni þess að sjá kjaftfora rannsóknarlögreglumanninn á hvíta tjaldinu. Axel Foley snýr aftur EDDiE MurPHy Snýr aftur í hlutverki Axel Foley í Beverly Hills Cop 4.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.