Fréttablaðið - 04.12.2006, Side 74

Fréttablaðið - 04.12.2006, Side 74
42 4. desember 2006 MÁNUDAGUR Fótbolti Eggert Magnússon, for- maður KSÍ og tilvonandi stjórnar- formaður West Ham, var á meðal áhorfenda á Goodison Park í gær þegar Everton lagði West Ham, 2- 0, með mörkum Leon Osman og hins unga James Vaughan. „Þetta eru ótrúleg úrslit fyrir okkur,“ sagði himinlifandi stjóri Everton, David Moyes. „Ég veit ekki hvernig strákarnir fóru að þessu. Það voru allir að leika úr stöðum en baráttuandinn var til staðar og einhvern veginn tókst strákunum að landa þessum sigri.“ Alan Pardew, stjóri West Ham, var eðlilega ekki eins kátur. „Það veldur áhyggjum hversu illa okkur gengur að skora. Annars vorum við að spila vel fram að fyrra markinu þeirra. David Moyes bað mig nánast afsökunar í leikslok á að hafa unnið. Carlos Tevez var góður í dag en það myndi hjálpa honum mikið að skora eitt mark,“ sagði Pardew.  -hbg Eggert Magnússon skemmti sér ekki vel á Goodison Park í gær: West Ham tapaði gegn Everton efnilegurLeikmenn Everton fagna hér hinum unga James Vaughan í gær. fréttabLaðið/gEtty imagEs Fótbolti Dregið var í þriðju umferð enska bikarsins í gær og stórleikur umferðarinnar er klárlega viðureign Liverpool og Arsenal sem fram mun fara á Anfield. Man. Utd á erfiðan heimaleik fram undan gegn Aston Villa en Chelsea ætti að fljúga áfram í næstu umferð. áhugaverðirleikir: Liverpool - arsenal man. Utd - aston Villa macclesfield - Chelsea reading - burnley West Ham - brighton Leicester - fulham Enski bikarinn: Arsenal mætir Liverpool HANDbolti HK-ingum mistókst að endurheimta efsta sæti DHL-deild- arinnar í gær er þeir töpuðu, 27-30, fyrir Stjörnunni á heimavelli sínum. Stjarnan hafði forystu frá upphafi til enda og vann mikilvæg- an og verðskuldaðan sigur. „Við vissum að rússneski línu- maðurinn þeirra væri í banni og það er stórt skarð fyrir þá. Við byrjuðum vel, svo virtust menn aðeins missa dampinn en komu aftur öflugir á lokakaflanum. Við spiluðum fína vörn í þessum leik en ég vil meina að Elli hafi gert gæfumuninn í seinni hálfleik,“ sagði Kristján Halldórsson, þjálf- ari Stjörnunnar, en Elías Már Hall- dórsson reyndist sínum gömlu félögum erfiður í síðari hálfleikn- um og spilaði stórt hlutverk í þess- um sigri er hann skoraði fimm mörk. Stjörnumenn náðu mest sex marka forskoti í fyrri hálfleiknum og höfðu 15-12 forystu í hálfleik. HK kom öflugt inn í seinni hálf- leikinn og minnkaði muninn í eitt mark. Stjarnan keyrði þá aftur fram úr, náði fimm marka forskoti og sigraði á endanum með þriggja marka mun. Liðið spilaði öflugan varnarleik og HK-ingar áttu fá ráð. Tite Kalandadze var bestur hjá Garðbæingum og Roland Valur Eradze átti einnig mjög góðan leik. „Tite var ekki alveg heill en hann var öflugur í byrjun. Það er mikilvægt fyrir okkur að ná að leggja toppliðið á þeirra heima- velli. Við getum glaðst yfir því hvernig staðan er hjá okkur í dag,“ sagði Kristján en Patrekur Jóhann- esson, sem hefur ekkert spilað í síðustu leikjum vegna meiðsla, er að jafna sig og kemur aftur inn í næsta leik. Gunnar Magnússon, aðstoðar- þjálfari HK, sagði Stjörnumenn einfaldlega hafa verið betri á öllum sviðum. „Þeir spiluðu frábæra vörn, öfugt við okkur. Við fengum góð færi í fyrri hálfleik en hann Roland hreinlega át þau. Hjá okkur var markvarslan ekkert í líkingu við það sem hún hefur verið,“ sagði Gunnar. Hann sagði sína menn hafi komið rétt stemmda í leikinn og því hafi annað klikkað. Lykilmenn liðsins voru langt frá sínu besta en markahæstur hjá heimamönnum var Valdimar Þórsson. „Menn ætluðu svo sannarlega að ná sigri í þessum leik. Við vorum ekki nægilega sáttir við leikinn gegn Fylki og menn komu vel stemmdir í þetta. Engu að síður voru margir hjá okkur langt frá sínu besta.“  -egm Það var hart barist í Digranesi í gær þegar HK tók á móti nágrönnum sínum úr Garðabæ, Stjörnunni: Stjarnan náði að stöðva HK-hraðlestina titekalandadzefann sig vel í gær og þá var ekki að sökum að spyrja. stjarnan vann og minnti um leið á sig. fréttabLaðið/VaLLi HANDbolti Haukar hafa ekki sagt sitt síðasta í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Það sönn- uðu þeir í gær með frábærum sigri á Íslandsmeisturum Fram að Ásvöllum, 31-28, eftir að hafa verið þrem mörkum undir í leik- hléi, 14-17. Fyrri hálfleikur var mjög fjör- ugur en það voru gestirnir úr Safa- mýrinni sem tóku fljótt forystuna. Hana gátu þeir þakkað massífum varnarleik og skynsömum sóknar- leik. Á meðan var sóknarleikur Hauka mjög ráðleysislegur, illa skipulagður og byggðist algjör- lega á einstaklingsframtökum. Ef ekki hefði verið fyrir góðan leik Andra Stefan og Kára Kristjáns- sonar hefðu Framarar líklega klárað rimmuna fyrir hlé. Síðari hálfleikur byrjaði með miklum látum og allt annað var að sjá til Haukanna sem mættu ákveðnir og grimmir til síðari hálfleiks. Barátta þeirra var fljót að skila sér því eftir um fímm mínútna leik voru Haukarnir komnir yfir, 18-17. Haukar náðu síðan tveggja marka forystu, 20-18, og þá var Guðmundi Guðmundssyni, þjálf- ara Fram, nóg boðið og hann tók leikhlé enda staðan 6-1 í síðari hálfleik. Haukarnir héldu yfir- höndinni þó leikurinn væri hnífjafn. Ákveðinn vendipunktur varð í leiknum þegar sex mínútur lifðu leiks en þá náðu Haukar þriggja marka forystu, 27-24, með glæsi- legu sirkusmarki frá Samúel Árnasyni. Haukar litu aldrei til baka eftir þetta frábæra mark og fögnuður þeirra var innilegur í leikslok. „Það kom aldrei til greina að tapa þessum leik,“ sagði glaðbeitt hetja Hauka í leikslok, Andri Stefan, en hann dró Haukavagninn frá upp- hafi til enda. SKorað falleg mörk og lagði upp fjölda annarra marka. „Baráttan er ekkert búinn. Við höfum enn trú á við getum orðið meistarar og ef við klárum inn- byrðisleikina gegn toppliðunum eigum við möguleika.“ Kári Kristjánsson átti einnig fínan leik og Magnús Sigmunds- son varði mikilvæga bolta í mark- inu. Framarar misstu dampinn í síðari hálfleik og áttu ekkert svar við leikgleði og baráttu heima- manna. Liðsheildin kom liðinu i fína stöðu í leikhléi en liðsheildin var ekki til staðar í síðari hálfleik og Fram vantaði sárlega einhvern til að leiða liðið á erfiðum tímum í síðari hálfleik en sá einstaklingur fannst ekki. henry@frettabladid.is Haukar gefast ekki upp Haukar sendu skýr skilaboð með sigri á Íslandsmeisturum Fram í gær. Það er nóg eftir að mótinu og Haukar telja sig eiga góða möguleika spili þeir eins og í gær þegar liðið sýndi gríðarlegan karakter og kom til baka í síðari hálfleik. hetjahaukaandri stefan er allur að koma til í Haukaliðinu og hann dróg vagninn hjá Haukum í gær gegn fram. fréttabLaðið/VaLLi Felipe Massa hjá Ferrari: Óhræddur við Räikkönen FoRMúlA Felipe Massa, ökuþórinn brasilíski hjá Ferrari, segist óhræddur við samkeppni síns nýja liðsfélaga, Finnans Kimi Räikkön- en. Sá síðarnefndi er eftirmaður Michael Schumacher og er þegar talinn líklegur til að hreppa heims- meistaratitilinn á næsta tímabili. „Hann er öflugur en ég er sjálf- ur í góðri stöðu og tilbúinn að gefa allt í botn. Ég er svo sannarlega ekki hræddur við hann,“ sagði Massa í nýlegu viðtali. -esá massaogkimiVerða félagar hjá ferrari næsta tímabil. nordiC pHotos/afp Fótbolti Michael Owen, framherji Newcastle, vonast til að hann geti jafnað sig af meiðslum sínum nógu snemma að hann geti byrjaði að spila á nýjan leik áður en núverandi tímabili lýkur. Hann sleit krossbönd í hné í leik gegn Svíum á HM í Þýska- landi í sumar. „Ég fer í myndatöku um áramótin og vonandi fæ ég góðar fréttir þá. Vonandi get ég byrjað að skokka í febrúar og keyrt þetta áfram eftir það,“ sagði Owen. -esá Michael Owen: Vill spila á þessu tímabili Enska úrvalsdeildin: EVErton-WEst Ham 2-0 1-0 Leon osman (52.), 2-0 James Vaughan (90.). StAðA eFStU oG NeðStU liðA: man.united16 13 2 1 35-8 41 CHELsEa 15 11 2 2 25-8 35 arsenal 15 7 4 4 25-12 25 portsmoUtH 16 7 4 5 21-14 25 liverpool 16 7 4 5 19-15 25 ------------------------------------------------------------ Westham 15 4 2 9 10-18 14 nEWCastLE 14 3 4 7 9-15 13 Watford 14 1 6 7 10-20 9 CHarLton 15 2 3 10 11-23 9 Iceland Express deild karla Hamar/sELfoss-kr 83-69 nJarðVík-fJöLnir 96-82 tindastóLL-kEfLaVík 83-98 þór þorLáksHöfn-kEfLaVík 80-98 Iceland Express deild kv. HaUkar-brEiðabLik 91-60 DHL-deild karla ír-akUrEyri 34-28 Hk-stJarnan 27-30 Mörk HK (skot): Valdimar þórsson 11/7 (17/9), brendan þorvaldsson 3 (4), tomas Eitutis 3 (7), sigurgeir árni Ægisson 2 (2), ólafur bjarki ragn- arsson 2 (3), brynjar Valsteinsson 2 (4), árni björn þórarinsson 2 (4), ragnar Hjaltested 2 (5), gunnar Jónsson 0 (2), augustas strazdas 0 (3). Varin skot: Egidijus petkevicius 8/1, Hlynur Jóhannesson 7. Hraðaupphlaup: 1 (árni). Fiskuð víti: 9 (brendan 4, tomas 2, augustus, árni, ragnar). Utan vallar: 10 mínútur. Mörk Stjörnunnar (skot): tite kalandadze 8/3 (14/5), Elías m. Halldórsson 5 (6), björn óli guð- mundsson 5 (9), david kekelia 4 (4), gunnar Jóhannsson 4 (6), Volodymir kysil 2 (3), guð- mundur guðmundsson 2 (4),. Varin skot: roland Valur Eradze 19/1. Hraðaupphlaup: 5 (gunnar 3, kysil, kekelia). Fiskuð víti: 5 (kekelia 2, gunnar 2, augustus, björn óli). Utan vallar: 12 mínútur. HaUkar-fram 31-28 (14-17) Mörk Hauka (skot): andri stefan 10 (19), kári kristjánsson 6 (9), guðmundur pedersen 5 (7), árni þór sigtryggsson 5 (13), samúel ívar árnason 3 (6), arnar pétursson 2 (4). Varin skot: magnús sigmundsson 13. Hraðaupphlaup: 7 (andri 3, kári 2, samúel, árni). fiskuð víti: 0. Utan vallar: 6 mínútur. Mörk Fram (skot): andri berg Haraldsson 8 (18), Jóhann gunnar Einarsson 7/2 (9/2), sigfús sigfús- son 4 (7), Haraldur þorvarðarson 3 (5), Einar ingi Hrafnsson 2 (2), stefán stefánsson 2 (3), rúnar kárason 1 (1), þorri b. gunnarsson 1 (4). Varin skot: björgvin páll gústavsson 15, magnús Erlendsson 6. Hraðaupphlaup: 4 (stefán, Jóhann, andri, þorri). Fiskuð víti: 2 (Haraldur, rúnar). Utan vallar: 0 mínútur. StAðAN valur 9 7 0 2250:23114 Hk 9 6 1 2 237:221 13 fram 9 5 1 3271:24611 akUrEyri 9 4 1 4 244:243 9 stjarnan 9 4 0 5240:247 8 HaUkar 9 3 2 4 258:268 8 fylkir 9 2 1 6240:260 5 ír 9 2 0 7 250:274 4 Royal League 1. Riðill brann-ob 1-1 ólafur örn bjarnason lék allan leikinn fyrir brann. kristján örn sigurðsson og ármann smári björns- son voru ekki í hópnum hjá brann. 2. Riðill fC kaUpmannaHöfn-LiLLEström 0-1 Viktor bjarki arnarsson sat allan leikinn á varamannabekk Lilleström. 3. Riðill VåLErEnga-aik 4-2 árni gautur arason lék ekki með Vålerenga vegna meiðsla. Ítalski boltinn: CagLiari - aC miLan 2-2 0-1 alberto gilardino (48.), 1-1 david suazo (53.), 2-1 andrea Capone (65.), 2-2 m. borriello (69.). fiorEntina - LaZio 1-0 1-0 Luca toni (15.). LiVorno - CHiEVo 0-2 torino - EmpoLi 1-0 UdinEsE - rEggina 1-1 StAðA eFStU liðA: inter 14 11 3 0 29-14 36 as roma 14 10 2 2 32-11 32 palermo 14 9 1 4 27-18 28 LiVorno 14 5 5 4 15-15 20 empoli 14 4 7 3 12-10 19 Spænski boltinn: rCd EspanyoL - sEViLLa fC 2-1 rCd maLLorCa - CELta dE Vigo 2-2 rEaL madrid - atHLEtiC biLbao 2-1 prieto (34) - ronaldo (65.), Carlos (82.). StAðA eFStU liðA: fCBarCelona13 9 3 1 32-11 30 rEaL madrid 13 9 2 2 24-9 29 sevillafC 13 9 1 3 26-13 28 a. madrid 13 7 3 3 18-9 24 úrslitleikjaígær

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.