Fréttablaðið - 04.12.2006, Síða 81
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGjuM FRÉTTIR SMáAuGLýSINGASÍMINN ER 550 5000
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
Manneskjur finna til sam-kenndar með öðrum mann-
eskjum. Fólk vill að öðru fólki líði
vel. Að minnsta kosti ekki illa.
Heilbrigðar manneskjur fyllast
samkennd og löngun til að hjálpa
þegar þær frétta af því að aðrar
manneskjur búi við hungur, ótta,
sjúkdóma, eða eigi sér hvergi
athvarf. Maður finnur fyrir van-
máttarkennd og jafnvel reiði
þegar maður heyrir að annað fólk
týni lífinu af völdum einhverrar
ógæfu og ennþá sárari verður
vanmáttarkenndin og gremjan ef
maður veit að það hefði verið í
mannlegu valdi af afstýra ógæf-
unni. Verst af öllu er þó að frétta
af því þegar manneskjur láta lífið
af manna völdum. Einstök morð
vekja óhug og mann hryllir við
kerfisbundnum fjöldamorðum
eins og styrjöldum.
FjÖLMIÐLAR segja okkur hvað
er að gerast í þeim hluta verald-
arinnar sem er utan okkar dag-
lega sjóndeildarhrings sem mest-
an part takmarkast af veggjum
heimilis, vinnustaðar og bifreið-
ar. Það er ekki hægt að segja frá
öllu sem gerist og smátt og smátt
hefur reynslan af framboði og
eftirspurn eftir upplýsingum
mótað frásagnarform, örsögur
sem við köllum fréttir.
EINS OG öll önnur tjáningar-
form þróast fréttin og breytist
eftir því sem tímar líða. Framfar-
ir í samgöngum og fjarskiptum,
aukið framboð, samkeppni um
athygli hafa gert fréttaformið
knappara. Það er ekkert pláss
fyrir útflúr, eða málalengingar.
Aðeins kaldhamraðar staðreynd-
ir. Tilfinningahlaðin lýsingarorð
eru útlæg úr fréttum. Tímar
“sorglegra” atburða eru liðnir.
Hlutlæg töluorð hafa tekið völd-
in. Upplýsingar í stað tilfinn-
inga.
uM daginn var ein fréttin svo-
hljóðandi: “37 létust í Bagdad”.
Mér þótti talan lág miðað við það
sem á undan var gengið. “Lækk-
un um 60 frá meðaltali,” hugsaði
ég. “Frábært.”
SVONA er heimur nýtísku
frétta, heimur töluorðanna miklu
snyrtilegri en hinn blóðugi heim-
ur lýsingarorða þar sem sundur-
tætt lík og líkamsleifar friðsamra
borgara, kvenna og barna liggja á
rykugum götum fornar menning-
arborgar. Töluorð eru handa höfð-
inu, lýsingarorð handa hjartanu.
Af hverju að velja á milli? Reynsl-
an hefur kennt mér að hugsa með
hvoru tveggja.
Í heimi töluorða