Fréttablaðið - 21.12.2006, Síða 4
Félag í eigu Jóns
Sveinssonar, Lagamál ehf., er
eigandi fimmtu og sjöttu hæðar
húsnæðis að Tryggvagötu 11.
Meðal þeirra fyrirtækja sem eru
skráð þar til húsa er Eignarhalds-
félagið AV. ehf. (EAV), en það er
sama félag og keypti hlut íslenska
ríkisins í Íslenskum aðalverktök-
um (ÍAV) þegar Jón var stjórnar-
formaður ÍAV og sat auk þess í
einkavæðingarnefnd.
Lagamál ehf. gerðu húsaleigu-
samning um efri hæðina árið 2001
og skrifaði Jón Sveinsson undir
hann fyrir hönd síns félags. Meðal
votta á samningnum er Stefán
Friðfinnsson, þáverandi forstjóri
ÍAV og einn af forsvarsmönnum
EAV ehf. Síðar var gerður viðbót-
arleigusamningur á fimmtu hæð
sama húss.
Í leigusamningnum er kaup-
réttarákvæði sem tryggir félagi
Jóns kauprétt á hæðunum tveim-
ur. Þar stendur að „Við beitingu
kaupréttar skal kaupverð ákveð-
ast með þeim hætti að í desember-
mánuði 2002 skal það nema eitt-
hundrað og þrjátíufaldri
mánaðarleigu án virðisaukaskatts
eins og hún verður þá samkvæmt
leigusamningnum. Kaupverð
lækkar síðan í beinu hlutfalli þar
til að í desember 2007 verði það
eitthundraðföld leiga skv. leigu-
samningi og lækkar ekki frekar
út leigutímann.“ Leigutekjurnar
greiddu því niður kaupverðið.
Ekki koma fram í samningnum
skýringar á lækkun kaupverðs-
ins.
Lagamál ehf. nýtti sér þetta
ákvæði 30. júní síðastliðinn og
eignaðist með því hæðirnar tvær.
Þær voru áður í eigu fasteignarfé-
lagsins Landsafls, sem var áður í
meirihlutaeigu ÍAV. Á þeim tíma
sem samningurinn var gerður var
Jón Sveinsson stjórnarformaður
bæði Landsafls og ÍAV.
Meðal þeirra sem leigðu hæð-
irnar af Jóni var lögmannsstofan
Landslög þar sem hann er meðeig-
andi. Landslög flutti úr húsnæðinu
fyrr í þessum mánuði. Garðar
Garðarsson, einn eigenda stofunn-
ar, vildi ekki tjá sig efnislega um
málið þegar Fréttablaðið ræddi
við hann né ræða ástæður flutn-
inganna. Samkvæmt heimildum
blaðsins mun Jón Sveinsson þó
ekki lengur vera virkur meðeig-
andi í stofunni.
Úlfar Örn Friðriksson, fram-
kvæmdarstjóri Landsafls, segir
ekkert vera óeðlilegt við svona
samninga milli stjórnarmanna
sem sitji í umboði ríkisins og fyrir-
tækja sem hann stjórni. „Það er
ekki mitt að segja um það hvers
fulltrúi hver er í stjórn fyrirtækja.
Stjórn eins og hjá mínu fyrirtæki
fylgir þeim leikreglum að þegar
viðskipti við hluthafana eða önnur
félög sem stjórnarmenn tengjast
þá er þess gætt að viðkomandi
aðilar fjalli ekki um þau mál.“
Tryggði sér kauprétt
á fasteignum Landsafls
Jón Sveinsson keypti tvær hæðir á Tryggvagötu 11 af Landsafli sem var í eigu
Íslenskra aðalverktaka. Jón var stjórnarformaður beggja fyrirtækjanna þegar
gengið var frá kaupréttarsamningnum og sat í einkavæðingarnefnd.
Norður-Kórea heldur fast
við þá kröfu sína að Bandaríkin
verði að aflétta fjármálalegri ein-
angrun af Norður-Kóreu áður en
kjarnorkuáform verði aflögð.
Norður-Kóreumenn samþykktu
að taka þátt á ný, eftir þrettán mán-
aða hlé, í viðræðum sex ríkja um
kjarnorkuvopnaáform þeirra að
fengnu vilyrði um að rætt verði um
einangrunarherferð, sem Banda-
ríkin hafa verið með á hendur
Norður-Kóreu innan alþjóðlega
bankakerfisins.
Bandaríkin halda því fram að
Norður-Kórea stundi ýmiss konar
ólöglega starfsemi, þar á meðal
fölsun á bandarískum 100 dollara
seðlum, peningaþvætti og sölu ger-
eyðingarvopna.
Norður-Kórea segist tilbúin að
stöðva starfsemi mikilvægasta
kjarnaofns síns og leyfa alþjóðleg-
um eftirlitsmönnum að koma til
landsins ef „rétt skilyrði“ eru fyrir
hendi, en af hálfu Norður-Kóreu er
aðaláherslan á fjármálaþáttinn í
viðræðunum.
Auk Norður-Kóreu taka fulltrú-
ar frá Bandaríkjunum, Rússlandi,
Kína, Japan og Suður-Kóreu þátt í
viðræðunum, sem fara fram í
Kína.
„Á þessari stundu vil ég hvorki
segjast vera bjartsýnn né svart-
sýnn,“ sagði Christopher Hill, sem
er fulltrúi Bandaríkjanna í viðræð-
unum.
Alls óvíst hvort árangur næst
Fertugur síbrotamaður
var dæmdur í sex mánaða fang-
elsi í Héraðsdómi Reykjavíkur á
miðvikudaginn fyrir að stela átta
lambalærum, einum lambahrygg,
kótilettum, frosnum ýsuflökum
og fæðubótarefnum.
Andvirði hlutanna sem
maðurinn stal er tæplega 54
þúsund krónur. Um var að ræða
þrjá aðskilda þjófnaði sem
maðurinn framdi í hinum ýmsu
kjörbúðum á höfuðborgarsvæð-
inu fyrr á árinu.
Maðurinn á tæplega 20 ára
langan sakaferil að baki og vegna
langs sakaferils hans var ekki
talið hægt að skilorðsbinda
dóminn.
Stal átta
lambalærum
Forsætisráðherra
hinnar þjóðernis-íhaldssinnuðu
ríkisstjórnar Póllands, Jaroslaw
Kaczynski, sagðist á þriðjudag
myndu hvetja
Póllandsþing til
að setja lög sem
áréttuðu rétt Pól-
verja til jarðnæð-
is og fasteigna
sem Pólverjar
fengu að herfangi
frá Þjóðverjum
er landamæri
Póllands voru færð til vesturs
eftir síðari heimsstyrjöld.
Tilefni þessa frumkvæð-
is forsætisráðherrans er beiðni
fámennra samtaka Þjóðverja sem
flæmdir voru á brott frá land-
svæðum sem gefin voru Póllandi
árið 1945, um að Mannréttinda-
dómstóll Evrópu úrskurði um rétt-
mæti eignaupptökunnar. Beiðn-
in nýtur hvorki stuðnings þýskra
stjórnvalda né regnhlífarsamtaka
brottflæmdra Þjóðverja.
Eignarréttur Pól-
verja áréttaður
Fjöldi gesta kom á
fund menntamálanefndar
Alþingis í gær þar sem rætt var
um frumvarpið um Ríkisútvarpið.
Sigurður Kári Kristjánsson,
formaður nefndarinnar, segir
nefndina hafa hlýtt á sjónarmið
er varða takmarkanir á auglýs-
ingum, væntanlegan stofnefna-
hagsreikning hlutafélagsins og
samskipti kvikmyndaframleið-
enda við Ríkisútvarpið.
Á fundi sem boðaður er milli
jóla og nýárs sé svo ætlunin að
ræða frekar um réttindamál
starfsmanna og samkeppnisáhrif
frumvarpsins.
Fjöldi gesta á
fundi um RÚV
Norski vísindamaðurinn
Jon Sudbø, sem uppvís varð fyrr
á árinu að því að falsa niðurstöð-
ur rannsókna sinna, hefur verið
sviptur leyfi sínu til að starfa sem
læknir og tannlæknir, sem og
háskólagráðu sinni í læknavísind-
um. Slíkt hefur aldrei gerst áður í
sögu Óslóarháskóla.
Ætlar Sudbø að sætta sig við
sviptinguna þó að í fyrstu hafi
hann ætlað að berjast fyrir
réttindum sínum, að því er fram
kemur í frétt Aftenposten.
Sudbø falsaði niðurstöður
rannsókna sinna á munnkrabba-
meini og birti í læknatímaritinu
The Lancet. Að sögn talsmanns
heilbrigðisyfirvalda hafa engar
sannanir borist um að sjúklingar
hafi beðið skaða vegna falsan-
anna.
Sviptur læknis-
leyfi og titli
Ríkisstjórnin á Srí
Lanka hélt því fram í gær að upp-
reisnarsveitir Tamíltígra hafi á
þessu ári rænt að minnsta kosti
455 börnum, bæði
drengjum og
stúlkum, og þjálf-
að þau til hern-
aðar.
Stjórnin sagði
töluna þó enn
hærri vegna þess
að margir foreldr-
ar þori ekki að
láta vita af ráni
barna sinna af
ótta við hefndar-
aðgerðir. Stjórnin
hvatti tígrana til
þess að hætta slíku athæfi.
Þá skýrði Barnahjálp Samein-
uðu þjóðanna frá því að tígrarnir
hefðu þjálfað 539 börn yngri en 18
ára fyrstu 11 mánuði ársins.
Sakaðir um að
ræna börnum
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
PEUGEOT 307
Nýskr. 09.05 - Sjálfskiptur - Ekinn 20 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
2.170
.000.
-