Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 24
nær og fjær
Hipp hipp ... Gunnar og stúdentarnir
„ORÐRÉTT“
Þarf ekki að
vera hér
195,-
2 rúnstykki, 1 egg, skinka, ostur,
smjör, sulta og heitur drykkur
Þú átt allt gott skilið!
mánudaga - laugardaga
verslun opnar kl. 10:00
Opnum fyrir
morgunverð kl. 9:00 Í flestum menningarsamfélögum er haldið upp á þau tímamót þegar daginn tekur að lengja á ný. Í Kína og
Austur-Asíu er haldið upp á dong zhì-hátíðina. Hún er
byggð á hugmyndinni um Ying og Yang og er talið að
nú fari jákvæða orkan að streyma inn og sú neikvæða
út. Fjölskyldur koma saman og borða marglita
hrísgrjónabolta er nefnast Tang Yuan.
Elsta vetrarhátíðin sem vitað er um er frá Íran og
nær alla leið aftur til Zoroaster-trúarbragðanna, en
samkvæmt þeim eru vetrarjafndægur talin merkja
upphaf vetrar.
Ýmsar aðrar merkingar eru tengdar þessum árs-
tíma. Gyðingar halda upp á ljósahátíðina Hanukkah,
sem á sér stað um miðjan vetur og stendur í átta
daga, en hún markar þau tímamót er ljósin voru aftur
kveikt í hofinu eftir hernám Selúsída.
Kwanzaa-hátíðin var fundinn upp árið 1966 af
marxistanum Ron Karenga til að gefa blökkumönn-
um í Bandaríkjunum eitthvað til að halda upp á annað
en hvít jól.
Esperantistar halda svo upp á Zamenhof-daginn,
sem er afmælisdagur stofnanda tungumálsins, L.L.
Zamenhof.
Ásatrúarmenn halda upp á tólf daga vetrarblót
sem byrjar við vetrarjafndægur. Talið er að menn
hafi á þessum tíma fórnað svíni til Freys í heiðninni.
Er svínabógurinn líklega arfleifð frá því að blótið
rann saman við miðsvetrarhátíð kristinna manna,
jólin, sem tákna fæðingu frelsarans og þar með komu
ljóssins.
Jólainnkaupin á Laugavegi
„Er nú farið að dimma aft-
ur,“ segir fólk um land allt
á haustin, og alltaf virðist
það koma okkur jafn mikið
á óvart þó að fátt sé í raun
jafn fyrirsjáanlegt. Ef það
er svo að mannkynið á ræt-
ur sínar að rekja til svæð-
isins í kringum miðbaug
er kannski eitthvað djúpt í
DNA-kóðanum sem segir að
það eigi að vera bjart á dag-
inn og dimmt á næturnar.
Við miðbaug, sem einnig er nefnd-
ur Ekvador, eru allir dagar og
nætur jafn langar. Maximo Ortega
járnbindingamaður og barþjónn á
Champagne Club kemur frá land-
inu Ekvador, sem einmitt er stað-
sett beint á samnefndum baug.
„Ég kom fyrst til Íslands fyrir
sjö árum síðan um miðjan febrúar.
Það var mjög spes, það er enginn
snjór í Ekvador eða mjög dimmt á
veturna. Ég skoðaði mikið, enda
eru allir dagar eins í landi mínu.“
Maximo lærði íslensku í Náms-
flokkunum en hafði fengið undir-
búning í Ekvador. En var eitthvað
sem bjó hann undir veturinn hér?
„Ég þekkti marga Íslendinga í
Ekvador, til dæmis var íslenskur
skiptinemi á heimili mínu. Þeir
sögðu mér að það væri snjór og
kalt á veturna en voru ekki búnir
að minnast á myrkrið.“
Og hvernig voru svo viðbrigð-
in? „Ég sakna ekki birtunnar sér-
staklega. Íslenski veturinn er
ágætur þótt það sé kalt, en sumrin
eru ekki nógu hlý til að sumur
megi kalla.“
Maximo bíður nú eftir ríkis-
borgararétti sínum. Suður-Ameríku-
búar þurfa að búa sjö ár á Íslandi
til að fá ríkisborgararétt og mun
hann hafa verið hér nógu lengi
næstkomandi febrúar, en honum
hefur nýlega verið sagt að hann
þurfi að bíða í sex mánuði eða ár í
viðbót eftir svari.
Vetrarsólstöður eru í ár klukk-
an 00.22 þann 22. desember, eða
rétt eftir miðnætti í nótt. Í fyrra
voru þær klukkan 18.35 þann 21.
desember. Þær marka þann tíma-
punkt þegar dagarnir hætta að
styttast og fara að lengjast aftur.
Í Ekvador eru allir dagar eins