Fréttablaðið - 21.12.2006, Side 46
Brandarar Hugleiks Dagsson-
ar hafa sannarlega slegið í
gegn en nú eru fáanlegir bolir
með áprentuðum Hugleiks-
skrýtlum.
„Mér finnst Hugleikur svo fynd-
inn og það að prenta skrýtlurnar
hans á boli er skemmtileg leið til
að leyfa fleirum að hlæja að þeim,“
segir Einar Árnason kvikmynda-
tökumaður sem nýlega tók sig til
og lét framleiða boli með áprent-
uðum skrýtlum eftir Hugleik
Dagsson.
Einar og Hugleikur þekktust
ekki áður en Einar réðist í verk-
efnið og hann segir það hafa tekið
sig svolítinn tíma að sannfæra
Hugleik um að hann væri ekki
eitthvað skrýtinn. „Ég hringdi í
hann og ræddi þessa hugmynd
mína. Hugleikur hélt fyrst að ég
væri eitthvað ruglaður en svo
tókst mér, með hjálp sameigin-
legra vina okkar, að sannfæra
hann um að svo væri ekki. Svo
gekk þetta bara eftir. Við hittumst
og völdum þá brandara sem við
vildum setja á bolina, hann valdi
nokkra og ég sömuleiðis. Núna eru
komnar sex myndir á boli en við
eigum eftir að gera fleiri seinna.“
Spurður að því hvort þeir hafi
sérstaklega valið skrýtlur sem
ekki eru bannaðar innan sextán
segir Einar að það hafi ekki verið
haft í huga „Mér finnst brandar-
arnir hans hvorki vera móðgandi,
né gera lítið úr neinum. Þetta eru
frekar svona ádeilur sem vekja
fólk til umhugsunar. Hann stingur
á málefnum á borð við kynferðis-
lega misnotkun, áfengissýki og
fleiri vond fyrirbæri. Og miðað
við hvað það eru fáir listamenn
sem taka á þessum málum þá
finnst mér þetta góð leið til að
vekja athygli og fá mann til að
hugsa svolítið öðruvísi um það
sem er í gangi,“ segir Einar og
rifjar um leið upp hvernig þol-
mörkin fyrir því sem má hlæja að,
breytast með tímanum. „Í dag eru
áttatíu ár síðan Charlie Chaplin
var handtekinn fyrir að sparka í
rassinn á löggu í stuttmynd. Við
réttarhöldin sagði hann að fólk
hefði mjög gott af því að sjá flæk-
ing sparka í löggurass, sem er
alveg rétt. Fyrir tólf árum var svo
Spaugstofan sektuð fyrir klám og
guðlast, en ég efast um að það
myndi gerast í dag ef þeir kæmu
aftur með sama grín. Jón Gnarr
olli miklum usla þegar hann var
með barnaníðingsádeilu í gríni …
en þróunin verður sú að svona á
ekki eftir að móðga neinn eftir
nokkur ár,“ segir þessi framtaks-
sami kvikmyndatökumaður.
Bolurinn kostar um 2.000 krón-
ur en þá má kaupa í versluninni
Nexus á Hverfisgötu 103 og 12
tónum á Skólavörðustíg 15 og í
gegnum tölvupóst á hugleiksbol-
ir@gmail.com.
Þetta móðgar engan
20% afsláttur
í verslunum Hagkaupa
Margar gerðir af búningasilfri.
Þetta er ódýrasta mynstrið. Allt sem þarf á upphlutinn,
settið frá 90.530, kr.
Allar upplýsingar um hefð og
gerðir búninga eru veittar á staðnum.
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Sérverslun með
kvensilfur