Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 51
Piala Seri Endon batík-tísku-
verðlaunaathöfnin var haldin í
Kúala Lúmpúr á dögunum.
Mörg falleg sköpunarverk litu
dagsins ljós í þessari hönnunar-
keppni sem snerist um hina þjóð-
legu batíkhefð. Orðið batík er upp-
runnið úr tungumáli frá Indónesíu
og Malasíu. Það vísar til aðferðar
sem notuð er til að lita efni. Batík
er mikið notað í Indlandi, Srí
Lanka, Íran og Taílandi en er þó
vinsælast í Indónesíu og Malasíu.
Þess má geta að Jövubúar eru
hvað frægastar fyrir batíklist
sína.
Aðferðin við batíklitun er eftir-
farandi: Bráðið vax er sett á efni
áður en því er dýpt í lit. Á þeim
stöðum þar sem efnið er gegn-
drepa af vaxinu verður enginn
litur eftir. Stundum eru notaðir
nokkrir litir þar sem notuð eru
mörg stig af litun, þurrkun og
vaxi.
Nokkrar aðferðir eru til við að
bera vaxið á efnið. Oftast er það
gert með verkfæri sem kallast
tjanting-nál, en einnig er það borið
á með bursta eða þá með nokkurs
konar stimpli sem skorinn hefur
verið út.
Eftir að efnið hefur verið litað í
síðasta sinn er það hengt upp til
þerris. Þar á eftir er því dýpt ofan í
vökva sem leysir upp vaxið eða það
er straujað milli tveggja pappírs-
stranga eða dagblaða sem draga í
sig vaxið. Þá koma í ljós djúpir og
fallegir litirnir sem einkenna batík.
Þjóðleg og nútímaleg batík
Forsvarsmenn tískuvikunn-
ar í Mílanó hafa látið undan
þrýstingi og bannað of grannar
fyrirsætur.
Óhugnanlega horaðar fyrirsætur
hafa lengi verið þyrnir í augum
þeirra er berjast gegn átröskun-
um. Engum dylst að tískuiðnaður-
inn er fullur af slæmum fyrir-
myndum í þessum efnum, en á
síðustu misserum hefur náðst
góður árangur í að fá forsvars-
menn í tískubransanum til að við-
urkenna þennan vanda og taka á
honum.
Athygli vakti er of léttar fyrir-
sætur og fyrirsætur undir 16 ára
aldri voru bannaðar á sýningar-
pöllum tískuvikunnar í Madrid í
september. Í kjölfar dauða ungrar
brasilískrar fyrirsætu, en hún lést
úr lystarstoli, tilkynntu talsmenn
tískuvikunnar í Sao Paulo að þeir
myndu fara sömu leið og Spán-
verjarnir. Stærsti sigurinn kom
hins vegar í vikunni er samkomu-
lag náðist um þyngdar- og aldurs-
reglur á tískuvikunni í Mílanó,
sem fara mun fram í febrúar á
næsta ári.
Samkomulagið bannar fyrir-
sætur undir 16 ára aldri og þær
fyrirsætur sem ekki ná líkams-
þyngdarstuðli upp á 18,5. Þetta
þýðir að stúlka sem er 173 sentí-
metrar á hæð verður að vera 55,4
kíló vilji hún ganga upp og niður
sýningarpallana í Mílanó. Enn
fremur kallar samkomulagið á
meiri fjölbreytni í stærð fatnaðar
sem sýndur er.
Bransinn tek-
ur sönsum