Fréttablaðið - 21.12.2006, Side 98
Gæti hugsað sér að leika á móti Penelope Cruz
Bandaríski kvikmyndaleik-
stjórinn Steven Spielberg
fagnaði sextíu ára afmæli
sínu á mánudaginn. Spiel-
berg er óumdeildur risi á
sínu sviði, á að baki nokkrar
vinsælustu kvikmyndir
sögunnar og er enn á
fleygiferð.
Spielberg vakti töluverða athygli
árið 1971 með Duel, sjónvarps-
mynd um bílstjóra sem er hund-
eltur af dularfullum og snarbiluð-
um vörubílstjóra eftir þjóðvegi í
Kaliforníu.
Hann var þá 25 ára gamall og
stók af öll tvímæli um að hann
byggi yfir sérstökum hæfileikum
sem nýttust honum bak við kvik-
myndatökuvélina en í þessari ein-
földu sögu og takmarkaða sögu-
sviði náði hann að keyra upp
magnaða spennu.
Hann var á léttari nótunum árð
1974 í kvikmyndinni The Sugar-
land Express með Goldi Hawn í
aðalhlutverki og ári síðar gerði
hann allt vitlaust með Jaws.
Spielberg gjörbreytti í raun lands-
laginu í Hollywood með myndinni
um mannætuhákarlinn blóðþyrsta
en myndin er almennt talin fyrsti
„blockbusterinn“ eða sumarsmell-
urinn, alvöru stórmynd sem rak-
aði saman áður óþekktum upp-
hæðum í miðasölunni. Vinsældir
myndarinnar færðu Spielberg
völd og áhrif og síðan þá hefur
hann ekki gert annað en festa sig
enn frekar í sessi.
Hann beindi í framhaldinu
sjónum sínum til himins í Close
Encounters, áhrifaríkri mynd um
heimsókn vitsmunavera utan úr
geimnum til jarðarinnar, árið
1977.
Árið 1979 tók hann á rás í hinu
léttgeggjaða stríðsgríni 1941 og
árið 1981 sigraði hann heiminn á
ný með Raiders of the Lost Ark.
Þessi fyrsta mynd um ævintýri
fornleifafræðingsins Indiana
Jones sló hressilega í gegn.
Spielberg gerði myndina með
félaga sínum George Lucas en
samstarf þeirra hefur verið bæði
farsælt og gróðavænlegt. Þeir
félagar hafa þegar gert þrjár
myndir um Jones með Harrison
Ford í aðalhlutverki og stefna enn
á fjórðu myndina.
Sigurganga Spielbergs hélt áfram
ári síðar þegar hann bræddi hjörtu
heimsbyggðarinnar með E.T. the
Extra-Terrestrial. Hugljúfri mynd
um nána vináttu ungs drengs og
fjörgamallar geimveru sem varð
strandaglópur á jörðinni.
Önnur Indiana Jones myndin
The Temple of Doom kom árið
1984 en eftir það skipti Spielberg
um stefnu. Hann var búinn að
festa sig í sessi sem konungur
afþreyingarmyndanna og sýndi
með E.T. og Raiders of the Lost
Ark, sem var ekta þrjúbíó af gamla
skólanum, að hann gerði myndir
sínar með stóru barnshjarta.
Þegar hér er komið við sögu vill
kappinn fara að sanna sig með
alvarlegri myndum, fá viðurkenn-
ingu sem fullburða leikstjóri og
helst landa Óskarsverðlaunum í
leiðinni.
Fyrsta tilraun hans í þá átt var
The Color Purple árið 1985, ákaf-
lega falleg og dramatísk mynd
byggð á sögu Alice Walker með
Whoopi Goldberg í aðalhlutverki.
Spielberg átti þó ekki erindi sem
erfiði og Óskarinn lét á sér standa.
Hann hjó í sama knérunn með Emp-
ire of the Sun tveimur árum síðar
en Akademían horfði enn framhjá
honum.
Þá leitaði hann á gömul mið og
gerði Indiana Jones and the Last
Crusade og dollararnir mokuðust í
kassann en síðan fataðist honum
flugið með Always (1989) og Hook
(1991) mislukkaðri nútímaútgáfu
af ævintýrinu um Pétur Pan.
Segja má að annað gullaldarskeið
Spielbergs hafi hafist árið 1993
þegar hann sló í gegn með Jurassic
Park þar sem tölvuteiknaðar risa-
eðlur lifnuðu við í hörkufínni
ævintýramynd. Það sama ár sendi
hann Schindler´s List frá sér en þar
tók hann helför gyðinga föstum
tökum í sterkri mynd sem loksins
skilaði honum langþráðum Óskarn-
um.
Árið 1997 gerði hann framhald
Jurassic Park, The Lost World, með
hangandi hendi og skilaði einnig
Amsitad af sér við mátulega hrifn-
ingu. Árið 1998 tefldi hann vini sínum,
Tom Hanks, fram í innrás
Bandaríkjamanna í Frakkland á D-
degi í seinni heimsstyrjöldinni. Þar
sýndi leikstjórinn margar sínar bestu
hliðar og landaði Óskarnum á ný.
Á síðustu árum hefur Spielberg
hrist fram dýrar stórmyndir með
reglulegu millibili. Artificial Intelli-
gence, Minority Report, Catch Me
If You Can, The Terminal og War of
the Worlds hafa allar staðið fyrir
sínu og það fer ekkert á milli mála
hver er við stjórnvölinn þótt engin
þeirra jafnist á við áhrifaríkustu og
vinsælustu verk leikstjórans.
Í fyrra gerði Spielberg svo enn
eina atlögu að Óskarnum með
Munich en varð að láta í minni
pokann fyrir öðrum spámönnum
þótt myndin hafi staðfest það að
Spielberg hefur engu gleymt.
Framtíð þessa sextuga undra-
barns í Hollywood er því björt og
hann hefur langt frá því sungið sitt
síðasta.
HEIMSFRUMSÝND 15. DESEMBER
Vinningar eru
miðar fyrir tvo,
Eragon bókin,
Eldest bókin,
Eragon
tölvuleikurinn,
DVD myndir
tölvuleikir og
margt fleira!
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T S
m
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S k
lú
bb
. 9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
Söguþráður ævintýramyndarinnar Eragon er glettilega keimlíkur
fyrstu Stjörnustríðsmyndinni A New Hope. Í Eragon eignast ungur
bóndastrákur dreka, öðlast um leið ofurkrafta og verður eina von
þjakaðrar alþýðu um að hún losni undan oki ills konungs. Reyndur
uppgjafariddari úr gamalli reglu sem stóð vörð um réttlætið áður en
hið illa náði yfirhöndinni tekur drenginn undir sinn verndarvæng og
kennir honum að nota nýfenginn mátt sinn. Þar fyrir utan hafði vondi
kallinn einu sinni verið í röðum góðu riddaranna áður en hann spilltist
og útrýmdi þeim. Kunnuglegt?
Bóndastrákurinn Logi Geimgengill kynnist gamla riddaranum Obi-
Wan, fær hjá honum geislasverð, lærir að nota Máttinn og verður eina
von vetrarbrautarinnar um frelsi undan oki vonda keisarans sem beitir
ilmenni fyrir sig sem hafði áður útrýmt öllum góðu riddurunum og
réttlætisvörðunum að Obi-Wan undanskildum.
Höfundur Eragon verður þó seint sakaður um hreinan og kláran
ritstuld þar sem þetta var ekki heldur nýtt þegar George Lucas gerði
ævintýrum Geimgengilsins eftirminnileg skil. Báðar byggja myndirn-
ar á þrautreyndri ævintýraformúlu sem hefur gert það gott frá örófi
alda.
Báðar eru þessar myndir ágætar til síns brúks og kalla
fram tilfinningaviðbrögð sem við viljum finna. Sögu-
þráðurinn er svo rótgróinn í sameiginlegt minni hins
vestræna heims, er svo kunnuglegur og notalegur að
hann virðist alltaf finna hljómgrunn.
Vinsældir mynda sem byggja á ævintýra-
formúlunni segja svo allt sem segja þarf um
smekk hins almenna kvikmyndahúsagests og í
raun er það tilgangslaust og fánýtt að væla
yfir skorti á frumleika í Hollywood þegar sú
formúla sem reynist jafnan best er miklu
eldri en Draumaverksmiðjan og kvikmynda-
tökuvélin.
Fjöldinn fær það sem hann vill og það fer
ekki á milli mála að efst á óskalistanum
trónir sama sagan. Aftur og aftur.
Sama sagan aftur og aftur