Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 99
Sjóræningjarnir í Karíbahafinu
fóru létt með að kafsigla aðrar
kvikmyndir ársins í Bretlandi en
framhaldsmynd The Pirates of the
Caribbean hlaut mestu aðsóknina
þar í landi. Jack Sparrow og
félagar hans af Svörtu perlunni
geta gengið sáttir frá borði en
Pirates of the Caribb-
ean: Dead Man‘s
Chest þénaði hvorki
meira né minna en
52 milljónir punda
eða rúma sjö milljarða íslenskra
króna. Jerry Bruckheimer, fram-
leiðandinn knái, hefur því enn og
aftur veðjað á réttan hest því fast-
lega má reikna með að aðsóknin
á þriðju og síðustu myndina
verði engu minni.
Töluvert á eftir kemur
síðan færasti leyniþjón-
ustumaður sögunnar,
sjálfur James
Bond, en nýjasta
búbótin í þess-
um sögufræga
bálki, Casino
Royale, stend-
ur Sparrow
og félögum
nokkuð langt
að baki.
Kvikmyndin halaði inn 42 milljón-
um punda eða fimm milljörðum
íslenskra króna en sam-
kvæmt fréttavef BBC er
myndin enn í sýningum í
Bretlandi og gæti því bætt
nokkuð við sig þótt hún komi
aldrei til með að ógna sjó-
ræningjunum í efsta
sætinu. Kvikmynda-
útgáfan af Da Vinci
lyklinum eftir Dan
Brown siglir lygnan
sjó í þriðja sæti og
önnur kvikmynd-
in um Ísöldina
hirðir fjórða sætið.
Síðasta kvikmyndin á
topp-fimm listanum er
um ólíkindatólið frá Kasakstan,
blaðamanninn Borat, en líkt og
Bond er kvikmyndin enn í sýningu
þótt ólíklegt sé að hún færist eitt-
hvað ofar.
Jack hefur betur gegn James
Stórmynd Clints Eastwood,
Flags of Our Fathers, sem fjall-
ar um afdrif bandarísku her-
mannanna sem reistu þjóðfána
sinn á japönsku eyjunni Iwo
Jima eftir að hafa hrakið Jap-
ani þaðan í seinni heimsstyrj-
öldinni, verður frumsýnd á
Íslandi á öðrum degi jóla.
Í myndinni segir Eastwood
söguna um orrustuna frá sjón-
arhóli sigurvegaranna en sam-
hliða myndinni gerði Eastwood
myndina Letters from Iwo Jima
sem greinir frá örlögum jap-
önsku hermannanna sem máttu
lúta í lægra haldi.
Letters from Iwo Jima fékk
í vikunni stórfínan dóm í New
York Times. Gagnrýnandi
blaðsins bendir á að flestar, ef
ekki allar, amerískar stríðs-
myndir séu því marki brenndar
að þær gangi út á sigur gegn
ofurefli, bræðralag á ögur-
stundu og fórnir fyrir göfugan
málstað.
Eastwood er sagður gera út
á þessa formúlu í Letters from
Iwo Jima um leið og hann
afbyggi hana og þannig takist
honum að nálgast efnið frum-
lega og sé jafnvel róttækur í
nálgun sinni og sýn á bardag-
ann á Iwo Jima.
Niðurstaða gagnrýnandans
er því sú að mynd Eastwoods sé
líklega besta japanska mynd
ársins en allir aðalleikarar
hennar eru japanskir og tala
móðurmál sitt í henni. Ken
Watanabe (The Last Samurai,
Batman Begins) er fremstur í
flokki öflugs leikhóps sem
þykir sýna mikla breidd í túlk-
un sinni á löndum sínum sem
áttu aldrei möguleika gegn
Bandaríkjamönnum.
Eastwood þykir takast að
skila aðstæðum og þankagangi
hermannanna með miklum
sóma með dyggum stuðningi
leikaranna sem túlka menn
sem, ólíkt því sem gengur og
gerist í stríðsmyndum, munu
ekki hafa sigur í vonlausri
stöðu heldur þurfa þvert á móti
að horfast í augu við óumflýj-
anlegan ósigur.
Bréf frá
Iwo Jima