Fréttablaðið - 21.12.2006, Page 102
... að gamaldags jólaepli
standa enn fyrir sínu,
þó að börnin í dag fái
ýmislegt sætara en
svo. Það er gott að
geta gripið til þeirra
yfir hátíðarnar þegar
magann lengir eftir
öðru en sætindum og
svo eru þau líka svo
undurfallega rauð.
Á alltaf til Homeblest í eldhússkápnum
Í Perlunni leynist lítil sælkera-
verslun með dýrindis kræsing-
um. Stefán Sigurðsson sagði
verslunina státa af breiðum vöru-
hópi. „Við erum með sultur og
dijon-sinnep, rækjur frá Malasíu
og Taílandi, dádýr og nautalundir.
Svo erum við með reyktan lax og
mjög mikið af innfluttum frosn-
um sveppum, bæði villisveppum
og kantarellusveppum,“ sagði
hann.
Verslunin hefur verið starf-
rækt í ein þrjú ár og var komið á
laggirnar í gegnum veitingastað-
inn. „Þetta eru allt vörur sem við
erum með umboð fyrir,“ sagði
Stefán. „Við vorum með gesta-
kokk frá Bourgogne á veitinga-
staðnum. Þegar hann sá dijon-
sinnepið sem við vorum að nota
sagði hann bara að það væri ekki
alvöru, og kom okkur í samband
við einn besta sinnepsframleið-
andann í Bourgogne. Þannig hafa
þessi sambönd komið til,“ sagði
Stefán, en í hillunum má einnig
finna sultur frá Thursday Cottage,
sem er einn af þremur bestu
sultuframleiðendum í Bretlandi
og brauðtertubrauð frá Ítalíu.
Sveppirnir hafa verið afar
vinsælir hjá sveppaunnendum,
og sagði Stefán þá nánast ómiss-
andi í jólamatseldina. Enginn
starfsmaður er í búðinni, en það
á þó að vera vandalaust að fá ráð-
leggingar varðandi vöruna. „Það
er fullt hús af kokkum hérna ef
fólk vill spyrjast fyrir,“ sagði
Stefán og hló.
Perlan er samastaður sælkera
Í desembermánuði gera vínáhugamenn alla jafna sérstaklega vel við sig og
kaupa dýrari vín en aðra mánuði ársins. Framboðið af vandaðri vínum er
meira á þessum árstíma en alla jafna og sérvara ratar inn sem annars er
ekki á boðstólum. Vert er að vekja sérstaka athygli á því að oftast er lítil
álagning á vörum í gjafaumbúðum, glösum sem fylgja með flöskum o.s.frv.
Erlendis ratar svona varningur yfirleitt í sérvöruverslanir en hér verður
ekki komist lengra en í hillur einkasölunnar og þar eru litlir möguleikar á
að breiða úr sér og merkja vöruna með gassagangi. Því líta innflytjendur á
gjafaumbúðirnar og fylgihlutina sem einn af örfáum möguleikum til
kynningar og það endurspeglast í lágu verði sem kemur neytendum til góða.
Þrátt fyrir há áfengisgjöld á Íslandi eru ekki öll vín dýr hérlendis. Um
leið og komið er í milliverðflokk, um 1.500 kr., eru vín hérlendis á sambæri-
legu verði og erlendis. Ég þreytist ekki á því að vísa vínáhugafólki í þennan
verðflokk og minni á það að allt að fimmfaldur munur er á framleiðsluverði
víns sem kostar 1.000 kr. og víns sem kostar 1.500 kr. Ofurskattar og gjöld
skekkja myndina svo hroðalega í vínbúðum ríkisins.
Flestar spurningar um vín sem ég fæ í desember snúast um hvaða vín
eigi að drekka með jólamatnum. Oftast á fólk þá við íslenskan hátíðarmat á
borð við hangikjöt, rjúpu og hamborgarhrygg. Í vínbúðunum liggja frammi
ágætis upplýsingar um hvaða vín geta gengið með slíkum mat. Ég hef áður í
pistlum mínum viðrað efasemdir mínar um það hversu vel vín eiga við
slíkan mat og endurtek þær hér. Malt og appelsín með hangikjötinu, portvín
með rjúpunni og belgískur munkabjór með hamborgarhryggnum eru bestu
samsetningar sem ég get mælt með. Um veglegan hátíðarmat af öðrum toga
gilda hefðbundnar leikreglur um samsetningu víns og matar. Ítölsku vínin
sem ég fjalla um hér á síðunni ganga með flestum mat og eru einnig góð
eins og sér. Ég mun fjalla um fleiri ítölsk vín í næstu viku.
Hátíðlegt í gjafaumbúðum
Þegar mikið er lagt í mat-
reiðsluna má ekkert klikka
og fæstir eru tilbúnir að
taka mikla sénsa og kaupa
vín sem þeir þekkja ekki.
Aðrir eru opnir fyrir nýj-
ungum eða velja trausta
framleiðendur eða vín í
kunnuglegum stíl. Um-
fjöllun Fréttablaðsins um
hátíðarvín þetta árið er
þematengd og lítum við til
Ítalíu af nokkrum ástæðum.
Ítölsk vín mjög eiga vel við fjöl-
breyttan mat. Þau eru yfirleitt
ekki mjög þung sem er kostur
þar sem flestir éta yfir sig á jól-
unum og þung vín sem taka
mikla orku frá manni eru ekki á
bætandi! Þau eru líka dásamleg
með ostum og súkkulaði og því
prýðilegur fylgisveinn inn í
kvöldið á rólegheitastundum við
bóklestur og sjónvarpsgláp. Síð-
ast en ekki síst urðu Ítalir
heimsmeistarar í fótbolta í
sumar og sá gleðilegi árangur
fyrir okkur aðdáendur Ítala
kemur enn upp í hugann í hvert
skipti sem ég bergi á ítölskum
vínum!
Ég fékk til liðs við mig nokkra
blaðamenn og vínáhugamenn til
að smakka ítölsk vín. Flestir
voru í senn ánægðir og hissa.
Hissa vegna þess að flestir eru
vanir að drekka ódýrari ítölsk
vín og leita sjaldnast í þann
verðflokk sem ég miðaði við en
það eru vín sem kosta frá 1.500
kr. og upp úr. Ánægðir voru
smakkararnir vegna þess
hversu gífurlega öflug þessi vín
eru og traust. Það er líka býsna
einfalt að átta sig á gæðum og
massa ítölsku vínanna út frá
verðinu. Betri chianti-vínin
kosta um 1.500 kr. og eftir því
sem þau verða dýrari þá verða
þau þyngri og öflugri. Þetta
gildir allt að þriðja þúsundinu.
Þá taka við chianti-vín sem eru
orðin mjög massíf og boltar eins
og amarone og brunello di
montalcino.
Ítalía er mesta vínframleiðslu-
land heims og Toskana er hjarta
ítalskrar víngerðar. Höfuðþrúga
héraðsins er sangiovese og öll
vínin sem við fjöllum um hér
eru úr henni eða afbrigði hennar
brunello sem kennd er við þorp-
ið Montalcino. Chianti er heitið
á hæðum í nágrenni
Flórens. Vínin eru
kennd við svæðið og
kölluð classico ef þau
eru úr kjarna svæðis-
ins af bestu ekrun-
um.
Fontodi chianti
classico er afar góður
kostur fyrir þá sem
vilja hreint og beint
chianti af betra
taginu. Ferskt og ljúft
og á erindi með létt-
ari hátíðarréttum. Vel
þroskað miðað við
aldur, en árgangurinn
er 2004. 1.890 kr.
Castello Di Quer-
ceto chianti classico
riserva er af hinum
frábæra 2001 árgangi
og hér höfum við
fært okkur upp um
þyngdarflokk. Orðið
eins gott og hefð-
bundið chianti vín
getur orðið áður en
mikið er farið að
„fikta í því“ eins og
stundum er sagt.
2.290 kr.
Dievole er
framleiðandi
sem hefur
vakið mikla
athygli víða um heim. Í
nýlegri vínbók frá amer-
íska tímaritinu Food &
Wine eru vín framleið-
andans í þriðja sæti
yfir bestu kaup frá
Toskana. Þarna heldur
um taumana kornung
þýsk víngerðarkona
sem heimsótti Ísland í
sumar. Rinascimento
er vinsælasta vínið
(1.490 kr.) og La
Vendemmia (2.290 kr.) er afar
vel gert í klassískum léttum stíl.
Hlutirnir fara hins vegar veru-
lega að gerast í Novecento en
smökkunarhópurinn kolféll
fyrir því víni. Massíft en ljúft og
ekki of ágengt. 3.190 kr.
Argiano er firnagóður
framleiðandi sem gerir
vín á afar hagstæðu
verði. Argiano Rosso
Di Montalcino (1.750
kr.) er eitt af vínunum
sem Vínþjónasam-
tökin veittu Gyllta
glasið í október.
Argiano Brunello
di Montalcino er
feykilega vel gert
vín, kryddað og höf-
ugt og batnar eftir
því sem lengra líður
frá því að flaskan
er tekin upp!
Smökkunarhópur-
inn leitaði mikið í
þetta vín í restina á
smökkuninni. Flott að
geta fengið svona gott
brunello á þessu verði.
3.290 kr.
Castellani er annar
mjög góður framleið-
andi og hin hagstæðu
kaup Campomaggio
chianti classico (1.490
kr.) fékk Gyllta glasið
í fyrra. Brunaio Bru-
nello di Montalcino er
ákaflega vel gert vín
sem ræður við öflugan
mat og verðið er
mjög gott. 3.290
kr.
Banfi er eitt þekktasta
vörumerki Ítala í vínum
og á fastan hóp aðdá-
enda. Banfi Brunello
di Montalcino fékk
strax afgerandi stuðn-
ing í smökkunarhópn-
um og er sannarlega
aðlaðandi. Eitt þeirra
vína sem menn
hamstra í Fríhöfninni.
4.190 kr.
J
J
Kælið matvæli fljótt eftir suðu.
Hitastig í kæli á að vera 0-4°C.
Þvoið hendur oft og vel.
Borð, ílát, áhöld og skurðarbretti
eiga að vera hrein.
Krossmengun verður ef bakteríur
berast frá hráum matvælum yfir í
tilbúin matvæli. Haldið hráum og til-
búnum matvælum aðskildum.
Gegnsteikið eða gegnsjóðið kjöt.
Heit matvæli á hlaðborði eiga að
vera við amk 60°C.
J
J
J
J
J
J
J
J
J J
U m h v e r f i s s t o f n u n S u ð u r l a n d s b r a u t 2 4 1 0 8 R e y k j a v í k s í
J
J
Njótið jólamatarins!
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Rándýr vín er hægt að kaupa í vínbúðum og
selja til útlanda með góðum hagnaði. Til dæmis
er hið rándýra og eldgamla koníak Frapin
árgerð 1888 tugum þúsunda ódýrari hér en á e-
bay. Kostar aðeins 298.000 kr ...