Fréttablaðið - 21.12.2006, Page 106
Tinna Kristjánsdóttir femínisti
hefur teiknað myndir af öllum
jólasveinunum sem birtast ein
og ein á vef Femínistafélagsins
þegar jólasveinarnir koma til
byggða. Jólasveinarnir hennar
Tinnu eru bleikklæddir femín-
istar og færa börnum og fullorðn-
um önnur skilaboð en þeir rauðu.
„Hún Katrín Anna, talskona
Femínistafélagsins, bað mig í
fyrra um að teikna nokkra jóla-
sveina, einn á dag, með þessum
óskum jólasveinanna,“ segir
Tinna.
Stekkjastaur óskar sér að
launamun kynjanna verði útrýmt
og Stúfur óskar sér fleiri konur í
valdastöður. Allir þrettán hafa
þeir femínískar jólaóskir.
„Þetta er byggt á körlum sem
ég teiknaði með vinstri hendinni
fyrir fimmtán árum, sem þeim
leist vel á,“ segir Tinna, sem er
þrátt fyrir það rétthent. „Þegar
maður er lítill þá prófar maður
eitt og annað og að teikna með
vinstri hendi er eitt af því. Þetta
er eins og að skrifa nafnið sitt
afturábak á hvolfi með
vinstri
hendinni,
bara til að
sjá hvað
maður getur.
Þetta er bara
ákveðinn
stíll.“
Femín-
istafélagið
gaf út jóla-
kort í fyrra
með einum
jólasveinin-
um og mun
senda út
annað núna
sem styrktar-
aðilar og
aðrir sem
félagið vill
óska gleði-
legra jóla fá
inn um lúguna, til dæmis stjórn-
málaöfl.
„Ég byrjaði á að
gera þetta í fyrra,
en þá var þó nokk-
uð liðið á desem-
ber, svo að ég teikn-
aði bara nokkra.
Ég kláraði þá
núna í desember,
áður en sá fyrsti
kom til byggða,“
segir Tinna.“
Jólasveinana
má sjá á www.
feministinn.is, en
þá verður alla
hægt að skoða
þegar Kertasníkir
kemur til byggða á
aðfangadag.
Tinna teiknar
femíníska jólasveina
Útgáfutónleikar vegna plötunnar
Þriðja leiðin voru haldnir í Iðnó á
dögunum. Þriðja leiðin er sam-
starfsverkefni Barkar Hrafns
Birgissonar gítarleikara, Elísa-
betar Eyþórsdóttur söngkonu og
Einars Más Guðmundssonar rit-
höfundar. Lögin á plötunni eru öll
eftir Börk en textarnir eru eftir
Einar Má.
Áhorfendur kunnu vel að meta
tónleikana og klöppuðu óspart
fyrir þeim Berki, Betu og Einari
Má. Einnig komu þar fram for-
eldrar Betu, Ellen Kristjánsdóttir
og Eyþór Gunnarsson, Þorgrímur
Jónsson, Scott McLemore, Sigurð-
ur Flosason, Kjartan Hákonarson
og Ómar Guðjónsson.
Þriðju leiðinni fagnað
Margir þekkja Wikipedia,
alfræðiorðabókina á netinu
sem allir geta breytt og
bætt upplýsingum í. Færri
þekkja þó Uncyclopedia,
Óalfræðibókina, sem allir
geta breytt og bætt bulli í.
Uncyclopedia, eða „Óalfræði-
bókin“, lítur nákvæmlega eins út
og Wikipedia við fyrstu sýn, en
við nánari skoðun sést að allt
sem í henni stendur er algjör
vitleysa. Á síðunni má lesa að
Jesús Kristur hafi verið 56. for-
seti Bandaríkjanna, Grænland
sé hitabeltiseyja og að strand-
vörðurinn David Hasselhoff sé
einn virtasti vísindamaður
heims. Hann hafi einnig verið
helsta orsök falls Berlínarmúrs-
ins og sameiningar Austur- og
Vestur-Þýskalands.
Öllum greinunum fylgja svo
tilvitnanir í rithöfundinn Oscar
Wilde, sem hefur margt misgáfu-
legt um flest að segja, og marga
aðra, þar á meðal leikarana Mr. T
og Samuel L. Jackson og George
Bush Bandaríkjaforseta.
Ísland fær að sjálfsögðu
umfjöllun eins og í öllum góðum
fræðiritum. Samkvæmt Óalfræði-
bókinni tala Íslendingar „björk-
sku“, enda ræður söngkonan ást-
sæla, Björk Guðmundsdóttir,
ríkjum á landinu. Svarthöfði er
hins vegar konungur landsins og
hefur verið það síðan 1906. Danir
viðurkenna ekki sjálfstæði lands-
ins og kindur eru helsti gjald-
miðillinn.
Bobby Fischer er helsta inn-
flutningsvara Íslands samkvæmt
síðunni og Baugur Group það
helsta sem Íslendingar flytja út.
Þjóðsöngur landsins var „Er nokk-
uð rangt við dýrakynlíf?“ þar til
honum var skipt út fyrir „Við
treystum á þorskinn“. Surtsey er
hins vegar sjálfstætt kommúnista-
ríki, sem hefur slitið tengslum við
Ísland.
Á annarri eyju nálægt Íslandi
er Nýja-Bjarkarborg. Hún skiptist
í tvennt, annars vegar íshöll Bjark-
ar og hins vegar hverfi fátækra
þræla, sem búa í 30 manna hópum
í moldarkofum. Þrælarnir eru alls
um 15 þúsund talsins, en í íshöll
Bjarkar býr enginn nema hún og
fjöldi þjónustuvélmenna.
Meira rugl má lesa á síðunni
sjálfri, www.uncyclopedia.org, og
getur hún verið ágætis tímaþjófur
í skammdeginu.
Veittu vellíðan – gefðu gjafakort í NordicaSpa
Gjafakort í heilsulind NordicaSpa er tilvalin gjöf. Við bjóðum upp á fyrsta flokks
snyrtimeðferðir fyrir andlit og líkama og ýmsar tegundir af nuddi.
Hægt er að kaupa gjafakort fyrir ákveðna upphæð, í tiltekna meðferð og ýmsa
spa pakka. Einnig er hægt að kaupa gjafakort í heilsuræktina – meðlimakort,
einkaþjálfun eða námskeið. Við aðstoðum þig við að finna réttu gjöfina handa
þeim sem þú vilt gleðja.
Við leggjum áherslu á andlega og líkamlega vellíðan og er Nordica Spa heimur
út af fyrir sig.
Opnunartímar:
Móttaka opin Þorláksmessu 9.00–23.00
Aðfangadag 9.00–13.00