Fréttablaðið - 21.12.2006, Qupperneq 108
ERAGON kl. 6, 8.20 og 10.40 B.I. 10 ÁRA
CASINO ROYALE kl. 6 og 9 B.I. 14 ÁRA
HNOTUBRJÓTSPRINSINN ÍSL. TAL kl. 6
HÁTÍÐ Í BÆ kl. 5.50
MÝRIN W.ENGLISH SUBTITLES kl. 8 og 10.10 B.I. 12 ÁRA
BORAT kl. 8 og 10
ERAGON kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 10 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20
THE HOLIDAY kl. 8 og 10.45
CASINO ROYALE kl. 5, 8 og 10.50 B.I. 14 ÁRA
HNOTUBRJÓTSPRINSINN ÍSL. TAL kl. 3.20
HÁTÍÐ Í BÆ kl. 3.40, 5.50 og 8
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 3.40
BORAT kl. 10.10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 5.40 B.I. 12 ÁRA
ERAGON kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 10 ÁRA
THE HOLIDAY kl. 5.40 og 8
SAW III kl. 10.30 B.I. 16 ÁRA
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
MEÐ ÍSLENSKU TALI
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
DAVID EDWARDS, DAILY MIRROR
AUBRAY DAY, TOTAL FILM
“SIGUR”
“MÖGNUД
“FRÁBÆR”
DEBORAH ROSS, THE SPECTATOR
“STÓRFENGLEG”
CHARLES GANT, HEAT
JONATHAN ROSS, FILM 2006
ZOO
MARK ADAMS SUNDAY MIRROR
MATTHEW BOND, THE MAIL ON SUNDAY
Þegar myrkrið skellur á...
hefst ævintýrið!
Stórkostleg ævintýramynd
byggð á magnaðri metsölubók
Hljómsveitin Í svörtum föt-
um ætlar að hætta störfum
eftir þrenna tónleika sem
hún heldur á milli jóla og
nýárs.
Sveitin hefur verið starfandi í átta
ár og að sögn Einars Arnar Jóns-
sonar hljómborðsleikara var
ákvörðunin tekin í mars síðast-
liðnum. „Við ætlum að hvíla okkur
á markaðnum og snúa okkur að
öðru, alla vega í bili,“ segir Einar
Örn og vill ekki útiloka að sveitin
muni eiga endurkomu einhvern
tímann síðar. „Það eru tvö ár síðan
við fórum fyrst að spá í þetta en
við höfum alltaf frestað þessu
enda hefur velgengnin alltaf verið
á uppleið. Við höldum að toppnum
sé náð núna og það er best að
hætta á toppnum.“
Fjórða plata Í svörtum fötum, Orð,
kom út á dögunum og hefur hún
fengið ágætis dóma þótt salan hafi
verið minni en á síðustu þremur
plötum sem allar fóru í gull, eða
yfir 5.500 eintaka markið. Segir
Einar Örn að salan hafi ekkert
haft með ákvörðun sveitarinnar
að gera, enda hafi hún verið tekin
í mars eins og áður sagði.
Meðlimir sveitarinnar, þeir Einar
Örn, Jónsi, Hrafnkell, Áki og Palli
fara nú hver í sína áttina og býst
Einar Örn við því að Jónsi verði sá
eini sem muni halda áfram í tón-
listinni að einhverju viti. „Ég er
menntaður viðskiptafræðingur og
er þessa dagana að leita mér að
starfi í þeim geira. Hrafnkell er að
klára nám og er kominn í sumar-
bústaðabissness, Áki er í markaðs-
deildinni hjá Glitni og Palli hefur
verið að kenna í Garðaskóla. Það
stefnir ekkert í að við séum að
fara að gera neitt mikið á tónlistar-
sviðinu á næstu misserum,“ segir
hann.
Einar Örn játar að það verði gríðar-
leg viðbrigði að hætta í hljóm-
sveitinni. „Við vitum ekki alveg
hvaða áhrif þetta á eftir að hafa.
Lengsta frí sem við höfum tekið
síðustu sjö árin er þrjár vikur. Við
höfum verið stanslaust í þessu en
þessi sveitaballamarkaður var
hálflúinn þegar við vorum að
byrja 1999. Hann var eiginlega
búinn en hann hefur samt breyst
svolítið. Maður getur ekki gengið
að því vísu að fara á staði eins
og Selfoss og Keflavík
lengur enda höfum við
verið meira á Nasa,
Players og í Sjall-
anum. Síðan
hefur fyrir-
tækja- og
einkageir-
inn komið
mjög
sterkt
inn.“
Að sögn Einars Arnar eru
meðlimir Í svörtum fötum
miklir fjölskyldumenn og
geta núna einbeitt sér að
þeim. „Til lengdar er þessi
vinnutími ekkert mjög hent-
ugur fyrir fjölskyldumenn en
við sjáum svo sannarlega ekki
eftir þessum tíma. Þetta er
búið að vera frábært.“
Síðustu tónleikar Í svörtum
fötum verða einmitt í helstu
vígjum sveitarinnar, í Sjallan-
um annan í jólum, á Players
29. desember og á Nasa
kvöldið eftir. Verður hörð-
ustu stuðningsmönnum
sveitarinnar sem mæta á
Players boðið á lokaballið
á Nasa. „Við ætlum fyrst
og fremst að vera við
sjálfir og vera extra mikið við
sjálfir,“ segir Einar Örn um þessa
síðustu tónleika. „Það verða engir
gestaleikarar eða neitt svoleiðis
eða einhverjar sprengingar. Þetta
verða týpísk Í svörtum fötum böll.
Það verður rosalega mikil keyrsla,
lögin spiluð aðeins of hratt, engin
pása á milli laga og lagavalið verð-
ur í samræmi við tónlistarsmekk
íslensks almennings,“ segir hann
og hlær.
Tónlistarmaðurinn Birgir Örn
Steinarsson, eða Biggi, heldur tón-
leika á Kaffi Hljómalind í kvöld.
Þar mun hann spila einn með
kassagítarinn lög af fyrstu sóló-
plötu sinni, Id, og gömul lög með
Maus.
„Mér finnst reyndar alltaf betra
að standa á sviði með einhverjum
öðrum þannig að ég hef verið svo-
lítið tregur við að gera þetta,“ segir
Biggi. „Ég fór með vinum mínum í
Fræ til Keflavíkur um daginn sem
rótari. Pétur Ben hafði afboðað sig
og um leið og ég labbaði inn báðu
þeir á staðnum mig um að taka
nokkur lög. Það gekk vel og ég
ákvað að það væri ekki slæm hug-
mynd að flytja lögin einn,“ segir
hann. Bætir hann því við að flest
lögin hafi verið samin á kassagítar
og því henti það vel að spila þau í
sinni nöktustu mynd.
Biggi spilaði síðast hér á landi
með hljómsveit sinni á Iceland Air-
waves-hátíðinni. Þótt einhverjir
hafi fundið að tónleikunum segir
Biggi að það hafi verið ótrúlega gott
að finna hve margir hafi staðið við
bakið á sér. „Mig langar að reyna að
koma á næsta ári með hljómsveit-
inni og halda útgáfutónleika á litl-
um stað. Ég held að það sem ég er
að gera passi betur við minni staði
og ég vona að fólk geti þá ákveðið
sig í eitt skipti fyrir öll, því að allt
sem þú lest er lygi,“ segir hann og
hlær.
Biggi ætlar að eyða áramótun-
um úti í Bretlandi þar sem hann
hefur dvalið undanfarin tvö ár. Á
gamlárskvöld mun hann spila sem
plötusnúður á litlum bar sem Pete
Doherty hefur oft vanið komur
sínar á. Í lok janúar og í febrúar
ætlar hann síðan að halda nokkra
tónleika þar í landi til að kynna plöt-
una sína.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan 21 og er frítt inn.
Einn með gítarinn
Það er ekki bara íslensk tónlist sem
selst vel á DVD fyrir jólin, íslenskt
grín virðist sömuleiðis ætla að
verða áberandi í jólapökkum lands-
manna í ár. Þannig hafa DVD-disk-
ar með grínþáttunum Stelpunum,
Strákunum og Svínasúpunni feng-
ið afar góðar viðtökur og hafa náð
þeim áfanga að hafa selst í yfir
fimm þúsund eintökum.
Gulldiskar voru afhentir leik-
urum og aðstandendum grínþátt-
anna þriggja af þessu tilefni um
síðustu helgi. Við það tækifæri
færðu grínararnir og Stöð 2
Mæðrastyrksnefnd eintök af disk-
unum vinsælu sem og spurninga-
spilið Meistarann. Mæðrastyrks-
nefnd mun svo færa gjafirnar
þeim fjölskyldum sem eiga um
sárt að binda og neyðast til að leita
aðstoðar við að halda jólin.
Grínarar í gull