Fréttablaðið - 21.12.2006, Page 112
Sænski framherjinn
Henrik Larsson er kominn til
Manchester United þar sem hann
mun dvelja í þrjá mánuði á láni frá
Helsingborg í heimalandi sínu.
Larsson er byrjaður að æfa með
liðinu og segir sjálfur að hann geri
engar kröfur um byrjunarliðssæti
hjá toppliði ensku úrvalsdeildar-
innar. Hann mun líklega spila sinn
fyrsta leik þann 7. janúar, gegn
Aston Villa, þar sem hans gamli
lærifaðir frá Celtic, Martin O´Neill,
er við stjórnvölinn.
„Augljóslega mun stjórinn
ákveða hvar og hvenær hann mun
nota mig. Fyrir mér er ekkert
vandamál að vera varamaður. Ég
veit til hvers ég er kominn hingað
og vonandi stend ég undir vænt-
ingunum. Ég mun gera eins vel og
ég get á æfingum og leggja mig
allan fram þegar ég fæ tækifæri
til að spila,“ sagði Larsson á blaða-
mannafundi á Old Trafford í gær.
Þessi fyrrverandi leikmaður
Celtic og Barcelona er enn í frá-
bæru formi og sáu forráðamenn
spænska liðsins mikið á eftir
framherjanum sem var iðinn við
kolann fyrir Spánar- og Evrópu-
meistarana. Hann er sannfærður
um að hann nái að aðlagast lífinu á
Englandi þrátt fyrir að dvelja þar
aðeins í stuttan tíma.
„Ég tel að í hvert skipti sem
maður er í vítateignum verður
maður að klára færið sitt eins
fljótll og unnt er, það er ekkert
öðruvísi en í Svíþjóð eða annars
staðar.
Þegar þú færð færi er mikil-
vægt að vera rólegur og yfirveg-
aður. Vonandi tekst mér það vel
upp hérna. Ég hlakka mikið til
þess að fá að spila. Ég tek bara
einn leik í einu og sé til hvað ger-
ist,“ sagði Larsson.
Sir Alex Ferguson er í skýjun-
um með komu Larsson sem Fergie
hefur lengi haft augastað á.
„Við þurftum á svona reynslu-
miklum leikmanni að halda. Ég
vona að þetta skipti sköpum, þessi
tími sem hann verður hérna gæti
verið það mikilvægasta á tímabil-
inu fyrir okkur og ég vona það svo
sannarlega. Besta staðan hans er
líklega sem framherji en ég hef
séð hann spila á köntunum áður,“
sagði Ferguson um sinn nýjasta
liðsmann sem áhugavert verður
að fylgjast með.
Gæti spilað lykilhlutverk í titilbaráttunni
Þrátt fyrir afleitt gengi í
ensku úrvalsdeildinni og niður-
lægjandi tap fyrir þriðjudeildarliði
Wycombe í enska deildabikarnum
er starf Les Reed, knattspyrsnu-
stjóra Charlton, ekki í neinni
hættu. Stjórn Charlton ætlar sér
greinilega að vera þolinmóðari í
garð Reeds en forvera hans, Iain
Dowie, sem var rekinn eftir aðeins
tólf leiki við stjórnvölinn um
miðjan nóvember.
„Það er mikið búið að gera úr
bakgrunni Les en við berum fullt
sjálfstraust til þjálfarateymisins
með hann fremstan í flokki. Það
hefur ekki fengið tækifæri til að
gera þær breytingar sem það vill
gera en augljóslega kemur sá tími
núna í janúar,“ sagði Peter Varney,
stjórnarformaður félagsins.
„Við munum ekki skipta um
knattspyrnustjóra í byrjun árs. Við
höfum fulla trú á því að staðan
muni snúast okkur í hag,“ bætti
Varney við en Charlton situr í
næstneðsta sæti úrvalsdeildarinn-
ar og hefur aðeins hlotið tólf stig
úr átján leikjum.
Les Reed verð-
ur ekki rekinn
Áður hefur komið fram
að rússneski markvörðurinn Igor
Akinfeev vakti athygli Arsene
Wenger, stjóra Arsenal, í leik
liðsins gegn CSKA Mosvku sem
lyktaði með markalausu jafntefli.
Sjálfur segir Akinfeev að
honum sé heiður sýndur með að
svo stórt félag sýni honum áhuga.
„Það gerist ekki oft á ferli
knattspyrnumanns. Ef tilboð
berst frá Arsenal mun ég skoða
málið vel og vandlega,“ sagði
Akinfeev.
Aðalmarkvörður Arsenal, Jens
Lehmann, verður 38 ára gamall á
næsta ári.
Orðaður við
Arsenal
Framherjinn Salomon
Kalou hefur ekki áhyggjur af
þeirri staðreynd að hann eigi enn
eftir að skora fyrir Chelsea í
ensku úrvalsdeildinni. Kalou
gekk til liðs við félagið í sumar
frá PSV Einhoven þar sem hann
skoraði 35 mörk í 67 leikjum á
þremur tímabilum.
„Ég veit að ég mun skora,“
sagði Kalou sem átti skot í stöng í
leik Everton og Chelsea um
helgina. „Ég veit ekki hvenær en
ég verð að vera þolinmóður. Ég
veit að Chelsea þarf á mér að
halda og ætla ég að berjast fyrir
mínu sæti í liðinu.“
Ég mun skora
Stuttgart hefur ákveðið
að draga samningstilboð sitt til
landsliðsmarkmannsins Timo
Hildebrand til baka. Það þýðir að
hinn 27 ára gamli Hildebrand
mun yfirgefa liðið næsta sumar
þegar hann verður
samningalaus.
Ljóst er að þessi
snjalli markmaður
verður mjög
eftirsóttur en hann
hefur hug á að
breyta til.
„Við buðum
honum mjög góðan
samning en hann
vildi ekki skuld-
binda sig. Það er í
góðu lagi og við
virðum það. Við munum ekki
halda áfram viðræðum en annar
sterkur markmaður verður í
liðinu okkar fyrir næsta tímabil
sem uppfyllir kröfur okkar og
markmið fyrir framtíðina,“ sagði
Horst Held, yfirmaður íþrótta-
mála hjá Stuttgart.
Fer frítt frá
Stuttgart
Spánverjinn Rafael Nadal
segir að komið sé fram við tennis-
spilara eins og glæpamenn þegar
kæmi að lyfjaprófunum. Hann er í
öðru sæti heimslistans og segir að
hann hafi gengist undir sextán eða
sautján lyfjapróf á árinu, nú síðast
á heimili hans um liðna helgi.
„Það er komið fram við okkur
eins og við værum glæpamenn,“
sagði Nadal. „Ekki veit ég um að
stjórnmálamenn þurfi að gangast
undir lyfjapróf eða neitt í þeim
dúr,“ sagði hann. „Ég er bara
íþróttamaður eins og hver annar.
Ég gengst við reglunum en mér
finnst að þetta sé komið út í alger-
ar öfgar.“
Nadal fagnaði mörgum sigrum
á árinu sem er að líða og var til að
mynda með mikla yfirburði á leir-
völlum. Hann bætti 29 ára gamalt
met Guillermo Vilas er hann vann
sinn 53. sigur í röð á leirvöllum á
opna franska meistaramótinu.
Hann vann Roger Federer í úrslit-
um Opna franska.
Hann féll þó í skugga Federers
á síðari hluta ársins en þeir mætt-
ust aftur í úrslitum Wimbledon-
mótsins sem sá svissneski vann
örugglega. Þar var þó önnur við-
ureign minnisstæðari er hann sló
út Andre Agassi í síðasta Wimb-
ledon-móti þess síðarnefnda.
Nadal mun senn hefja undir-
búning fyrir Opna ástralska meist-
aramótið sem hefst í janúar næst-
komandi.
Komið fram við okkur eins og glæpamenn
Nokkrir athyglisverðir
leikir fóru fram í þýska handbolt-
anum í gærkvöld. Magdeburg kom
verulega á óvart með stórsigri á
Kiel, 39-24, en Kiel var tveim
mörkum yfir í leikhléi, 16-18. Allt
fór aftur á móti úrskeiðis hjá lið-
inu í síðari hálfleik þar sem það
skoraði aðeins sex mörk.
Viggó Sigurðsson og félagar í
Flensburg gripu tækifærið báðum
höndum með því að leggja Gylfa
Gylfason og félaga í Wilhelms-
havener, 35-27, í lokaleik Viggós
með Flensburg á heimavelli.
Flensburg er fyrir vikið með
tveggja stiga forystu á toppi deild-
arinnar en Flensburg sækir Kiel
heim á Þorláksmessu.
Það var mikil stemning þegar
einn helsta goðsögn Gummers-
bach, Kóreubúinn Kyung Shin-
Yoon, mætti á sínn gamla heima-
völl í gær með Hamburg. Leikurinn
var jafn og æsispennandi frá upp-
hafi til enda og lyktaði með jafn-
tefli, 29-29. Róbert Gunnarsson
skoraði jöfnunarmarkið mínútu
fyrir leikslok. Guðjón Valur Sig-
urðsson og Róbert Gunnarsson
skoruðu báðir 4 mörk fyrir Gum-
mersbach.
Íslendingaliðið Gummersbach gerði jafntefli á heimavelli, 29-29, við Hamburg í
gær. Flensburg er eitt á toppi deildarinnar þar sem Kiel tapaði í Magdeburg.