Fréttablaðið - 21.12.2006, Qupperneq 118
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Nei, ég var ekkert stressaðri
fyrir vikið enda finn ég fyrir nær-
veru hans hvar sem ég er,“ segir
Garðar Thor Cortez sem söng
fyrir pabba sinn, óperusöngvar-
ann Garðar Cortez, á þriðjudags-
kvöld. „Hann var á leiðinni til
Þýskalands að stjórna þar og kom
við hérna á Englandi til að sjá
mig,“ útskýrir stórsöngvarinn en
þetta er í
fyrsta
skipti
sem
Garðar eldri sér son sinn syngja á
tónleikaferðinni með Katherine
Jenkins í Bretlandi.
Garðar hefur heldur betur sleg-
ið í gegn hjá Bretunum og í
umfjöllunum er honum hrósað í
hástert. Blaðamaður Daily Post í
Liverpool gengur jafnvel svo langt
að líkja honum við sjálfan
Luciano Pavarotti, ítalska
hetjutenórinn. „Þeir eru
hrifnir af þessum tón-
leikum og ég get ekki kvartað
enda er uppselt á þá alla,“ segir
Garðar af stakri hógværð en vill
sem minnst gera úr samlíkingunni
við Pavarotti.
Þegar Fréttablaðið náði tali af
Garðari var hann á leiðinni frá
Brighton til Portsmouth þar sem
hann söng í gærkvöldi en síðustu
tónleikarnir í röðinni eru í Bristol
í kvöld. „Síðan kem ég til Íslands
enda er þetta búið að vera langur
tími hérna úti, einar sex vikur
sleitulaust,“ segir Garðar sem er
að sjálfsögðu glaður að ná heim í
jólasteikina en tenórinn syngur
á jólatónleikum til styrktar
krabbameinssjúkum börnum í
Háskólabíói 28. desember. Í
febrúar dregur síðan aftur til
tíðinda í útrás Garð-
ars til Bretlands en
þá kemur út sóló-
platan hans sem
sló eftirminnilega
í gegn hér heima
fyrir síðustu jól.
Líkt við Pavarotti og söng fyrir pabba
fá Radíusbræður, sem líta ekki
á sig sem risaeðlur og gefa
nýrri kynslóð tækifæri til að
kynnast gríninu á Radíus-
kvöldi á Hverfisbarnum.
„Ég var að frétta af þessu í dag og
verð að segja að það sýður á mér
vegna málsins,“ segir Gunnar Óla-
son sem fór með aukahlutverk í
Hollywood-kvikmyndinni Flags of
our Fathers, sem tekin var upp hér-
lendis sumarið 2005. Engum þeirra
fimm hundruð aukaleikara sem
tóku þátt í gerð kvikmyndarinnar
hér á landi hefur verið boðið á við-
hafnarsýningu á myndinni í
Háskólabíói í kvöld klukkan sjö.
Gunnar segist vera mjög reiður
vegna þessa og telur að þarna hafi
loforð verið brotin. „Þegar tökum
lauk var öllum boðið í lokateiti á
Rex en ekki okkur aukaleikurun-
um,“ segir Gunnar sem leikur lið-
þjálfa í herdeild ellefu í myndinni.
„Okkur var sagt að aukaleikurun-
um yrði boðið á sérstaka sýningu
þar sem við gætum jafnvel tekið
með okkur maka en við höfum ekki
fengið neitt boð,“ bætir hann við.
Gunnar segist sjálfur hafa haft
samband við kvikmynda-
fyrirtækið True North
sem hafði veg og
vanda af tökunum
hér á landi. „Þau
segjast vera reyna
að redda okkur
sýningu en það
sé ekk-
ert öruggt að það hafist,“ útskýrir
Gunnar sem tók skýrt fram að hann
myndi hafna öllum slíkum boðum
og þeir sem hann hefur rætt við
ætli að gera slíkt hið sama. „Við
vorum þarna í tvo mánuði, fórum á
fætur eldsnemma á morgnana og
fengum fimm þúsund krónur í laun
á mánuði,“ segir Gunnar. „Burðuð-
umst með þrjátíu kílóa bakpoka á
hverjum degi,“ bætir hann við. „Við
viljum því eðlilega sjá myndina á
sama tíma og allir hinir, vera fyrst-
ir á landinu,“ segir Gunnar og hvet-
ur þá sem tóku þátt í Sandvík að
mæta fyrir framan Háskólabíó og
halda þögul mótmæli.
Fréttablaðið hafði samband við
Helgu Margréti Reykdal, fram-
kvæmdarstjóra True North, sem
sagði að boðsgestir þeirra á sýning-
una í kvöld væru allt starfsfólk
kvikmyndarinnar sem hefðu unnið
að gerð myndarinnar í marga mán-
uði en samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins var True North
úthlutað sex hundruð miðum.
Skautasvellið sem Tryggingamið-
stöðin lét setja upp á Ingólfstorgi í
tilefni af hálfrar aldar afmæli sínu
hefur verið lokað í tvo daga, en
Bryndís Pjetursdóttir hjá Trygg-
ingamiðstöðinni sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær að það myndi
væntanlega opna aftur í dag. „Þetta
er bara vegna veðurs, það er svo
sem ekkert að svellinu,“ sagði hún,
en rigningin sem herjað hefur á
höfuðborgina síðustu daga hefur
varla farið fram hjá neinum.
Tryggingamiðstöðin heldur
svellinu úti til 29. desember en óvíst
er hvað gerist þá. Einhverjar við-
ræður munu vera í gangi við borg-
aryfirvöld, en enn er ekkert komið
á hreint. „Það er bara verið að ræða
þessi mál, og það kemur jafnvel til
greina að færa það eitthvað til,“
sagði Bryndís. Hún sagði aðsóknina
hafa verið mjög góða frá því að
svellið opnaði. Það er því augljóst
að borgarbúar kunna vel að meta
framtakið og margir fylgjast eflaust
spenntir með því hvað verður þegar
29. desember rennur upp.
Framtíð skautasvellsins óljós
Fallegir listmunir
fyrir heimilið
...og til gjafa
Innanhússarkitekt á staðnum
veitir ráðgjöf við val
og uppsetningu
Opnunartími
fram að jólum
fimmtudag 12:00-18:00
föstudag 12:00-19:00
laugardag 13:00-18:00