Fréttablaðið - 21.12.2006, Blaðsíða 120
Enn átti ég eftir að kaupa nokkra pakka. Ég hætti mér því í
Smáralind og taldi mig hafa valið
tímann vel: um kvöldmat á virkum
degi. Hélt að ég slyppi við mestu
jólageðveikina, en nei nei. Hún
skall á mér um leið og ég steig inn.
Fólk með poka og aftur poka
vafrandi um með eld í augum og
froðu í munnvikinu. Yfir öllu, eins
og bumbuslagari í galeiðu, söng
svo mest óþolandi jólalag í heimi:
Jól alla daga. Svona er þá í helvíti,
hugsaði ég og íhugaði að hlaupa
öskrandi út. Dró svo djúpt andann
og setti undir mig hausinn.
mæti Eiríkur Hauksson
syngur jólalagið óþolandi, en glys-
rokkarinn Roy Wood og hljómsveit
hans Wizzard gerðu fyrst allt vit-
laust með því árið 1973. Lagið er
sjúklega hresst og allar klisjur
jólalaganna renna saman í því, frá
hreindýrabjöllunum til barnakórs-
ins. Textinn er punkturinn yfir i-i
brjálæðisins. Eiríkur dregur á
sannfærandi hátt upp martraðar-
kennda hugaróra fársjúks manns
sem lætur sig dreyma um enda-
laus jól: „Já, ég vildi að alla daga
væru jól, þá gætu allir dansað og
sungið jólalag,“ æpir hann og
maður heyrir hvernig æðarnar í
augunum á honum stækka.
svona?! Neeeeiiiii!!! Einu
sinni á ári er bara alveg nóg –
algjörlega passlegt!
stressið og lætin er það
friðurinn kl. 18 á aðfangadag sem
allir stefna að. Þegar kirkjuklukk-
urnar á RÚV byrja að glymja og
presturinn að tóna. Það augnablik
þegar jólin loksins koma er það
sem allt gengur út á. Þá slaknar á
öllu eins og stungið sé stórri nál í
allar blöðrur á landinu. Friður
jólanna er því í raun að fá loksins
frí eftir mikla vinnu, vinnu sem
fólst í því að undirbúa þennan sama
frið. Jólin eru undarleg þversögn.
er fylgt eftir með
ofáti á þungu kjöti og súkkulaði.
Þegar jólin eru loksins komin er
því upplagt að kyrja gömlu góðu
jólalögin. Þau eru mörg með
fjarstæðukenndum textum og
passa feikivel við útbelgt og
úttaugað ástandið. Í lögunum
renna saman í draumkenndu
móki utangátta Andrésar, könnur
upp á stól, einiberjarunnar, gamlar
konur að prjóna og snúa sér í hring
og mannkindur sem liggja mein-
villar í myrkrum. Aðeins í furðu-
legu hugarástandinu um jólin virð-
ist eitthvert vit vera í þessu.
fyrir allt kemst maður þó
alltaf að sömu niðurstöðu og
Jóhannes úr Kötlum: Eitt er víst að
alltaf verður, ákaflega gaman þá.
Gleðileg jól!
Jól alla daga