Fréttablaðið - 23.12.2006, Blaðsíða 88
Skyndilegur áhugi á ferli og verk-
um Magnúsar Blöndals Jóhanns-
sonar er tekinn að skila hljóðritun-
um á verkum hans í aðgengileg
form. Við vitum nú meira um tón-
smíðar hans en nokkru sinni fyrr:
Bjarki Sveinbjörnsson hefur unnið
mikið þarfaverk við að bjarga
þekkingu um Magnús, jafnvel
verkum hans í frumútgáfum.
Smekkleysa er í fararbroddi í
þessu starfi og sendir nú frá sér
einsöngslög Magnúsar í túlkun
Ásgerðar Júníusdóttur og fleiri.
Þessi diskur er dýrgripur, jafn-
framt grætilegur minnisvarði um
smæð íslensks samfélags um
miðja síðustu öld að eiga svo
snjallt tónskáld, svo næman túlk-
anda ljóða í tónum sem því miður
eru flest dökk, og vita ekki af hvað
við áttum. Hvað við misstum,
hvers við fórum á mis.
Útgáfa disksins er að stærstu
leyti framtak, einkafyrirtæki
Ásgerðar, framtak sem verður í
senn að þakka og lofa. Hún rekst á
sönglögin í fórum Guðmundu
Elíasdóttur og verður eftir kynn-
ingu af þeim að koma fjársjóðnum
á framfæri. Mezzo-rödd hennar
hæfir afar vel efni flestra ljóð-
anna og tindrandi píanóvinnsla
tónmálsins styrkir dimmt þelið í
ljóði, lagi og sönglínunni.
Magnús er kviksjá miðrar
aldar: hann sækir sér efni í eldri
skáldskap og yngri, nemur innan
úr kvæðum staka kafla sem hann
tóngerir með rómantískum blæ í
upprunalegum skilningi þess orðs,
en um leið er hann að vísa fram:
það er ögurstund í menningunni
og hann ármaður sem stjakar
okkur að nýrri strönd. Tólftóna-
sköpun hans er ungleg í dag en
ekki ókennileg.
Allt er hér fallegt, fallega samið
og hugsað, fallega sungið af
mildum innileik með snörp-
um og velbyggðum áhersl-
um sem byggja á djúpum
skilningi lags og ljóðs með
glæsilegum undirleik Árna
Heimis, trúi ég því ekki er
getið um undirleikara á
kápu og vel unnum
bæklingi.
Ásgerður er
glæsileg söngkona,
röddin hennar
mjúk með dimm-
um áfellum, gátt í
hugsun sem er
heillandi og
hættuleg í senn.
Henni tekst
afburðavel að
miðla jafn ólíkum efnum og sálma-
kenndu tónmáli í Ég kveiki á
kertum mínum, sálmabroti Hall-
gríms sem þekktast er af lokalín-
unni Sitji guðs englar, og dáindis-
fallegu stefi Magnúsar við Í
draumi sérhvers manns, og stærri
ópusum þar sem heil ljóð eru lögð
undir: Seinustu nóttinni eftir Þor-
stein Erlingsson, Höndum Steins,
Rakk eftir Grím Thomsen, og
hinni gullfallegu Draumsýn Jak-
obs J. Smára sem er eitt hinna
gleymdu stórskálda á fyrri hluta
síðustu aldar.
Ásgerður kýs að taka vokalísur
Magnúsar og leggja þær í smiðju
yngri tónskálda. Víst er það for-
vitnileg endurvinnsla og mátast
prýðilega við meginefni disksins,
en skákar þó ekki frumsömdu
efni: Kosið hefði ég að heyra Na-
No-Mani sungið af henni, en þar er
Magnús kominn nálægt konkret-
ljóðlistinni sem fáir lögðu fyrir
sig hér á landi á þeim árum.
Örlög Magnúsar eru okkur
hugstæð nú. Hann er varði í tón-
smíðum íslendinga á síðustu öld,
víti sem lýsti inn í framtíðina,
náði því að vera forsmáð tón-
skáld á sama tíma og eitt
sönglag hans, Sveitin milli
sanda, varð almenningseign.
Þessi glæsilega útgáfa að
sönglögum hans er tímabær
og kærkomin viðbót sem á
skilið hástemmt lof og
langa lífdaga.
Í rökkri Magnúsar og Ásgerðar
Því verður ekki neitað að Wuther-
ing Heights er meðal þekktustu
verka breskrar ritlistar og hefur
tvímælalaust bókmenntasögulegt
gildi – og þá ekki síst kvennabók-
menntasögulegt. Ritað af konu
fyrir hartnær hundrað og sextíu
árum, á tíma þar sem ritlist var
ekki talin kvenmannsverk; enda
gefin út undir dulnefni karlmanns
í fyrstu lotu.
Hins vegar er allur gangur á
því hversu hrífandi skáldsagan er
sem slík. Þegar ég las hana fyrst
fyrir rúmlega þrjátíu árum (á
ensku) fannst mér persónur henn-
ar yfirgengilega móðursjúkar í
tjáningu sinni, varanlega á barmi
örvæntingar, deyjandi á unga aldri
eftir að hafa pumpað sig sjálfar
upp í algera geðveiki. Þær eru í
nokkuð öflugum óperustílsstærð-
um. En, eins og verða vill, lesast
sögur með ólíkum gleraugum með
aldri og þroska. Þótt mér finnist
tjáning persónanna ennþá nokkuð
yfirdrifin, verður ekki litið fram-
hjá því að Emily Brontë gefur
mynd af harðneskjulegu og
kreddufullu samfélagi þar sem
ekki er pláss fyrir tilfinningar eða
mennsku af nokkru tagi. Hún
dregur skýrt fram þá staðreynd
að lengi búi að fyrstu gerð; það sé
ástæða fyrir illsku þeirra sem
verða að samúðarlausu fullorðnu
fólki.
Heimur sögunnar er ákaflega
lokaður. Hún gerist hjá heldra
fólki á tveimur býlum uppi til
heiða. Þótt sagt sé frá því í sög-
unni að stærra samfélag sé utan
túnmarka býlanna, berst sagan
aldrei þangað. Feðurnir bregða
sér bæjarleiðir en engum sögum
fer af ferðum þeirra. Á meðan
þeir skreppa er sagt frá lífi kvenna
og barna á býlunum. Þeirra heim-
ur er húsið sem þau búa í og garð-
urinn í kring.
Allt hefur leikið í ágætislyndi
þar til húsbóndinn á Wuthering
Heights kemur með lítinn dreng
heim með sér úr einni af ferðum
sínum út fyrir sögusvæðið; dreng
sem hann fann einan og yfirgefinn
og gefur nafnið Heathcliff. Koma
drengsins verður til að sundra
fjölskyldunni; húsbóndinn dekrar
við hann, eiginkonan þolir hann
ekki, sonurinn leggur fæð á hann
en dóttirin, Catherine, leggur
ofurást á hann. Þegar húsbóndinn
deyr og sonurinn tekur við býlinu
er Heathcliff sviptur stöðu dekur-
barnsins og hann hrakinn út í horn
til vinnufólksins. Í kjölfarið fylgir
all-dramatísk saga. Örlagapunkt-
urinn verður þegar Catherine gift-
ist piltinum á hinu býlinu, pilti
sem hæfir hennar þjóðfélags-
stöðu. Heathcliffe fer í burtu í
nokkur ár en snýr síðan aftur vell-
auðugur maður sem hyggur á
hefndir – og hefndarþorsti hans er
ofsafenginn.
Hvað þýðinguna varðar, þá er hún
nokkuð nútímaleg. Andrúmsloft
sögunnar tapast að hluta, heimur
hennar færist nær okkur í tíma og
virkar þar af leiðandi á köflum
fáránlegur. Orðræða verður eins-
leit, sem og samtöl: hin skörpu skil
milli persónanna hverfa nánast.
Þegar sagan er lesin á ensku er
stéttamismunur til dæmis ljós en
hann hverfur í þessari þýðingu.
Sagan verður nokkuð flatari fyrir
vikið um leið og ofstæki persón-
anna fær enn ýktari blæ. Hvað
titil bókarinnar varðar, þá get ég
hins vegar alveg fallist á Wuther-
ing Heights. Býlið sem allt snýst
um heitir jú Wuthering Heights en
ekki, til dæmis, Fýkur yfir hæðir.
Það er alltaf smekksatriði hvort
þýða á staðar- og bæjarnöfn. Í
þessari þýðingu hefur verið farin
sú leið að gera það ekki og það er
alveg ásættanlegt.
Óperustórar persónur á heiðarbýli
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is
Stóra sviðið kl. 20:00
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter
Lau. 6/1, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1, lau. 27/1.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Fös. 29/12 kl. 20:00 uppselt, lau. 30/12 kl. 14:00 uppselt og kl. 17:00 uppselt, lau. 6/1
kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1
kl. 14:00 nokkur sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1 kl. 14:00 örfá sæti
laus, sun. 21/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus.
BAKKYNJUR eftir Evrípídes
Frumsýning 26/12 uppselt, 2. sýn. mið. 27/12 örfá sæti laus, 3. sýn. fim. 28/12 örfá sæti
laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá
sæti laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1.
LEITIN AÐ JÓLUNUM eftir Þorvald Þorsteinsson
Í dag lau. 23/12 kl. 13:00 uppselt.
Leikhúsloftið
SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur
Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og
kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 11:00,
kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt.
Kúlan
Smíðaverkstæðið kl. 20:00
PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker.
Lau. 6/1 nokkur sæti laus, fös. 12/1 kl. 16:30 nokkur sæti laus, lau. 13/1 örfá sæti laus,
lau. 20/1. Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis.
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is.
Bakkynjur, frumsýning 26. desember.