Fréttablaðið - 29.12.2006, Blaðsíða 1
63%
40%
31%
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Capacent í nóvember 2006.
Föstudagur
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
allt landið
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
30
20
10
50
40
0
60
70
Smáauglý
Þráinn Bertelsson kynntist afskaplega góðri fiskisúpu
í Frakklandi fyrir margt löngu.„Ég hlakka alltaf til þess milli jóla og nýárs að hvíla mig á
reykta kjötinu sem borðað er ótæpilega af á þessum árs-
tíma,“ segir Þráinn Bertelsson kvikmyndagerðarmaður.
„Þá fæ ég mér fiskisúpuna.“Þráinn segist fyrst hafa fengið súpuna góðu bouilla-
baisse í Suður-Frakklandi fyrir langa löngu. Súpan er að
sögn Þráins ættuð frá Marseille eins og franski þjóðsöngur-
inn og greifinn af Monte Cristo.Þráinn hafði þó engar væntingar til súpunnar í fyrsta
skipti sem hann fékk hana. „Ég hafði aldrei fengið öðruvísi
fiskisúpu en íslenska lúðusúpu sem búin er til úr hveiti,
ediki og lárviðarlaufum og var því ekki bjartsýnn á að borða
fiskisúpu. Það var hins vegar mikil upplifun að bragða
alvöru fiskisúpu í fyrsta skipti á ævinni og síðan hefur þetta
verið einn af mínum uppáhaldsréttum,“ segir Þráinn og
fannst mikil upplifun að uppgötva að aðrar þjóðir gætu búið
til öðruvísi fiskisúpu en tíðkaðist hér á landi, úr lúðu, laxi
eða silungi.
Þráinn gefur lesendum uppskriftina að súpunni góðu.
Hana fékk Þráinn frá vini sínum og nágranna Gerard Lem-
arquis. Hann segir hins vegar fráleitt að gefa nákvæmar
mælieiningar yfir magn hvítvíns, kryddjurta og annarra
hluta uppskriftarinnar, hlutföllin fari alfarið eftir persónu-
legum smekk og sálarástandi kokksins hverju sinni.
Uppskrift Þráins má finna á síðu 3.
Hvílir sig á reykta
kjötinu
SIRKUS29. DESEMBER 2006
2006
Menn ársinsEINKA-
VIÐTAL
BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON
OG EGGERT MAGNÚSSON
SIRKUS-AKADEMÍAN FER YFIR ÁRIÐ • Allt það besta og versta [6]
BASSHUNTERINN SNÝR AFTURKOMINN MEÐ ÍSLENSKAKÆRUSTU [12]
CURVER OG KIKI OWBrjálað 90 ś áramótapartí
GAMLÁRSKAKA Á SIRKUSFjögurra tíma bein útsending
Menn ársins 2006
Ekki er búist við
meiriháttar röskun á flugi eftir
áramót þegar Flugstoðir ohf. taka
við stjórn flugumferðar af Flug-
málastjórn, en flugrekendur fund-
uðu í gær með Flugmálastjórn.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugstoðum verða tveir meginferl-
ar flugs til og frá Evrópu, en einn
ferill til og frá Bandaríkjunum. Á
hverjum ferli verða tvær flughæð-
ir. Afkastageta flugumferðar-
stjórnar verður þannig minnst
sextán vélar á klukkustund. Þor-
geir Pálsson flugmálastjóri segir
þetta miðað við þá þörf sem fyrir
hendi sé á þessum árstíma.
Hjá Icelandair verður engum
flugáætlunum breytt að svo
stöddu. „Það verður auðvitað að
sjá hvernig þetta þróast, en eins
og er reiknum við með að þetta
verði allt í góðu, fyrir utan minni
háttar raskanir. Það er búið að
segja okkur að allt verði gert til
að halda áætlun eins lengi og unnt
er og við trúum bara og treystum
á að svo verði,“ segir Jón Karl
Ólafsson, forstjóri Icelandair.
Jón Karl dregur hins vegar
ekki dul á að þetta sé síst óska-
staða flugrekenda. „Við verðum
að reikna með því að þetta kosti
einhverja peninga, því ekki verð-
ur hægt að hagræða leiðum eftir
veðri og vindum. En ef svona
heldur áfram mun stjórn flugum-
ferðarsvæðisins bara færast í
burtu frá Íslandi, erlendir aðilar
munu ekki líða röskun til lengri
tíma, því miður.“
Flugmálastjórn sendi frá sér
yfirlýsingu í gærkvöldi til að
árétta að viðbúnaðaráætlunin um
flug eftir áramót miðist við fullt
og óskert flugöryggi. Engar við-
ræður eru milli Flugstoða og flug-
umferðarstjóra, sem ekki vilja
ráða sig til starfa hjá fyrirtækinu
að óbreyttu.
Flugið raskast lítið
Flugmálastjórn fullvissaði flugrekendur í gær um að þeir geti haldið áætlunum
sínum óbreyttum eftir áramót, þrátt fyrir að tæplega sextíu flugumferðarstjór-
ar hafi enn ekki ráðist til starfa hjá hinu nýja fyrirtæki, Flugstoðum ohf.
Hæstaréttardómar í
fíkniefnamálum hafa mildast
töluvert á allra síðustu árum. Það
er í fyrsta sinn sem það hefur
gerst frá því að löggjöf um
áfengis- og fíkniefnabrot tók
gildi. Á níunda áratugnum höfðu
dómarnir þyngst gífurlega vegna
komu e-töflunnar á íslenskan
fíkniefnamarkað.
Helgi Gunnlaugsson, prófessor
í félagsfræði, segir áherslur í
fíkniefnamálum þó vera rangar
þar sem refsistefna uppræti ekki
neyslu efnanna. Vandinn falli
fyrst og fremst undir félags-,
menningar- og heilbrigðismál og
að yfirvöld leysi hann ekki með
því að fara í stríð við borgara sína.
Dómar mildari
á síðustu árum
Í skriflegu svari
Guðmundar Jónssonar og Jóns A.
Einarssonar við sjö spurningum
Magnúsar Stefánssonar félags-
málaráðherra um málefni
Byrgisins kemur fram að
Guðmundur og læknarnir Ólafur
Ólafsson og Magnús Skúlason beri
faglega ábyrgð á starfi Byrgisins.
Fréttablaðið hefur spurning-
arnar og svörin undir höndum.
Guðmundur og Jón svöruðu
spurningunum fyrir hönd stjórnar
Byrgisins en Leifur A. Ísaksson
sagði sig úr stjórninni í kjölfar
umræðu í fjölmiðlum um Byrgið
og ásakanir á hendur Guðmundi
Jónssyni.
Guðmundur og
læknar ábyrgir