Fréttablaðið - 03.01.2007, Blaðsíða 37
H A U S
MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2007
E R L E N D U R A N N Á L L 2 0 0 6
á frekari uppleið og fall ekki í sjónmáli á
ný. Væntingar fjárfesta stóðust enda rauf
vísitalan hvert metið á fætur öðru, síðast í
byrjun desember þegar hún fór yfir 14.000
stig.
Þá sá loks fyrir endann á Enronmálinu
þegar dómur féll í máli Andrew Fastow,
fyrrum fjármálastjóra orkusölurisans
fyrrverandi. Fastow hlaut sex ára dóm
sem var fjórum árum styttri dómur en
gert var ráð fyrir. Fastow var meðal ann-
ars sakaður um innherjasvik en hann auðg-
aðist verulega við sölu á bréfum sínum
í félaginu áður en halla tók undan fæti
orkusölurisans. Auk fangelsisdómsins var
hann dæmdur til að greiða til baka 30
milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði rúmra
2,1 milljarðs íslenskra króna í reiðufé og
eignum.
Ríkisstjórn Írlands einkavæddi flugfé-
lagið Aer Lingus í lok september. Írska
ríkið hafði í gegnum tíðina farið með
rúman 85 prósenta hlut í flugfélaginu en
ákvað að selja 50 prósent úr safni sínu í
almennu hlutafjárútboði áður en til skrán-
ingar þess kom í kauphöllunum í Dublin á
Írlandi og Lundúnum í Bretlandi á öðrum
degi október. Landar þeirra hjá lággjalda-
flugfélaginu Ryanair tryggðu sér 16 pró-
senta hlutafjár í útboðinu en juku hann
fljótlega í 19,2 prósent. Í kjölfarið gerði
stjórn Ryanair yfirtökutilboð í alla eftir-
standandi hluti sem hljóðaði upp á 1,48
milljarða evrur eða rúma 130 milljarða
íslenskra króna. Tilboðið mætti harðri
andstöðu jafnt frá írskum ráðherrum til
starfsmanna Aer Lingus og hins almenna
Íra. Starfsmannafélag Aer Lingus, sem
tryggði sér vænan skerf í flugfélaginu við
einkavæðingu þess, jók við hlut sinn auk
þess sem írskur auðkýfingur keypti lítinn
hlut með það eitt fyrir augum að koma í
veg fyrir að Ryanair gæti komið höndum
yfir flugfélagið. Michael O‘Leary, forstjóri
Ryanair, þrýsti á hluthafa Aer Lingus að
þeir tækju tilboðinu og sagði þetta einstakt
tækifæri til að stofna stórt írskt flugfélag.
Hluthafarnir tóku ekki vel í kostaboðið en
ekki bætti úr skák þegar hann boðaði stór-
tækar hagræðingaraðgerðir til að bæta
rekstur Aer Lingus. Barátta flugfélaganna
átti eftir að harðna talsvert eftir því sem
nær leið áramótum.
Jeffrey Skilling, fyrrum yfirfram-
kvæmdastjóri Enron, var dæmdur til 24
ára fangelsisvistar vegna aðildar að stór-
felldum svikum til að fela milljarðatap
orkusölurisans. Dómurinn var talsvert
lægri en búist hafði verið við en fjölmiðl-
ar reiknuðu með því að hann hlyti tæplega
tveggja alda dvöl innan veggja fangelsis-
ins. Endi var ekki bundinn á Enronmálið
því Richard Causey, fyrrverandi aðalend-
urskoðandi Enron, hlaut sömuleiðis fimm
og hálfs árs dóm fyrir málið um miðjan
nóvember. Skilling hóf afplánun um miðj-
an desember og var þar með botninn sleg-
inn í málið sem staðið hafði yfir síðastliðin
fimm ár.
„Þetta er frábært [tilboð]
fyrir ríkisstjórnina, starfs-
fólkið, hagkerfi lands-
ins og ferðamennsku á
Írlandi.“
Michael O‘Leary, forstjóri írska lággjaldaflugfélagsins
Ryanair, um yfirtökutilboð flugfélagsins í Aer Lingus í
október.
Englandsbanki ákvað í byrjun nóvem-
ber að hækka stýrivexti um fjórðung úr
prósenti og fóru vextirnir í 5 prósent.
Almennt var búist við þessari vetrargjöf
bankans til landsmanna enda fyrsta stýri-
vaxtahækkun bankans á árinu sem staðið
hafði fastur á sínu þrátt fyrir að margsinn-
is hafi verið þrýst á Mervyn King. banka-
stjóra Englandsbanka, að hækka vextina.
Reyndar hafði ekki verið einhugur um
óbreytta vaxtastefnu bankans.
Undir lok mánaðarins komst japanska
netfyrirtækið Livedoor á ný í fréttir þegar
stjórn fyrirtækisins ákvað að selja fjár-
málaarm þess. Ljóst þykir að Livedoor
heyrir sögunni til sem eitt af óskabörnum
Japana enda malaði armurinn gull fyrir
fyrirtækið. Livedoor mun í framtíðinni
ætla að einbeita sér að því sem það var
upphaflega stofnað til, eða vefhönnun og
hugbúnaðarþróun.
Tilraunir írska lággjaldaflugfélagsins
Ryanair til að kaupa írska flugfélagið Aer
Lingus var sem rauður þráður í gegnum
veturinn. Baráttan harðnaði frekar en hitt
því á síðustu dögum nóvember tilkynnti
Dermont Mannion, forstjóri írska Aer
Lingus, að Ryanair hefði tryggt sér fjórð-
ungshlut í flugfélaginu og hefði ákveðið
að setja stefnuna á óvinveitta yfirtöku á
félaginu þrátt fyrir andstöðu meirihluta
hluthafa í félaginu.
„Við teljum að tilboð
Nasdaq endurspegli fram-
úrskarandi vöxt og fram-
tíðarhorfur markaðarins.“
Carla Furse, forstjóri LSE, þegar hún felldi rúmlega 380
milljarða króna yfirtökutilboð frá stjórn bandaríska hluta-
bréfamarkaðarins Nasdaq í nóvember.
Michael O‘Leary, forstjóra Ryanair, varð
lítið ágengt í tilraunum sínum til að kaupa
flugfélagið Aer Lingus en einungis eitt pró-
sent hluthafa var fylgjandi yfirtökutilboði
á fundi þeirra snemma í mánuðinum. Hann
sagðist engu að síður fullviss um að tilboðið
hlyti náð fyrir augum hluthafa enda væri
það nokkuð yfir útboðsgengi félagsins í
október. Hann vildi hins vegar ekkert segja
til um hvort tilboðið yrði hækkað til að
blíðka hluthafana.
Og fleiri fréttir bárust frá fyrirtækjum
í háloftunum því lögregla gerði rannsókn
á skrifstofum EADS, móðurfélags Airbus,
í París í Frakklandi um miðjan jólamánuð-
inn. Rannsóknin var gerð að tilstuðlan evr-
ópskra samkeppnisyfirvalda til að kanna
hvort helstu stjórnendur og hluthafar fyr-
irtækisins hafi gerst sekir um innherjasvik
í hlutabréfaviðskiptum og komið bréfum
í verð áður en gengi í EADS féll um mitt
ár. Talið var að allt að 800 manns tengdust
málinu. Þetta voru ekki einu fréttirnar
af fallvöltu gengi EADS því flugfélagið
Emirates í Dubai, sem hafði pantað 43 risa-
þotur, lagði fram kröfu um skaðabætur á
hendur flugvélasamstæðunni vegna tafa á
afhendingu þotnanna á jóladag.
Undir lok mánaðar stefndi um stund-
arsakir í óefni í Taílandi eftir að taílenski
seðlabankinn greindi frá áformum sínum
um að setja á gjaldeyrishömlur til að
sporna gegn háu gengi bahtsins, gjaldeyr-
is Taílendinga, en hann hefur verið með
sterkustu gjaldmiðlum Asíu.
Sömu sögu var að segja af Robert
Greifeld, forstjóra bandaríska hluta-
bréfamarkaðarins Nasdaq, sem tilkynnti
með formlegum hætti að markaðurinn
væri farinn í óvinveitta yfirtöku á LSE.
Markaðurinn hefur hins vegar enn sem
komið er ekki náð meira en fjórðungshlut í
LSE og mun framtíðin ein skera úr um hver
niðurstaðan verður.
Undir lok árs bættist enn í fréttir af bar-
áttu Bandaríkjamanna og Breta því sam-
gönguyfirvöld vestanhafs ákváðu að veita
lággjaldaflugfélaginu Virgin America ekki
flugrekstrarleyfi í landinu. Ástæðan var sú,
að flugfélagið var að mestum hluta í eigu
bresku samstæðunnar Virgin Group og
auðkýfingsins Richard Bransons. Reglur
um eignarhald á flugfélögum kveða hins
vegar á um að erlendir aðilar megi ekki
eiga meira en fjórðung í fyrirtækjum sem
þessum. Þetta þóttu talsverð vonbrigði
fyrir Branson enda hafði undirbúningur
fyrir rekstur flugfélagsins, sem átti að
hefja rekstur snemma á þessu ári, staðið
yfir síðastliðin tvö ár. Óvíst hvort af verður
en forsvarsmenn Virgin America munu
svara samgönguyfirvöldum vestra á næstu
dögum.
lagi var Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq, nú með ívið
meira vægi í hluthafahópnum en áður og gat þrýst á um
samruna markaðanna. Í öðru lagi komu kaupin í veg fyrir
að John Thain, sem stýrir bandarísku kauphöllinni í New
York (NYSE), gæti borið víurnar í bréf hluthafa með það
fyrir augum að koma mörkuðunum saman í eina sæng líkt
og til stóð framan af.
EVRÓPA SAMEINAST BANDARÍKJUNUM
John Thain brást við kaupum Nasdaq með því að bjóða
jafnvirði rúmra 724 milljarða íslenskra króna í samevr-
ópska hlutabréfamarkaðinn Euronext, sem rekur kaup-
hallir í Amsterdam í Hollandi, Brussel í Belgíu, í París í
Frakklandi og í Lissabon í Portúgal, í maí. Tilboðið var
samþykkt í byrjun júní og ganga markaðirnir í eina sæng
á næstunni. Með samrunanum verður til fyrsta kauphöllin
með starfsemi beggja vegna Atlantsála með markaðsvirði
upp á jafnvirði 1.448 milljarða íslenskra króna.
Með tilboðinu skákaði Thain stjórnendum þýsku kaup-
hallarinnar í Frankfurt sem gerði ítrekaðar tilraunir til að
sameinast Euronext á síðasta ári. Kauphöllin hafði lengi
horft til þess að renna saman við aðrar kauphallir, meðal
annars LSE, allt frá 2001 en hóf viðræður við stjórnendur
Euronext í mars. Formlegt tilboð var lagt fram undir lok
maí. Karpið stóð um væntanlegar höfuðstöðvar samein-
aðra markaða sem stjórnendur þýsku kauphallarinnar
kröfðust að yrði í Frankfurt. Á það sættist Jean-Francois
Theodore, forstjóri Euronext, ekki og hafnaði tilboðinu.
Þrátt fyrir að flestir hlutaðeigendur Euronext hafi
samþykkt samruna við NYSE hefur stjórn þýsku kaup-
hallarinnar síður en svo lagt árar í bát því ítalska kaup-
höllin gekk til liðs við hana um sameiginlegt yfirtökutil-
boð í Euronext í október. Nýtt tilboð hefur enn sem komið
er ekki verið lagt fram í samevrópska markaðinn en Jean-
Claude Trichet, seðlabankastjóri evrópska seðlabankans,
er sagt hugnast betur að sjá samruna kauphalla og hluta-
bréfamarkaða í álfunni fremur en að evrópskir markaðir
renni saman við bandarískar kauphallir.