Fréttablaðið - 03.01.2007, Blaðsíða 63
Britney Spears var sögð
hafa fallið í yfirlið á nýárs-
samkomu sökum of mikillar
drykkju en hún var borin út
af skemmtistað í Las Vegas
að sögn sjónarvotta.
Atvikið átti sér stað á nætur-
klúbbnum Pure sem staðsettur er
í Ceasar‘s Palace í Las Vegas en
Spears hafði verið fengin til að
vera gestgjafi í boðinu og ætlaði
að stíga léttan dans fyrir gesti og
gangandi. Spears og föruneyti
hennar, sem taldi í kringum 27
manns, hófu daginn reyndar
snemma og byrjuðu á veitinga-
stað nálægt næturklúbbnum þar
sem hersingin lagði svokallað
VIP-herbergi undir sig og drakk
ótæpilegt magn af kampavíni.
Spears mætti síðan í teitið rétt
fyrir miðnætti, sýndi sínar bestu
hliðar þegar lagið I‘m a Slave for
You hljómaði og fagnaði nýju ári
með því að opna fokdýra kampa-
vínsflösku sem væntanlega hefur
verið kláruð á mettíma en síðan
fór að síga á ógæfuhliðina. Breska
götublaðið The Sun hefur eftir
einum sjónarvotta að Spears hafi
dansað nokkuð mikið en rétt fyrir
klukkan eitt vildi hún fara heim.
„Spears reyndi að standa upp en
féll í yfirlið,“ sagði eitt vitna við
blaðið en vinir söngkonunnar
færðu hana á öruggan stað þar
sem lífverðir Britney tóku við
henni. „Þeir báðu um aðstoð og
ég heyrði eina vinkonuna biðja
um teppi þannig að ekki væri
hægt að taka ljósmyndir af
henni,“ bætti annar sjónarvottur
við. „Við sáum Britney Spears
síðan borna út,“ lýstu vitnin tvö
yfir.
Umboðsmaður Britney Spears,
Larry Rudolph, bar hins vegar
allar sögusagnir um að söngkon-
an hefði verið ofurölvi til baka og
sagði að hún hefði einfaldlega
ferðast mikið að undanförnu og
væri líkamlega þreytt. „Hún
hefur það fínt, hún var bara
þreytt og klukkan var auk þess
orðin margt,“ lýsti Rudolph yfir.