Fréttablaðið - 03.01.2007, Síða 53
Þinglok Alþingis nú fyrir jólin breyttust skyndilega í örvænt-
ingarfulla atlögu formanns Sam-
fylkingarinnar að Geir H. Haarde
forsætisráðherra. Með valdagráð-
ugri reiði réðst flokksstýran að
honum með afar ósanngjörnum
áróðursorðum vegna viðkvæm-
ustu borgara þessa lands: Fátækra
barna.
Ruslbíómyndir, sorpsjónvarps-
efni og drasldagblöð eiga sameig-
inlegt með sumum stjórnmála-
mönnum að beita jafnvel
uppdiktuðu lýðskrumi til að rugla
rökvísi fólks. Og þekkt er sú
aðferð lýðskrumara í stjórnmál-
um að kýla undir beltisstað, en
slík högg hafa lengi þótt bleyðu-
legust aðferða til að styrkja stöðu
sína í kappleik og kappræðu.
Formaður Samfylkingarinnar veit
betur en áhorfendurnir sem hún
reyndi að blekkja gegn betri vit-
und. Hún veit að þegar Geir H.
Haarde tók við formennsku Sjálf-
stæðisflokksins og embætti for-
sætisráðherra urðu straumhvörf í
málefnum fátæks fólks á Íslandi
– en hún þegir um það.
Allir vita að sá uppsafnaði
vandi sem fátækt er á Íslandi er á
ábyrgð forvera núverandi forsæt-
isráðherra. Í tíð forverans átti
helzt að láta sem fátækt fólk væri
ekki til. Viðhorfsbreytingin síðan
þá er umbylting. Tabú breyttist í
hnitmiðaðar aðgerðir sem nú
standa yfir.
Með einlægum ásetningi og
fullum heilindum varð formaður
Sjálfstæðisflokksins og sam-
starfsfólk við réttmætri ábend-
ingu Samfylkingarinnar um opin-
bera rannsókn á aðstæðum þeirra
sem búa við kröppust kjör hér á
landi. Forsætisráðherra stóð svo
sjálfur að gerð skýrslu um ástand-
ið. Hann vildi rannsaka kjör
fátæks fólks til að geta betur bætt
þau. Með sérstökum fókus á fátæk
börn, eldri borgara, einstæðra
foreldra og öryrkja. Svo kemur
formaður Samfylkingarinnar í
aðdraganda jóla og ræðst á hann
mitt í þessu verkefni. Er til
ósmekklegri pólitík?
Fyrir formanni Samfylkingar-
innar vakti fyrst og fremst að
koma höggi á þann sem hún veit
að í góðum ásetningi vill
bæta samfélagið og auka
mannúð þess. Svo áköf
var hún í árásum sínum
að orðin fátæk börn urðu
sem merkingarlaus í
munni hennar. Urðu eins
konar söluvara. Það er
óhugnanlegt að verða
vitni að því að orðin
fátæk börn breytist í
söluvöru í munni
vonstola stjórnmála-
manna. Að fátæk börn
séu notuð sem beita í
atkvæðaveiðum. Og það er nýmæli
að valdagráðugt fólk noti fátæk
börn sem skiptimynt í rökþrota
umræðu í harki stjórnmálanna
með þessum hætti. Gegn betri vit-
und. Það er vont vega-
nesti inn í framtíðina. Og
afleit framkoma gagn-
vart vönduðum stjórn-
málamönnum eins og
Geir H. Haarde forsæt-
isráðherra sem hefur
sýnt sanngirni og sam-
starfsvilja í þessu alvar-
lega máli og vilja til öfl-
ugra aðgerða. Enda kom
hann strax af stað víð-
tæku átaki til að bæta
ástandið. Ríkið gerir nú
sitt. Borgin líka. En
flokksstýran þegir um það.
Sjálfstæðisflokkurinn er flokk-
ur frelsis, mannúðar – og mann-
helgi. Með áherzlu á virðingu
fyrir einstaklingnum og þeim
hæfileikum og krafti sem í honum
býr og stækka manninn. Kristi-
legt siðgæði er þar grunnþema
eins og í menningu okkar allri. Í
því felzt svo sá ásetningur að
vinna á öllum þjóðfélagsmeinum
sem minnka manninn. Og er eilífð-
arverkefni. Róm var heldur ekki
byggð á einum degi. Að taka á
flóknum vanda tekur tíma. Ásetn-
ingur Sjálfstæðisflokks dagsins í
dag er samt skýr og klár í þessu
efni.
Formaður Samfylkingarinnar
veit fullvel að vatnaskil hafa orðið
í Sjálfstæðisflokknum sem hefur
endurnýjast margvíslega og
gæfulega. Ekki sízt í málefnum
þeirra sem minnst mega sín. Með
sígildu slagorðin stétt með stétt
og frelsi og mannúð að leiðarljósi.
En flokksstýrunni er sama. Rúin
trausti sér hún það sem hún vill
sjá. Fíkn í völdin byrgir henni sýn
og brenglar því miður málstað
hennar.
Vopnin snúast í höndum lýð-
skrumara. Og valdagræðgi er
ekki gæfuríkur hvati í stjórnmál-
um frekar en önnur ágirnd. Blind
peningagræðgi og valdagræðgi
eru af sama meiði og tæra sálina.
Þá er stutt í örvæntingu, dramb
og heift sem eru verztu óvinir
heilbrigðra stjórnmála. Það er
áminning til formanns Samfylk-
ingarinnar.
Höfundur er kvikmyndagerðar-
maður.
Fátæk börn peð í valdagráðugu tafli