Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 60
Menningar- og ferðamálaráð
Reykjavíkurborgar samþykkti
afgreiðslu styrkja fyrir árið 2007
og starfssamninga fyrir árin 2007-
2009 á fundi ráðsins þann 14.
desember. Þar tekur nýr meiri-
hluti í borgarstjórn þráðinn frá
fyrri meirihluta: gerðir eru starfs-
samningar til lengri tíma við ein-
staka aðila en smærri fjárhæðir
fara til þeirra sem eru með stop-
ulli starfsemi.
51 styrkur var veittur til verk-
efna og listastarfsemi 2007, sam-
tals að upphæð 20.100.000 kr. Sam-
þykkt var að gera starfssamninga
til þriggja ára við 33 listhópa, sam-
tals að upphæð 41.900.000 kr.
Tríó Reykjavíkur var valið Tón-
listarhópur Reykjavíkur 2007 og
hljóta þess vegna 1.000.000 kr. til
viðbótar við þann starfssamning
sem tríóið er með við skattborg-
ara í Reykjavík. Tríóið skipa
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleik-
ari, Gunnar Kvaran sellóleikari og
Peter Maté píanóleikari en þau
hafa um langt árabil einbeitt sér
að tónleikahaldi í Hafnarfirði.
Samstarfssamningar til allt að
þriggja ára eru veittir listahóp-
um eða menningarstofnunum
sem „sannað hafa gildi sitt í reyk-
vísku menningarlífi, hafa náð
afbragðs árangri og geta með
rökstuddum umsóknum sýnt
fram á framkvæmdagetu og fjár-
mögnunarleiðir til að reka þá
listastarfsemi sem óskað er eftir
samstarfi um,“ eins og segir í
fréttatilkynningu frá Reykjavík-
urborg. Um fjölgun á starfssamn-
ingum er að ræða.
Hæsta styrkinn hlýtur Nýlista-
safnið sem rekur safn sitt og sýn-
ingaraðstöðu á Laugaveginum.
Það fær 5 milljónir árlega sam-
kvæmt samstarfssamningi. Nýló
hefur staðið fyrir kraftmiklu
starfi eftir að það flutti á Lauga-
veg fyrir ofan Skífuna. Þar var
nýlega sýning á öllum verkum í
eigu safnsins sem er einstök.
Nýlistasafnið er sjálfseignar-
stofnun og lýtur yfirráðum mynd-
listarmanna.
Artbox ehf., sem stendur fyrir
rekstri leikhópsins Vesturports,
fær 3,5 milljónir árlega næstu
árin en það hefur staðið fyrir sýn-
ingum erlendis og í kjölfarið hér
heima. Það stendur nú í samstarfi
við LR í Borgarleikhúsi um svið-
setningu á nýjum íslenskum söng-
leik sem gerist á elliheimili. Ekki
er á þessu stigi ljóst hvort Artbox
fær áfram styrk frá leiklistarráði
sem veitir brátt sína styrki.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
fær árlegan styrk sem nemur 3,3
milljónum. Það hýsir velflest verk
Sigurjóns Ólafssonar og hefur
byggt sér myndarlegt safn í
tengslum við heimili listamanns-
ins á Laugarnesi í Reykjavík.
Möguleikhúsið er líka einka-
rekið fyrirtæki og stendur fyrir
leiksýningum fyrir börn í húsnæði
við Hlemm og ferðast að auki um
skóla landsins með sýningar fyrir
krakka. Pétur Eggerz og hans
menn fá 3 milljónir á ári og eru
með samstarfssamning til næstu
ára.
Kammersveit Reykjavíkur er að
hefja sitt 25. starfsár í borginni.
Sveitin hefur staðið fyrir myndar-
legu tónleikahaldi um langt skeið
– að jafnaði nokkrum tónleikum á
ári og hefur að auki ferðast víða
um til tónleikahalds. Hún fær 2,5
milljónir og er með starfssamn-
ing.
Þegar hér er komið á list-
anum fer aðilum að fjölga:
Tónlistarhópurinn Caput,
Jazzhátíð Reykjavíkur, Nýsköp-
unarsjóður tónlistar –Musica
Nova fá 2 milljónir hver:
Alþjóðleg kvikmyndahátíð
í Reykjavík fær 1,75
milljónir, Kirkjulistahátíð í Hall-
grímskirkju og Stórsveit Reykja-
víkur fá 1,5 milljónir. Tólfhundruð
þúsund renna til Gallerí i8 sem er
eina einkarekna galleríið sem fær
styrk, Schola Cantorum í Hall-
grímskirkju og tónlistarhátíð
nútímatónlistar – Myrkir músik-
dagar.
Íslensk tónlistarmiðstöð sem
rekur nótnasafn og nótnadreif-
ingu fyrir íslensk tónskáld fær
milljón; líka Nútímadanshátíð í
Reykjavík, danshópurinn Pars Pro
Toto og Stoppleikhópurinn sem
einkum leikur fyrir unglinga í
skólum landsins.
Hagsmunafélag kvikmynda-
gerðarmanna, FK, fær hálfa millj-
ón, sýningarsalur samtaka mynd-
listarmanna – Íslensk Grafík
annað eins, rétt eins og lúðra-
sveitir: Lúðrasveit Reykjavíkur,
Verkalýðsins og Svanur – 400.000
krónur. Kammermúsíkklúbburinn
hefur staðið fyrir tónleikahaldi
hér í borg í fjóra áratugi og er
styrktur um 400 þúsund af
almannafé, áhugamannaleikfélag-
ið Hugleikur, Listvinafélag Hall-
grímskirkju, Miðstöð munnlegrar
sögu, Mozarthópurinn og Voces
Thules líka.
Aðgreindur er sá hluti styrkja sem
einungis er til verkefna á þessu
ári: Ung Nordisk Musik hlaut eina
milljón króna til að halda UNM
hátíð í Reykjavík í sept-
ember á þessu ári.
Leikhópurinn
Vatnadans-
meyjafélagið
Hrafnhildur
hlaut 800 þús.
kr. styrk til að
setja upp fjölleik-
sýninguna Drauga-
skipið og Guðrún
Ásmunds-
dóttir leik-
kona
sömu
upphæð
til upp-
setning-
ar einleiks á 50 ára leikafmæli
hennar í Iðnó, þar sem sögu húss-
ins eru gerð skil.
Smærri styrkir renna til
margra misleitra verkefna: 700
þús. kr. styrk hlutu Blúshátíð í
Reykjavík, Kvikmyndafélag
Íslands vegna stuttmyndadaga og
leiklistarhátíðin Lókal. 600 þús. kr.
styrk hlaut Ergis kvikmyndafram-
leiðsla vegna heimildarmyndar
um Jórunni Viðar tónskáld (önnur
af tveim kvikmyndum sem borgin
styrkir beint) og Myndhöggvara-
félagið í Reykjavík vegna Mynd-
listar fyrir alla.
500 þús. kr. styrk hlutu sviðslista-
hópurinn CommonNonsense, leik-
hópurinn Draumasmiðjan, Hið
íslenska bókmenntafélag, Kór
Áskirkju, Kynningarmiðstöð
íslenskrar myndlistar, Leikminja-
safn Íslands, Lífsmynd – heimild-
armynd um Jónas Hallgrímsson,
Lýðveldisleikhúsið, Jazzklúbbur-
inn Múlinn, myndlistarhátíðin
Sequences, Sögusvuntan, leikhóp-
urinn Thalamus og Örn Magnús-
son píanóleikari.
400 þús. kr. styrk hlutu
Blásarakvintett Reykjavíkur,
Camerarctica, Davíð Stefánsson
ljóðskáld, Halaleikhópurinn,
Kammerkórinn Carmina, Kling &
Bang gallerí, Minerva Iglesias Car-
cia dansari, skáldahópurinn Nýhil,
tónlistarhópurinn Rinascente, Sin-
fóníuhljómsveit áhugamanna, Sin-
fóníuhljómsveit unga fólksins og
Söngsveitin Fílharmónía.
300 þús. kr. styrk hlutu Blásara-
sveit Reykjavíkur, Gunnar Kvar-
an, List án landamæra, Matarsetrið
Matur-saga-menning og tónleika-
röðin Nordic Affect. 250 þús. kr.
styrk hlaut myndlistarverkefnið
InfoPHR-Alien Structures in
Urban Landscape og 200 þús. kr.
styrk hlutu 15:15 tónleikahópur-
inn, Eiríkur Orri Ólafsson
tónlistarmaður, Félag íslenskra
tónlistarmanna, Foreldrafélag
Drengjakórs Reykjavíkur, IBBY á
Íslandi og Rúrí myndlistarmaður.
150 þús. kr. styrk hlaut Lúðrasveit
verkalýðsins og 100 þús. kr. styrk
hlutu Benedikt S. Lafleur skáld og
myndlistarmaður, Kórskóli Lang-
holtskirkju v. drengjakórs, Leikfé-
lag eldri borgara Snúður og
Snælda, Kórstarf eldri borgara í
Gerðubergi og Samband ungra
sviðslistamanna.
Í lægstu upphæðunum eru skil
milli starfsemi áhugamanna og
atvinnumanna orðin afar óljós.
Raunar ber allur listinn með sér
að fjárveitingar úr sjóðum Reyk-
víkinga eru enn háðar duttlung-
um: því fær Blásarakvintett meira
en Blásarasveit? Þarf að styrkja
leiklistarhópa sérstaklega umfram
það sem kemur til þeirra frá leik-
listarráði? Er samráð við leiklist-
arráð? Því er listastarfsemi sem
hefur verið staðsett í Hafnarfirði
um árabil styrkt sérstaklega?
Lægri upphæðir eru varla nema
dropi í stórsjó í rekstri og því eru
flestir styrkþega upp á annað afla-
fé komnir.
Reykvíkingar styrkja listirnar
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur
Lau. 6/1 kl. 11:00 uppselt, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 11:00 örfá
sæti laus, kl. 12:15 og kl. 14:00, lau. 13/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 örfá sæti laus,
sun. 14/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt.
Kúlan
Smíðaverkstæðið kl. 20:00
PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker.
Lau. 6/1 nokkur sæti laus, fös. 12/1 kl. 16:30 nokkur sæti laus, lau. 13/1 örfá sæti laus,
lau. 20/1. Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis.
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is.
STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter
Lau. 6/1 nokkur sæti laus, lau. 13/1 nokkur sæti laus, lau. 20/1, lau. 27/1.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Lau. 6/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá sæti laus og kl. 20:00 örfá sæti
laus, lau. 13/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus, lau. 20/1
kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 21/1 kl. 14:00 nokkur sæti laus.
BAKKYNJUR eftir Evrípídes
4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. fim. 11/1 örfá sæti
laus, 7. sýn. fös. 12/1 nokkur sæti laus, 8. sýn. fim. 18/1.
Stóra sviðið kl. 20:00
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI