Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 65

Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 65
Hinn virti rokkari Tom Petty ætlar alls ekki að setjast í helgan stein, þrátt fyrir að fréttir þess efnis hafi víða birst á síðasta ári. Tímaritið Rolling Stone fullyrti til að mynda í júlí að Petty ætlaði að gefa rokkið upp á bátinn, en hann þvertekur fyrir það. Petty segir að árið 2006 hafi verið eitt besta ár hans á ferlin- um til þessa og hann búist við að velgengnin haldi áfram í ár. „Maður veit aldrei hvernig hlut- irnir atvikast, ég átti allavega ekki von á því að þetta ár yrði svo gott,“ sagði Petty í viðtali við LA Times. „Það er aldrei að vita nema þetta ár verði betra.“ Petty og hljómsveit hans, The Heartbreakers, hlutu nýlega tvær tilnefningar til Grammy-verð- launanna fyrir eftirminnilega plötu sína sem kom út í fyrra, Highway Companion. 30 ára afmælistónleikaferð þeirra sló í gegn og uppselt var á alla tónleik- ana. Þegar þeir héldu tónleika í heimabænum, Gainesville, var Petty afhentur lykill að borginni. Á þessu ári er svo von á heim- ildarmynd um Tom Petty og The Heartbreakers. Leikstjóri mynd- arinnar er Peter Bogdanovich. Petty ekki á leiðinni að hætta Tónlistarmaðurinn Hall- varður Ásgeirsson, eða Varði eins og hann er kallaður, hefur gefið út sína fyrstu plötu sem nefnist Lífsblómið. Á plötunni blandar Varði saman sígildri tónlist og svokölluðu „doom metali“ eða myrkrametali. Varði gerði nýverið samning við breska plötufyrirtækið Paradigms Recordings sem hann komst í kynni við í gegnum heimasíðuna MySpace og hefur platan fengið góðar viðtökur. Platan var meðal annars valin ein af fimmtán bestu plötum ársins af veftímaritinu dustedmagazine. com. Þar segir að hún sé ekki eins mikið eftir bókinni og búast mætti við: „Lífsblómið er heillandi safn nútímalegrar, minimalískrar tón- listar. Sterkum áhrifum er bland- að saman við framúrstefnulegar lagasmíðar á meðan einnig er leit- að aftur til Vínarskólans.“ Varði vakti á sínum tíma athygli fyrir heimildarmyndina Varði Goes Europe í leikstjórn Gríms Hákonarsonar þar sem hann ferð- aðist sem götuspilari um Evrópu og spilaði á rafmagnsgítar sinn fyrir pening. Hann segist hafa ákveðið að taka sér frí frá öllu slíku um óákveðinn tíma. „Þetta var skemmtilegt verkefni en ég tók þetta ekki það alvarlega,“ segir hann og kímir. „Það var góð reynsla að spila á götunni og að vinna í öðrum geirum. Ég held að það sé eitthvað sem allir þurfa að prófa.“ Varði, sem hefur spilað með Stór- sveit Nix Noltes og stendur jafn- framt á bak við plötufyrirtækið Andrými, útskrifaðist síðasta sumar úr Listaháskóla Íslands þar sem hann lagði stund á tónsmíðar. Hann segir að lögin á nýju plöt- unni hafi komið af sjálfu sér. „Ég kunni á rafmagnsgítar áður en ég fór í skólann. Ég fór í tónsmíðar í gegnum raftónlist. Þetta er svona blanda af þyngra rokki og ambíent pælingum,“ segir hann. Varði er um þessar mundir að kenna á gítar í Keflavík og stefnir að því að fara til New York í haust til að læra meira í kennslufræði. Útgáfutónleikar vegna plötunnar, sem fæst í 12 Tónum og Hljóma- lind, eru fyrirhugaðir síðar í þess- um mánuði. Söngvarinn George Michael á að mæta fyrir dómara hinn 11. janúar fyrir umferðarlagabrot. Söngvar- inn var handtekinn í október eftir að hann leið ofurölvi út af í bifreið sinni og hindraði umferð á gatna- mótum í London. Honum var sleppt úr haldi gegn tryggingu. Lögreglan hafði áður veitt söngvaranum viðvörun fyrir að hafa kannabisefni í fórum sínum fyrir tæpu ári. Í apríl síð- astliðnum ók hann á þrjá kyrr- stæða bíla á bílastæði. Á að mæta í réttarsal Góða skemmtun Þeir sem greiða með VISA kreditkorti fá tvo miða á verði eins í SAMbíóin og Háskólabíó á miðvikudögum í janúar Munið VISA tilboðið á miðvikudögum í janúar GILDIR EKKI MEÐ ÖÐRUM TILBOÐUM, EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG EKKI Í VIP Kynnið ykkur myndir sýningar tíma og fleira á SAMbio.is * * theHoliday Framleidd af Steven Spielberg DENZEL WASHINGTON VAL KILMER KVIKMYNDIR.IS Háskólabíó ekki missa af mest slÁandi og einni Áhrifamestu kvikmynd Ársins. ÞAÐ ER HÆTTULEGT AÐ LEITA SANNLEIKANS - ÞÚ GÆTIR FUNDIÐ HANN... SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Mynd eftir Óskarsverðlaunahafann Clint Eastwood. Sannkallað meistaraverk sem kvik- myndað var að mestum hluta á Íslandi. SV. MBLÞ.J. -FBL LIB TOPP5.IS / KRINGLUNNI / KEFLAVÍK FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 5:30 Leyfð HAPPY FEET M/-Ensk tal. kl. 8 Leyfð ERAGON kl. 5:30 B.i. 12 DÉJÁVU kl. 10:15 B.i. 12 STRANGER THAN FICTION kl. 6 - 8 - 10 Leyfð FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 6 Leyfð HANDHAFAR SVARTA KORTSISNS FÁ 20% AFSLÁTT AF ALMENNU MIÐAVERÐI EF GREITT ER MEÐ KORTINU GILDIR EKKI MEÐ ÖÐRUM TILBOÐUM Í VIP SAL EÐA Á ÍSLENSKAR MYNDIRGILDIR EKKI MEÐ ÖÐRUM TILBOÐUM Í VIP SAL EÐA Á ÍSLENSKAR MYNDIR STRANGER THAN FICTION kl. 6 - 8:20 - 10:40 Leyfð CHILDREN OF MEN kl. 8:10 - 10:30 FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl. 1:20 - 3:40 - 5:50 HAPPY FEET M/-Ensk tal kl. 3:40 - 5:50 SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal kl. 1:40 - 3:50 DÉJÁ VU kl. 10:40 THE HOLIDAY kl. 8 B.i. 7 BÆJARHLAÐIÐM/- Ísl tal kl. 2 Leyfð STRANGER THAN FICTION kl. 5:40 - 8 - 10:20 Leyfð STRANGER THAN FIC... VIP kl. 8 - 10:20 FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5 - 8 - 10:50 B.i.16 THE CHILDREN OF MEN kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.16 FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal kl.1 - 2:10 - 3:20 - 5:40 Leyfð FRÁIR FÆTUR VIP kl. 1 - 3:20 - 5:40 HAPPY FEET M/-Ensk tal kl. 5:40 - 8 - 10:20 Leyfð DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.i.12 DOA kl. 4 B.i.12 SKOLAÐ Í BURTU M/- Ísl tal kl. 1 - 3 Leyfð SANTA CLAUSE 3 kl. 1:20 - 3:30 Leyfð BÆJARHLAÐIÐ M/- Ísl tal kl. 2 Leyfð / ÁLFABAKKA / AKUREYRI GOLDEN GLOBE TILNEFNING BESTI LEIKARI : WILL FERRELL HANDHAFAR SVARTA KORTSISNS FÁ 20% AFSLÁTT AF ALMENNU MIÐAVERÐI EF GREITT ER MEÐ KORTINU KÖLD SLÓÐ kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 THE CHILDREN OF MEN kl. 3:30 - 6 - 8:20 - 10:40 B.i.16 FLAGS OF OUR FATHERS kl. 6 - 9 B.i. 16 FRÁIR FÆTUR M/- Ísl tal. kl. 3:30 - 5:40 Leyfð DÉJÁ VU kl. 10:30 B.i. 12 BOSS OF IT ALL kl. 8 B.i.7 SKOLAÐ Í BU .. Ísl tal. kl. 3:30 - 5:40 Leyfð FRÁBÆRLEGA FYNDIN OG SNIÐUG GAMANMYND... ...SEM KEMUR ÖLLUM Í GOTT SKAP Á NÝJU ÁRI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.