Fréttablaðið - 03.01.2007, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 03.01.2007, Qupperneq 70
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Auglýsing Kaupþings með breska stórleikaranum John Cleese vakti mikla athygli á gamlárskvöld enda frumsýnd á eftir- sóttasta tímanum í íslensku sjónvarpi, var síðasta auglýsingin fyrir Áramótaskaup Ríkissjón- varpsins. Eitthvað hafa menn verið að velta því fyrir sér hvað kosti að fá leikara í þessum gæða- flokki til að leika í auglýsingu og skrifar almannatengillinn Ómar R. Valdimarsson á bloggsíðu sinni að hún hafi ekki kostað undir áttatíu milljónum íslenskra króna. „Mikið, mikið minna,“ segir Jón Sæmunds- son, framkvæmdastjóri EnnEmm auglýsinga- stofunnar, sem á mesta heiðurinn af auglýsing- unni. „Upphæðin er mjög langt frá áttatíu milljónum og þetta er alls ekki dýrasta auglýs- ingin sem gerð hefur verið á Íslandi,“ útskýrir Jón sem sagðist vita um að minnsta kosti eina dýrari auglýsingu. Hann vildi ekki gefa upp hversu mikið breska stórstjarnan hefði fengið borgað fyrir þessar þrjár leiknu auglýsingar auk blaðaauglýsingar sem birtast á næstu dögum því slíkt væri trúnaðarmál. „Það liggja ekki fyrir endanlegar tölur en þetta voru ágæt- is dagslaun og Cleese horfði á þann höfðafjölda sem sæi auglýsinguna,“ segir Jón en ólíkt því sem margir hafa haldið þá eru þessar auglýs- ingar eingöngu hugsaðar fyrir íslenskan mark- að. Til gamans má geta að Orku- veituauglýsingin, sem fékk á baukinn í lok Skaupsins, kostaði 15 til 18 milljónir og telst með dýrustu auglýsingum sem gerð- ar hafa verið fyrir íslenskt fyr- irtæki. Cleese ódýrari en Orkuveituauglýsingin „Það er kominn fiðringur,“ segir Logi Bergmann Eiðsson, stjórn- andi spurningaþáttarins Meistar- ans, en þátturinn fer í loftið í lok janúar. Á laugardaginn geta Íslendingar þreytt inntökuprófið fyrir þáttinn á fjór- um stöðum á landinu; í Reykjavík og á Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum. Allir þátttakendur fá sömu fimmtíu spurningarnar og segir Logi að í framhaldinu af útkomu þess ráðist hversu margir þekktir „spurningakeppna-nirðir“ verði fengnir í þáttinn til að berj- ast um Meistara-tignina. Í fyrra tóku þau Ólína Þorvarð- ardóttir, Stefán Pálsson og Mörð- ur Árnason þátt auk Illuga Jökuls- sonar sem komst alla leið í undanúrslit en var þá sleginn út af núverandi Meistara, Jónasi Erni Helgasyni. Logi vildi hins vegar ekki gefa upp hverjir þeir frægu yrðu í þetta skiptið, það væri ekki komið á hreint. „Ég er með nokkra í huga,“ viður- kenndi hann. Logi segir að mikið hafi verið haft samband við sig og hann meðal annars spurður hve- nær prófin færu fram enda vildu menn ekki missa af þessu ein- staka tæki- færi. Þá sagði hann að borðspilið sem byggt er á þættinum hefði jafnframt kynt undir áhuganum. Að sögn Loga verða hins vegar ekki neinar stór- vægilegar breytingar á þættinum sjálfum og vinn- ingsupphæðin verður að öllum líkind- um fimm milljónir íslenskra króna. Logi leitar að nýjum Meistaraefnum „Þetta er alveg óþolandi. Ég er búinn að fá nóg af þessum upp- sagnarbréfum. Ég get svo svarið það. Þriðja skiptið á einu ári,“ segir Andri Freyr Viðarsson útvarpsmaður en hann hefur verið annar umsjónarmaður Capone útvarpsþáttarins á X-FM sem vakið hefur nokkra athygli á und- anförnum árum og mánuðum. Öllum starfsmönnum á X-FM og KissFm var sagt upp störfum á gamlársdag. Nú er bara leikin þar tónlist og engin dagskrárgerð í gangi. Andri segir uppgefna ástæðu fyrir lokun stöðvanna þá að Stef hafi svipt stöðvarnar útvarpsleyfi vegna skuldar. „En ég kaupi það nú ekki. Þetta er eitthvað plott. Það verður fundur á morgun [í dag] og þá kemur þetta betur í ljós. En, já, við erum með uppsagnarfrest. „Hangin’around“ heima hjá mér. Ég kann ofsalega vel við það. Nú er bara að slaka á. Nema eitthvað annað gerist. Nema Valli sport opni aftur stöð! Það er aldrei að vita.” Yfirmaður útvarpssviðs Íslenska útvarpsfélagsins, sem rekur stöðvarnar tvær, er Kristján Jónsson, betur þekktur sem Kiddi Bigfoot: „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um framtíð útvarpsstöðvanna. Hún verður tekin á næstu dögum.“ Hann segir það rangt að Stef hafi svipt stöðv- arnar útvarpsleyfi vegna skuldar. Hið rétta sé að Stef hafi ekki sam- þykkt nýtt útvarpsleyfi sem svo er lagt fyrir útvarpsréttarnefnd, en hið gamla rann út um áramót. „Við skuldum eitthvað, það er rétt, en við skuldum Stef ekki neitt,“ segir Kiddi sem fékk það hlutskipti að segja starfsfólki sínu upp. Honum var sjálfum sömuleiðis sagt upp störfum. Aðspurður segir Kiddi að rekstur útvarpsstöðvanna hafi gengið bærilega. Gamlar skuldir hafi fylgt stöðvunum en ágætlega hafi gengið að vinna þær upp. Eiríkur Tómasson, framkvæmda- stjóra Stefs, segir að stöðvarnar hafi verið í vanskilum við Stef. Af þeim sökum hafi samningi við þær verið rift. Skuldin hafi síðar verið gerð upp fram til áramóta. Vilji X- FM og KissFM fá endurnýjað útvarpsleyfi þurfi að ganga frá nýjum samn- ingi við Stef, meðal ann- ars með greiðslu trygginga. ...fær Reynir Lyngdal, sem ásamt samstarfsfólki sínu hristi hressilega upp í gamalgrónu skaupi og fóstraði eitt besta áramótaskaup margra ára. – Vel lesið Áhugasamir auglýsendur vinsamlegast hafið samband í síma 5505844 | orn.geirsson@365.is Einblöðungar - bæklingar - blöð - umslög vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni *Gallup maí 2006 Notaðu mest lesna* blað landsins til að dreifa kynningarefni til þinna viðskiptavina Vertu inní Fréttablaðinu með þitt kynningarefni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.