Fréttablaðið - 16.01.2007, Side 8
Hvað heitir forseti Palestínu-
stjórnar?
Hvað heitir forstjóri Actavis?
Hvað heitir fyrirliði íslenska
landsliðsins í handknattleik?
Frestur Geymis
ehf. til að skrá sig sem starfs-
mannaleigu hjá Vinnumálastofn-
un rann út um miðnætti í nótt.
Helgi Eiríksson, framkvæmda-
stjóri Geymis, segir að spurning-
um Vinnumálastofnunar hafi
verið svarað og umbeðnum
gögnum verði skilað inn í dag.
Vinnumálastofnun telur að
starfsemi Geymis flokkist undir
starfsemi starfsmannaleigu og
beri að skrá hana samkvæmt því.
Helgi segir að ekkert sé athuga-
vert við starfsemi fyrirtækisins
og telur að búið sé að leysa málið.
Geymir kom í fréttir árið
2005 þegar ASÍ taldi að tólf
Pólverjar fengju langtum lægri
laun en kveðið væri á um í kjara-
samningi.
Gögnunum
skilað inn í dag
„Veðrið er að mestu gengið
yfir en hann blés allhressilega á
sunnudaginn,“ segir Theodór Ingi
Ólafsson sem býr í Jönköping í
Svíþjóð. Mikill veðurofsi var í
Skandinavíu á sunnudaginn og lét-
ust fjórir í Svíþjóð vegna veður-
ofsans. Theodór Ingi, sem er úr
Eyjafirði en býr í Jönköping ásamt
unnustu sinni,
Friðriku Björk
Þorkelsdóttur,
segist oft hafa
upplifað verra
veður heima á
Íslandi. Þar sé
hins vegar minna
um tré sem valdi
geti miklum
skaða.
„Rúður á vinnustaðnum brotn-
uðu og tré fuku upp með rótum og
ég held að flestir sem létust hafi
orðið fyrir trjám auk þess sem
einn varð fyrir vélarhluta úr báti.
Þrátt fyrir að hafa upplifað verra
veður heima verð ég að viður-
kenna að mér stóð ekki á sama
þegar ég gekk í gegnum garð á
leið heim úr vinnunni.
Það var frekar óhugnanlegt að
ganga á milli þessara risatrjáa
sem sveigðust fram og til baka og
að heyra hvininn vitandi að í
nágrenninu hefðu menn kramist
undir þeim og mér stóð hreint ekki
á sama um líf mitt um tíma,“ segir
Theodór. Það er svo mikið af trjám
hérna og verður því afar hættu-
legt við svona aðstæður,“ segir
Theodór en bætir við að hann hafi
ekki heyrt að neinn Íslendingur
hafi orðið illa úti í storminum sem
hefur fengið nafnið Per.
Yfirvöld urðu að stöðva lestar-
samgöngur þar sem tré höfðu fall-
ið á lestarteina og mörg þúsund
manns eru án rafmagns í Svíþjóð.
„Þetta er víst versti stormurinn
síðan Gudrun gekk hér yfir fyrir
nokkrum árum. Rafmagnið fór af
hjá okkur en kom fljótt á aftur en
það eru margir enn sem eru án
rafmagns.“
Veðurofsinn fór ekki fram hjá
Dönum heldur, en í Danmörku
komst vindhraðinn upp í 38 metra
á sekúndu og loka varð brúnum
yfir Stórabelti og Eyrarsund á
sunnudaginn um tíma.
Óttaðist um líf sitt í óveðrinu
Theodór Ingi Ólafsson, Íslendingur búsettur í Svíþjóð, upplifði storminn Per. Hann segist oft hafa lent í
verra veðri á Íslandi, en mikið af stórum trjám í Svíþjóð geri fárviðri hættulegra þar en á Íslandi.
Hálfbróðir Saddams Huss-
ein og fyrrverandi yfirmaður leyni-
þjónustu Íraks, Barzan Ibrahim, og
fyrrverandi yfirdómari í Írak,
Awad Hamed al-Bandar voru tekn-
ir af lífi með hengingu fyrir dögun
í gær. Eftir aftökurnar greindi tals-
maður stjórnvalda frá því að höfuð
Ibrahims hefði losnað frá líkaman-
um við henginguna í því sem hann
kallaði „sjaldgæft slys“.
Rúmar tvær vikur eru síðan
Saddam Hussein var tekinn af lífi í
umdeildri aftöku sem hefur verið
gagnrýnd víða. Myndbandsupptök-
ur af aftökunni sýna hvernig við-
staddir hæddu Hussein þar sem
hann stóð með snöruna um hálsinn.
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í gær
að aftaka Saddams hefði átt að vera
framkvæmd með reisn og vonaði
hún að þeir sem hefðu séð um fram-
kvæmd hennar yrðu dregnir til
ábyrgðar. Hún minntist ekkert á
aftökur Ibrahims og al-Bandar.
Engar reglur voru brotnar við
framkvæmd aftökunnar í gær að
sögn talsmanns stjórnvalda, Ali al-
Dabbagh. „Enginn hrópaði slagorð
eða sagði neitt sem setti blett á
aftökuna. Hvorugur hinna ákærðu
var móðgaður.“
Ibrahim og al-Bandar voru ásamt
Saddam sakfelldir fyrir morð á 148
sjíamúslímum árið 1982.
Félagsmenn í Sjó-
mannafélagi Íslands greiða
atkvæði um úrsögn úr Alþýðu-
sambandinu í næstu viku.
Atkvæðagreiðslan hefst á
mánudag og lýkur á föstudag.
Úrsögn úr Sjómannasambandi
Íslands var samþykkt í atkvæða-
greiðslu Sjómannafélagsins í
síðustu viku. Voru 63 hlynntir
úrsögn en einn á móti. Kjósa þarf
sérstaklega um úrsögn úr ASÍ,
eins og kveðið er á um í lögum
sambandsins.
Kosið um ASÍ
úrsögn alla
næstu viku
Lögreglan í Kaup-
mannahöfn rýmdi í gær hús við
Dortheavej sem hústökufólk
hafði haft á valdi sínu. Aðgerðir
lögreglunnar gengu friðsamlega
fyrir sig. Danskir fjölmiðlar
greindu frá þessu í gær.
Alls voru 94 manns fluttir úr
húsinu og var reiknað með að þeir
yrðu allir látnir lausir fljótlega
eftir að lögreglan hafði yfirheyrt
þá.
Danska lögreglan reiknar þó
með fleiri hústökum á næstunni,
því venjan er sú að þegar húsin
eru rýmd flytur fólkið sig fljótlega
í önnur hús sem standa auð.
Hústökufólk
fjarlægt
Kínverskum manni,
Chen Bing, voru dæmdar bætur en
símanúmer hans var notað í
kínverskum spennuþætti. Það var
aðalillmenni þáttarins sem átti
númerið en í einum þáttanna las
hann númerið upp hægt
og skýrt fyrir einn af
samstarfsmönnum
sínum.
Chen fór að fá
skilaboð í júlí árið 2004
sem hann skildi ekki hót
í. Skilaboðin héldu áfram
að koma og í heildina
urðu þau um 3.000.
Framleiðendur þáttanna
sögðu símanúmerið byggt á
afmælisdegi eins af starfsmönnum
þáttarins en hörmuðu óþægindin.
Bæturnar voru um 18.000 kr.
Fékk 3.000
smáskilaboð