Fréttablaðið - 16.01.2007, Qupperneq 31
Íslendingasagna og að sögn Egg-
erts er hún einkar dramatísk og
vel skrifuð. Þar segir frá því
þegar Hrafnkell Freysgoði drep-
ur Einar Þorbjarnarson smala-
mann fyrir þá sök að ríða hestin-
um Freyfaxa í leyfisleysi. Í
kjölfarið stefnir Sámur Bjarna-
son Hrafnkatli fyrir vígið og
dregur það mál dilk á eftir sér.
Eggert áréttar að sýningin hafi
breyst töluvert á þessum tíma.
„Hún hefur þróast alveg heilmik-
ið og breyst til hins betra. Það
verður alltaf ákveðin þróun þegar
við leikum fyrir krakkana inni í
skólunum – sýningin breytist við
þetta návígi og mótast eftir því
hvernig salurinn er og viðtökurn-
ar.“
Stoppleikhúsið er eitt víð-
förlasta leikhús landsins en þar á
bæ er leitast við að fara að
minnsta kosti einn hring um land-
ið á hverju ári.
Um þessi misserin leikur hóp-
urinn fimm sýningar fyrir áhorf-
endur á leikskólum og í grunn- og
framhaldsskólum.
Eggert segir að fjölbreytnin
komi í veg fyrir að nokkur fái
leið á efninu þó að sýningarfjöld-
inn hlaupi nú á tugum.
„Það er mjög skemmtilegt að
hoppa svona milli sýninganna en
við höfum mjög gaman af og
erum stolt af starfinu, sér í lagi
með unglingunum en við reynum
að sýna nýtt leikrit fyrir þá á
hverju ári.
Ég veit ekki til þess að önnur
leikhús sinni þeim aldurshópi
jafnmarkvisst. Við verðum svo
bara að sjá til hversu lengi Hrafn-
kell endist.“
HVER ER SINNAR
KÆFU SMIÐUR
Góða skemmtun
NÝ TVÖFÖLD SAFNPLATA MEÐ ÖLLUM VINSÆLUSTU
LÖGUM LADDA ER KOMIN Í VERSLANIR!!
1. Austurstræti
2. Ég er í svaka stuði
3. Fatafrík
4. Flikk flakk
5. Þú verður tannlæknir
6. Freknótta fótstutta mær
7. Jón Spæjó
8. Gibba Gibb
9. Hr. Smæl
10. Hann á við meiðsli að stríða
11. Skammastu þín svo
12. Of feit fyrir mig
13. Tóti tölvukall
14. Hrói Höttur
15. Tarzan apabróðir
16. Spánarfljóð
17. Hvítlaukurinn
18. Í Vesturbænum
19. Já, þetta er lífið
20. Marta Pálína
21. Nesti og nýja skó
22. Nútímastúlkan hún Nanna
23. Sagan af Ulf Hellerup á Íslandi
1. Búkolla
2. Royi Roggers
3. Skúli Óskarsson
4. Ég pant spila á gítar, mannanna
5. Upp undir Laugarásnum
6. Það var úti á Spáni
7. Sandalar
8. Stórpönkarinn
9. Tvær úr Tungunum
10. Skúli rafvirki
11. Tygg-igg-úmmí
12. Þar standa hegrarnir
13. Það er fjör
14. Æskuást
15. Hann er þekktur fyrir sín þrumuskot
16. Ég er afi minn
17. Grínverjinn
18. Með Haley lokk (og augað í pung)
19. Pabbi minn
20. Prinsippmál
21. Er það satt sem þeir segja um landann
22. Superman
23. Í Köben
24. Mamma og ég
Pl
at
a
1
Pl
at
a
2
Jóhann Helgason tónlistarmaður
var útnefndur bæjarlistamaður
Seltjarnarness 2007 á laugardag.
Jóhann er vel kunnur fyrir laga-
smíðar sínar og flutning en á
löngum ferli hefur hann samið
vel yfir 300 lög sem hafa komið út
bæði í hans flutningi og annarra,
til dæmis Ástin og lífið og Karen.
Jóhann hefur verið búsettur á
Seltjarnarnesi síðan 1981 og í
ræðu sinni sagði Sólveig Pálsdótt-
ir, formaður menningarnefndar
Seltjarnarness, að Jóhann hefði
unnið að list sinni af einurð og
lítillæti og verk hans væru bæði
til þess fallin að hugga fólk á
sorgarstundum og fagna á gleði-
stund.
Við athöfnina frumflutti
Jóhann ásamt Reyni Jónassyni og
Bjarna Sveinbjörnssyni nýtt lag
sem ber heitið Seltjarnarnesið.
Textinn er eftir Kristján Hreins-
son skáld, sem á ættir að rekja á
Nesið.
Laginu, sem var sérstaklega
samið fyrir þetta tilefni, var ein-
staklega vel tekið og voru við-
staddir ekki lengi að læra
viðlagið.
Jóhann bæjarlistamaður Seltjarnarness
AFMÆLI