Fréttablaðið - 23.01.2007, Blaðsíða 4
Levi‘s Classic 501
gallabuxur eru seldar með um
fjörutíu prósenta álagningu á
Íslandi. Eftir að tollar og skattar
hafa verið teknir með í reikninginn
standa rúmar fjögur þúsund krón-
ur sem álagning verslunarinnar á
vöru sem kostar 9.990 krónur.
Fréttablaðið hefur gert verð-
könnun á ýmsum vörum á Íslandi,
í Svíþjóð, Danmörku, Noregi og
Bretlandi. Tilgangurinn er að
komast að því hversu miklu munar
á verði þessara vara milli Íslands
og annarra landa, og hvað orsakar
þennan mun.
Reynt er að brjóta smásöluverð
hérlendis niður í innkaupsverð,
flutningsgjöld, tolla, skatta og
álagningu auk annarra gjalda sem
kunna að leggjast á vöruna. Í dag
eru Levi‘s Classic 501 gallabuxur
teknar fyrir.
Samkvæmt upplýsingum frá
Levi‘s búðinni er innkaupsverð á
gallabuxunum um fjörutíu prósent
af útsöluverði verslunarinnar, sem
er 9.990 krónur. Innkaupsverðið,
sem innifelur flutningskostnað, er
því rétt tæpar 4.000 krónur á
hverjar buxur.
Á innkaupsverðið leggst síðan
15 prósenta tollur, og 24,5 pró-
senta virðisaukaskattur ofan á
það. Þá er innkaupsverð, eftir toll
og skatt, orðið 5.727 krónur. Þær
4.263 krónur sem eftir standa eru
álagning verslunarinnar.
Samkvæmt verðkönnunum
Fréttablaðsins kosta Levi‘s Class-
ic 501 gallabuxur 9.990 krónur í
Levi‘s búðinni í Smáralind, 9.842
krónur í Levi‘s Original Store í
Kaupmannahöfn, 8.816 krónur í
Carlings Denim Gallery í Ósló,
8.061 krónu í Levi‘s Store í Stokk-
hólmi og 6.965 krónur í The Ori-
ginal Levi‘s Store í Lundúnum.
40 prósenta álagning
á Levi‘s-gallabuxur
CLASSIC 501
CLASSIC 501
helmingi
léttari!
Sykurskerta Kókómjólkin
inniheldur helmingi minni
viðbættan sykur og fitu en
hefðbundin Kókómjólk og
orkuinnihaldið er
fjórðungi lægra.
Yfir 80% af mjólkursykri-
num hafa verið klofin og
hentar drykkurinn því
flestum þeim sem hafa
mjólkursykursóþol.
Stjórnarandstöðuflokkarnir á Alþingi;
Samfylkingin, Vinstrihreyfingin - grænt
framboð og Frjálslyndi flokkurinn, sendu í
gær frá sér sameiginlega yfirlýsingu um
Ríkisútvarpið sem markar lok þeirrar
umræðu sem hefur staðið yfir í þinginu síð-
ustu daga og vikur um málefni Ríkisútvarps-
ins.
„Við metum stöðuna einfaldlega svo að
það sé fullreynt og lengri tími skipti ekki
neinu í sambandi við sátt,“ segir Steingrímur
J. Sigfússon, formaður VG.
Í yfirlýsingunni kemur fram að stjórnar-
andstöðuflokkarnir hafi það markmið að láta
fara fram endurskoðun á Ríkisútvarpinu ef
þeir komist í ríkisstjórn í vor. „Þessi yfirlýs-
ing segir að við höfum að undanförnu reynt
og lagt áherslu á það í allri umræðu um Rík-
isútvarpið og samtölum okkar við forystu-
menn stjórnarflokkanna að ná sátt um Ríkis-
útvarpið. Við höfum talið það gríðarlega
mikilvægt en höfum talað fyrir daufum
eyrum,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, í gær.
Samkomulag er um að Ríkisútvarpið verði
ekki hlutafélagavætt heldur fundnar leiðir
til svigrúms í rekstri með nýjum lögum sem
tryggi sjálfstæði og fagleg viðhorf. Stjórn
RÚV verði rekstrarstjórn og starfsmenn búi
við ritstjórnarlegt sjálfstæði og óháðir
stjórnmála- og viðskiptahagsmunum. Þriðja
umræða heldur áfram á þingfundi eftir
hádegi í dag og verða að öllum líkindum
greidd atkvæði um frumvarpið. Í breytingar-
tillögu við frumvarpið er lagt til að lögin öðl-
ist gildi 1. september næstkomandi.
Fullreynt að ná pólitískri sátt um RÚV
Alls um 46
prósent þeirra sem inntir voru
álits í skoðanakönnun Capacent-
Gallups sögðust ánægð með að
Ríkisútvarpinu verði breytt í
opinbert hlutafélag. Þetta er
niðurstaða viðhorfskönnunar sem
unnin var fyrir Ríkisúvarpið fyrr
í vetur. Tæp 24 prósent aðspurðra
svöruðu á þá leið að þau væru
hvorki ánægð né óánægð með
fyrirhugaða breytingu á rekstrar-
forminu. Afgangurinn, rétt
liðlega þrjátíu prósent, kvaðst
óánægður með breytinguna. Alls
svöruðu 825 einstaklingar á
aldrinum 16 til 75 ára og af
báðum kynjum spurningunni í
viðhorfskönnuninni.
Nær helmingur
sagðist ánægður
Stjórn Landssam-
bands veiðifélaga (LV) sendi í
gær frá sér tilkynningu þar sem
ákvörðun Árna Mathiesen
fjármálaráðherra, um endurskoð-
un aðkomu ríkisvaldsins að
framkvæmd laganna um þjóð-
lendur, er fagnað.
LV telur það ekki samrýmast
vilja Alþingis að ríkisvaldið geri
ýtrustu kröfur um land og leggi
óhóflega sönnunarbyrði á
landeigendur sem geta ekki risið
undir þeim í sumum tilfellum því
gögn um eignarhaldið hafa
glatast.
Stjórn Landssambands
veiðifélaga skorar á stjórnvöld og
Alþingi að breyta framkvæmd
laga um þjóðlendur til samræmis
við upphaflegan tilgang þeirra.
Vilja breytingar
á lögunum
Margmenningarfélag
hefur verið stofnað í Borgar-
byggð. Margmenningarfélagið er
félag áhugafólks um margmenn-
ingu og geta allir tekið þátt.
„Hugmyndin er að stuðla að
betra samfélagi fyrir erlenda
íbúa, hjálpa þeim að aðlagast
okkur og okkur að aðlagast
þeim,“ segir Guðrún Vala
Elísdóttir, nýkjörinn formaður
nýja félagsins.
Óformlegur félagsskapur
hefur verið starfandi í Borgar-
byggð í allan vetur og var því
ákveðið að stofna félagið form-
lega og fá kennitölu þannig að
félagsskapurinn gæti beitt sér í
þágu margmenningar og sótt um
styrki til verkefna. Opið hús
hefur verið á sunnudögum í
Safnahúsinu í Borgarnesi og verð-
ur því haldið áfram auk þess sem
starfsemin verður aukin frekar.
Margmenning-
arfélag stofnað