Fréttablaðið - 23.01.2007, Qupperneq 18
ÚFFF!
ÞVÍÍLKIR
VINNINGAR
Aukavinningar eru iPOD Nano • Panasonic heimabíó • PS2 tölvur • Sony Ericsson GSM
símar • PSP tölvur • Canon stafrænar myndavélar Fartölvur • PS2 Guitar Hero •
Gjafabréf á Tónlist.is • Bíómiðar á Kirikou og villidýrin • Kippur af gosi og en meira af
DVD, CD´s, tölvuleikjum og fleiru
*Aðalvinningur verður dreginn út úr öllum innsendum SMS skeytum. Fylgstu með á www.bt.is. Vinningar verða
afhendir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
fréttir og fróðleikur
Vill tryggja
þverfaglega
færni
Á bak við milljarðinn eru eignir
Nærri tvö ár eru þangað
til forsetakosningar verða
haldnar í Bandaríkjunum.
Þessa dagana eru frambjóð-
endurnir þó hver á fætur
öðrum að stimpla sig inn í
baráttuna.
Kosningabaráttan fyrir forseta-
kosningarnar í Bandaríkjunum er
komin á fullt og þykir óvenju
snemma á ferðinni. Vel á annan
tug stjórnmálamanna í Bandaríkj-
unum hafa nú þegar gefið kost á
sér í forsetaframboð árið 2008, og
nokkrir eiga væntanlega eftir að
bætast í hópinn strax á næstu
vikum.
Almenn óánægja með Íraks-
stríðið og George W. Bush, núver-
andi forseta, á líklega hvað stærst-
an þátt í því hve mikið líf er strax
komið í kosningabaráttuna. Þessi
óánægja hefur ekki síst hleypt
miklu lífi í framboðsmál Demó-
krataflokksins, en heldur daufara
hefur verið yfir repúblikönum.
Mesta athygli vekja þau Hillary
Clinton og Barack Obama, sem
bæði hafa á síðustu dögum tekið
fyrsta formlega skrefið í áttina að
framboði með því að stofna svo-
kallaða könnunarnefnd.
Clinton þykir hafa einna mesta
reynslu, bæði sem fyrrverandi
forsetafrú og frá setu í öldunga-
deild Bandaríkjaþings. Margt
vinnur þó á móti henni og þá ekki
síst eiginmaður hennar, Bill Clin-
ton, og þær hatrömmu deilur um
hann sem enn eru mörgum í fersku
minni.
Barack Obama er hins vegar
ein helsta stjarna Demókrata-
flokksins um þessar mundir og
nýtur mikilla vinsælda. Hann er
45 ára gamall og hefur setið tvö ár
á þingi í öldungadeild Bandaríkj-
anna, en hafði áður verið öldunga-
deildarþingmaður á ríkisþinginu í
Illinois í átta ár.
Bæði þykja þau samt eiga góða
möguleika og þætti sigur hvors
þeirra um sig söguleg tíðindi ein-
faldlega vegna þess að Clinton er
kona og Obama dökkur á hörund.
Til þessa hefur hvorki kona né
blökkumaður komist á forsetastól
í Bandaríkjunum.
Ekki síður þættu það tíðindi ef Bill
Richardson, ríkisstjóri í Nýju-
Mexíkó, næði sigri þar sem hann
er af mexíkóskum ættum. Hann
tilkynnti á sunnudaginn um fram-
boð sitt, en þykir reyndar ekki
endilega eiga mikla möguleika á
sigri.
Þriðji demókratinn sem talinn
er eiga góða möguleika í þessari
baráttu, fyrir utan Obama og Clin-
ton, er John Edwards, sem á sínum
tíma var varaforsetaefni flokks-
ins þegar John Kerry tapaði naum-
lega fyrir George W. Bush árið
2004.
Væntanlegir frambjóðendur
Repúblikanaflokksins hafa ekki
vakið jafn mikla athygli og demó-
kratarnir en þekktastir þeirra eru
Rudolph Giuliani, fyrrverandi
borgarstjóri í New York, og öld-
ungadeildarþingmaðurinn John
McCain, sem á síðustu misserum
hefur látið í sér heyra til að gagn-
rýna ýmislegt varðandi stríð
Bandaríkjanna gegn hryðjuverk-
um, og þá ekki síst meðferð fanga
í Guantanamo og víðar enda kynnt-
ist hann sjálfur pyntingum af
eigin raun þegar hann var stríðs-
fangi í Víetnam á sínum tíma.
Enn er þó langt þangað til úrslitin
ráðast. Flokkarnir byrja ekki að
velja sér frambjóðendur fyrr en í
byrjun næsta árs þegar fyrstu for-
kosningarnar hefjast. Kosið verð-
ur í hverju ríkinu á fætur öðru og
stendur það ferli yfir allt fram
undir haustið 2008, eða þangað til
flokkarnir taka endanlega ákvörð-
un um frambjóðendur á flokks-
þingi, sem demókratar ætla að
halda í Denver í lok ágúst en
repúblikanar í Minneapolis í byrj-
un september.
Kosningabaráttan fyrir for-
setakosningar í Bandaríkjunum er
jafnan óvægin og í það minnsta
framan af snýst hún ekki síst um
fjáröflunarmöguleika. Talið er að
ákvörðun Obamas um að tilkynna
um áhuga sinn á framboði þetta
snemma eigi stóran þátt í að Clin-
ton ákvað að gera slíkt hið sama
nú strax. Hún gat ekki beðið mikið
lengur af ótta við að sterkir fjár-
festar hlypust undan merkjum og
færu yfir til Obamas, eins og
reyndar auðkýfingurinn George
Soros gerði býsna snarlega.
Sjálfar forsetakosningarnar
verða svo samkvæmt fastri venju
haldnar fyrsta þriðjudaginn í nóv-
ember, sem árið 2008 ber upp á 4.
nóvember.
Kosningabaráttan vestanhafs
þykir hefjast óvenju snemma